Morgunblaðið - 15.03.2019, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 15.03.2019, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019 STÓRI BÓ Í Brioche brauði með beikoni, bræddumHávarti osti og Bó sósu. Fabrikkusmá- borgararnir slá í gegn í öllum veislum. 30 borgarar á hverjum bakka! 6 gómsætar tegundir í boði! fe a WWW.FABRIKKAN.IS PANTANIR Í SÍMA575 7575 Ferköntuð rmingarveisl ÞÚ PANTAR - VIÐ GRILLUM - ÞÚ SÆKIR F jölskyldan hans Ara er nýflutt í Vesturbæinn. Þeir feðgar njóta því þess að geta gengið í bæinn og heimsótt versl- anir eins og Vínberið og Kokku og síðan að fara á kaffihús saman. Thor er prófessor við Háskóla Ís- lands við Miðstöð í lýðheilsuvís- indum og Ari er nemandi í 8. bekk í Hagaskóla. Allir í góðu skapi Hvernig hefur fermingar- fræðslan verið? „Hún er búin að vera skemmti- leg og fræðandi. Þau Elínborg og Sveinn, prestar kirkjunnar, og Siggi sem guðfræðinemi voru allt- af í góðu skapi í tímum. Mér fannst gaman að hitta hina krakk- ana úr Hagaskóla í fermingar- fræðslunni. Svo var ferðin í Vatnaskóg mjög skemmtileg,“ segir Ari. Hafa sunnudagar verið ánægju- legir ykkur feðgum? „Já, aldeilis og eiginlega tvöfalt það. Okkur finnst notalegt að geta gengið í miðbæinn í messu. Það er svo rólegt að sitja í kirkjunni. Síð- an er gaman að spjalla um daginn og veginn og predikunina á leið- inni heim. Síðan komum við alltaf við í okkar uppáhaldsbakaríi, Brikk, og fáum okkur eitthvað gott með kaffinu. Það er frábært að koma heim alveg slakur í góð- an kaffitíma,“ segir Thor. Tónlistin í uppáhaldi Ari tekur undir með pabba sín- um og segir þessar stundir góðar. „Mér finnst ágætt að fara í messu með pabba. Það var alltaf svo huggulegt að hlusta á tónlistina og prestinn predika. Uppáhaldið mitt við messuna er tónlistin.“ Hvernig eruð þið að plana að hafa ferminguna? „Við ætlum að hafa veislu heima með nánustu ættingjum. Við erum búin að panta mat. Ég var ekki í miklu stuði til að panta stóran sal og hafa mjög langa fermingarveislu. Ég hugsaði með mér að mig langaði bara til að hafa fámenna veislu,“ segir Ari og bætir við að hann hlakki mest til veislunnar og að hitta fjölskylduna og ættingja. Fara ósjálfrátt í að breyta og bæta Er undirbúningurinn mikil vinna fyrir ykkur foreldrana? „Ekki beinlínis vinna heldur eitt- hvað skemmtilegt að hlakka til. Maður fer ósjálfrátt að gera fínt og breyta og bæta heimilið og það er gaman,“ segir Thor. Ari segir að fermingarfræðslan hafi verið lærdómsrík fyrir hann. Hann viti nú meira um Jesú og sögurnar í Biblíunni. „Það er nokk- uð áhugavert að mínu mati.“ Trúir þú á Guð, Ari? „Ég veit það ekki nefnilega. Það er mjög flókið að hugsa um þetta allt. En ég vil vita meira og læra. Ég vil fylgja hefðum sem tengjast okkar trú, t.d. halda jól og páska.“ Ari hrífst af tónlist enda er hann að læra á trommur. „Ég er reyndar að fara að breyta og ætla að nota rafmagnstrommur. Ég er ekki mik- ið í íþróttum en finnst ágætt að fylgjast með fótboltaleikjum.“ Feðgastund á sunnudögum Ari Karl Aspelund fermist í Dómkirkjunni á þessu ári. Hann er sonur þeirra Thors Aspelund og Örnu Guðmunds- dóttur. Feðgarnir hafa rölt saman í kirkju og gert það að venju að koma við í uppáhaldsbakaríinu á leiðinni heim. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Morgunblaðið/Hari Samvera feðganna í kringum fermingu Ara er stund sem þeir eru þakklátir fyrir. Ari segir að fermingarfræðslan hafi verið lær- dómsrík fyrir hann. Hann viti nú meira um Jesú og sögurnar í Biblíunni. „Það er nokkuð áhugavert að mínu mati.“ Kristín Ólafsdóttir, fræðslu- og upplýs- ingafulltrúi Hjálparstarfs kirkjunnar, segir landsmenn hafa tekið vel á móti fermingarbörnunum. Þau söfnuðu 7.832.672 krónum en beinn kostnaður við söfnunina nam 496.938 krónum. Áður en börnin héldu af stað fengu þau fræðslu um þróunarsamvinnu- verkefni Hjálparstarfs kirkjunnar en Douglas og Trudy komu frá verk- efnasvæðum í Úganda og héldu fleiri en fjörutíu fræðsluerindi um verkefnin í fermingarfræðslu og í félagsfræði- áföngum í framhaldsskólum vítt og breitt um landið. Fjáröflun með aðstoð barna í ferm- ingarfræðslu síðsta haust var sú tutt- ugasta í röðinni en að henni standa prestar og annað starfsfólk í sóknum þjóðkirkjunnar um land allt og er stuðningur þeirra við Hjálparstarf kirkj- unnar mikils virði. Fermingarbörn safna fyrir hjálparstarf kirkjunnar Douglas og Trudy sýna íslenskum krökkum snúsnúband sem reyrt er úr stönglum bananaplöntu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.