Morgunblaðið - 15.03.2019, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 15.03.2019, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019 Hvað er í tísku tengt fermingum í ár? „Ég myndi segja að bjartir litir væru áber- andi um þessar mundir. Fallegt er að velja einn þemalit sem verður mest áberandi í skreytingunum, t.d. í servíettum, kertum og blómum þó svo það sé fallegt að blanda öðrum tónum með í blómavalið. Mér finnst alltaf fal- legast að vera með látlausan dúk en leyfa skreytingunum að njóta sín.“ Hvaða blóm munu gera gæfumuninn á borðið? „Afskorin blóm í mismunandi björtum litum eða fallegar greinar gera veisluborð falleg að mínu mati. Blandaðir vendir af ýmsum gerð- um myndi ég halda að yrðu mjög vinsælir, en það eru síðan kannski ekki öll börn sem vilja blóm. Þá er mjög fallegt að blanda saman ýmsum gerðum af afskornum greinum og skreyta með þeim.“ Hvernig skreytir þú fyrir stórar veislur? „Mér finnst sjálfri alveg ómissandi að hafa nóg af fallegum afskornum blómum, kerta- ljósum í ýmsum stærðum og það setur líka al- veg punktinn yfir i-ið að bera veitingarnar fram á mismunandi kökudiskum og bökkum. Þetta gerir borðið alveg ótrúlega girnilegt og glæsilegt og setur svo skemmtilega dýpt í það þegar veitingarnar eru sumar hækkaðar vel upp á kökudiskum meðan aðrar eru á fallegum bökkum.“ Að hverju ættu fermingarforeldrar að huga? „Ég myndi mæla með að barnið fengi að taka þátt í undirbúningi og vera með í að velja hvaða litaþema, blóm og skreytingar eru notuð. Það er nokkuð sem ég man sjálf eftir að hafa þótt ótrúlega skemmtilegt og vera partur af skipulagi á minni fyrstu stóru veislu.“ Hvernig nýtist námið þitt í svona vinnu? „Í raun má segja að þetta tengist ekki beint starfi mínu sem innanhússarkitekt, en ætli það sé ekki frekar áhuginn sem ég hef á því að skreyta og skipuleggja. Áhugi minn er m.a. ein af ástæðum þess að við hjónin ákváðum að opna HAF STORE; þar fæ ég að njóta áhuga míns á að skreyta og taka á móti pöntunum á vöndum og skreyt- ingum.“ Áttu góða nýja hugmynd sem gæti gert gæfumuninn í fermingarveislunni? „Það er vinsælt í dag að finna góðan stað, þar sem veislan er haldin, fyrir skreyttan myndavegg. Þar er hægt að taka fjölskyldu- myndir sem lifa um ókomna tíð. Ég veit til þess að það sé hægt að leigja alls kyns tæki og tól fyrir slíkar myndatökur, en einnig er mjög skemmtilegt að útbúa og skreyta sinn eigin myndavegg og notast við síma og/eða mynda- vél.“ Hvað klikkar aldrei að gera í veislum? „Ég myndi segja að þiggja aðstoð frá þeim sem bjóða. Það geta verið þó nokkur handtökin við svona veisluhöld, hvort sem hún er haldin heima eða í sal. Einnig er það bara að muna að njóta samveru og stundar með fólkinu sem maður elskar.“ Hvað ætti maður að forðast? „Ég tel mikilvægt að vera í tíma með alla hluti og forðast með því stress og óþarfa áhyggjur.“ Að forðast stress og áhyggjur Karitas Sveinsdóttir innanhússhönnuður og eigandi HAF STORE og HAF STUDIO segir bjarta liti vinsæla um þessar mundir. Hún segir alltaf í tísku að þiggja aðstoð fyrir fermingar og fólk ætti að sama skapi að forðast stress. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Ljósmynd/Baldur Kristjánsson „Ég myndi mæla með að barnið fengi að taka þátt í undirbúningi og vera með í að velja hvaða litaþema, blóm og skreytingar eru notuð. Það er nokkuð sem ég man sjálf eftir að hafa þótt ótrúlega skemmtilegt og vera partur af skipulagi á minni fyrstu stóru veislu.“ Karítas Sveinsdóttir er á því að mikilvægt sé að þiggja aðstoð frá góðum félögum fyrir fermingar. Karítas mælir með að hafa matinn á einum stað og falleg umgjörð er búin til í kringum veisluborðið. Naktar kökur með ferskum blómum eru alltaf vin- sælar. Karítas er hrifin af svona uppsetningum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.