Morgunblaðið - 15.03.2019, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 15.03.2019, Blaðsíða 36
bundið lífrænt hráefni eins og majó úr repjuolíu og land- námshænueggjum og rjómi úr grasfóðruðum kúm ættu allir að vera glaðir, meira að segja veganar, því það er minna kolefnisspor en úr aðfluttu um hálfan hnöttinn.“ Þegar Áslaug er spurð að því hvað sé mest móðins þegar kemur að mat í fermingarveislum segist hún vera hrifin af hádegisverðarboðum. „Mér finnst æðislega huggu- legt að bera fram hádegisverð í fermingu og svo létt sætmeti á eft- ir. Kransakakan er löngu orðin klassík og er á flestum borðum en fermingarbörnin mörg baka hana sjálf og skreyta. Þá er strax komið fjör á borðið. Það eitt gæti líka dugað í veislu, falleg kransakaka á miðju hóflega stóru borði skreytt með hugmyndaflugi barnsins, allir með eðaldrykk í fallegum glösum, berjasafi með gosvatni, tónlist við hæfi, kannski vals og allir brjóta bita af köku og skála. Miðað við tíðarandann þá er það hóflegt sem er málið. Ég man þar sem ég bjó fyrir nokkrum ára- tugum þá var ein rjómaterta og kaffi hressingin í fermingarveisl- unni. En það er líka allt í lagi að vera með kúfuð borð og bjóða skól- anum heim daginn eftir. Ef ég rifja þær fermingar upp sem ég hef séð um hafa allar verið farsælar með sjarma en mjög ólíkar. Pylsupartí í garðinum, sushi-bitar á öllum borðum og gestir vopnaðir prjón- um, brauðtertur, marengs, snittur og súpuveisla með brauði. Nú bankar fortíðin upp á og gömlu tekkbakk- arnir komnir í móð því fólk vill halda veislurnar heima og þá er hvert her- bergi nýtt í íbúðinni. Það er gaman að hafa veit- ingarnar á tekkbökkum sem tyllt er á hnén,“ segir hún. Hvert sækir þú innblástur þegar þú skipuleggur fermingarveislur? „Mjög mikið í heimsins hefðir. Biblían hefur oft verið uppspretta í veislum. Flest allt tengist og því gaman að flétta saman hefðum eins og með íslensku lummurnar að taka smá rússneskt tvist. Ég hef oft útfært allskonar brauðtertur en ein af uppáhaldsútfærslunum er þegar ég lít í Baskaland og „inspír- erast af Pinox“ frá San Sebastían, það verður fjörug útgáfa af tert- unni.“ Hvað myndir þú aldrei bjóða upp á í fermingarveislu? „Mér finnst ekki neitt útilokað en það er ekki sama hvernig það er framreitt. Ég gæti sagt síld og súr- sæt sósa en svo er ég viss um að það gæti heppnast með smá hugmyndaflugi.“ Er eitthvert sérstakt litaþema sem þú ert hrifin af þegar kemur að fermingarveislum? „Mildir pasteltónar sem minna á vorið. Ég er einstaklega hrifin af að blanda saman nokkrum litum úr regnboganum enda hamingjuhátíð á ferðinni. Eða bara mikið hvítt og leyfa tónum úr birkinu að njóta sín eins og skreytingunum á majónes- tertunum og veisluborðinu. Mjög sniðugt að klippa greinar í garð- inum tveimur til þremur vikum fyr- ir veislu og setja í vatn og leyfa blöðum að springa út á sólríkum stað í stofunni.“ Hvernig þarf fólk að hanna at- burðarásina til þess að veislan verði sem best? „Fyrst þarf að huga að hvernig veislu á að halda og hvar, hvað koma margir, á hvaða tíma dags. Í framhaldinu, hvaða veitingar vilj- um við bjóða upp á og leggja mikið púður í að útbúa sjálf veitingarnar, fá vini og ættingja til að hjálpa eða aðkeypt, sem eru allir mjög spenn- andi kostir. Svo þarf fólk að ákveða hverskonar veitingar eiga að vera. Er það fingramatur eða matur á diskum og þá þarf að huga að leir- taui eða einnota diskum. Svo þarf að huga að skreyt- ingum, tónlist, skemmtiatriðum og leikjum.“ Ertu með einhverja hugmynd að veitingum ef fólk ætlar ekki að vera með borðbúnað? „Já til dæmis lambakebab, græn- meti, salat, hrærur og sósur, pítu- eða tuskubrauð sem hver og einn fyllir að vild. Lamb „street food“ á Grandanum er með mjög litríkt úr- val af meðlæti með lambinu og þau baka sín brauð sjálf svo dæmi sé tekið,“ segir hún. Það elska allir að dýfa ávöxtum í súkkulaði. Girnilegt brauðmeti á veisluborðið. Litrík veisla gerð af Áslaugu. Blóm og matur fara vel saman. Listaverk af mat. Kleinuhringir og fleira góðmeti. Melónur koma sér vel. 36 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019 Föndra | Dalvegi 18 | Kópavogi | s. 568 6500 | fondra.is Allt fyrir ferminguna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.