Morgunblaðið - 15.03.2019, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019
WWW.FABRIKKAN.IS PANTANIR Í SÍMA575 7575
Fermist þú
ham-borgaralega?
PANTAÐU ÞÍNA VEISLU ÁWWW.FABRIKKAN.IS
30 borgarar á hverjum bakka!
6 gómsætar tegundir í boði!
Kynnist maður barninu betur?
„Ég myndi ekki endilega segja það
því við Alba Mist höfum verið dug-
legar að græja alls konar hluti sam-
an; taka myndir, spá í innanhússmuni
og tísku. Að sjálfsögðu finn ég fyrir
því að dóttirin er ekki barn lengur
heldur er að þroskast hratt. Ferm-
ingin er því ákveðin tímamót í því
ferli.“
Erfitt að finna föt á fermingarbarnið
Hvað kemur á óvart?
„Ekkert sérlega margt. Kannski
aðallega hversu snemma maður þarf
að byrja undirbúninginn. Fólk hefur
yfirhöfuð verið duglegt að koma með
uppástungur og bjóðast til þess að
aðstoða.“
Hvað er erfitt?
„Erfiðast í þessum undirbúningi
hefur verið að finna föt á fermingar-
barnið. Hún var búin að ákveða fyrir
ári að vera í háum buxum og skyrtu
eða samfestingi en margt breytist á
einu ári í lífi unglings. Alba Mist er
mjög ákveðin þegar kemur að því að
klæða sig og hefur verið að mótast í
unga dömu á skömmum tíma. Hún er
með sinn eigin stíl og við höfum að-
eins þurft að „víla og díla“ til að verða
sammála um heildarútlitið. Eftir að
hafa þrætt allar búðir bæjarins var
engin flík sem virkilega heillaði. Ég
endaði á því að panta beinhvítan kjól
á Asos fyrir hana sem ég fékk heim
tveimur dögum seinna. Hann smell-
passaði og við erum rosalega ánægð-
ar með hann.“
Hvað er létt?
„Ekkert,“ segir Marín Manda og
brosir, „því að undirbúa fermingu
fyrir stelpu er gríðarlega mikil vinna.
Hins vegar hefur mér þótt það svo
skemmtilegt svo um leið og salurinn
var bókaður fór allt annað að rúlla.“
Verða með ljósmyndabás
Í hverju verður þú?
„Ég get víst ekki ákveðið það fyrr
en
alveg
undir lokin
því ég er ófrísk
og það er munur
á mér í hverri
viku. Ég mun að
sjálfsögðu reyna
að fara í mitt fín-
asta púss með
kúluna út í loftið.
Líkaminn er að
taka svo miklum
breytingum. Þrátt
fyrir að mér finnist
fúlt að komast ekki í
hvað sem er núna
er ég svo þakklát
þessum líkama
sem passar svo
vel upp á litla líf-
ið inni í mér.
Aðalfókusinn
verður á stóru
skvísunni minni
þennan dag svo
ég er alveg sátt við
það að vera í bak-
grunninum vaggandi
eins og mörgæs.“
Hvernig verður veislan?
„Við erum með hálfgert
blómaþema í hvítum, föl-
bleikum og gylltum tónum.
Veislan verður haldin í sal í
Borgartúninu með fallegu
útsýni yfir Faxaflóann.
Boðslistinn var fljótur að
fara yfir 150 manns svo við
þurftum að skera niður til að
koma fólki fyrir. Okkur þótti mikil-
vægt að fólk sem fagnar með
fermingarbarninu á
þessum degi þekki að
minnnsta kosti til
fermingarbarnsins
með nafni. Boðs-
listinn er því
rúmlega 80
manns og
munum við
halda veisl-
una um
kvöldmatarleytið.
Við bjóðum upp á
Hamborgara-
búlluna sem
mætir á svæðið
og sjálfsögðu
sætt kökuborð
í eftirrétt.
Makkarónur,
skreyttar
möffins,
döðlu-
gott og
Rice
Krispies-
kransakökur.
Una vinkona
mín (heitir
Unabakstur á In-
stagram) gerir
dásamlega fallegar og
gómsætar kökur og
mun hún gera ferming-
artertuna sem verður
skreytt með blómum.
Einnig ætlum við að bjóða
upp á Ava-aldinvatns-
drykkinn frá Ölgerðinni
sem er ferskur og góður.
Alba Mist er búin að
banna mér að halda ræðu
en ég er ekki viss um að
ég geti staðið við það.
Mér datt í hug að hún
myndi fara hjá sér en
ég held aðallega að
hún ætti erfitt með
að halda aftur af
tárum ef ég fer að
verða væmin. Í
samstarfi við
Rentaparty.is verðum við með
myndakassa og flottan bakgrunn svo
við fáum skemmtilegar myndir af
fólki úr fermingunni. Þegar ég
fermdist var haldin karaoke-keppni á
milli borðanna svo það er engin
pressa á fólk í þessari fermingu,
nema að skella í eitt bros.“
Áttu ráð fyrir þá sem munu ferma
á næsta ári?
„Já númer eitt er að byrja á því að
anda inn og anda út. Fara í örlitla
rannsóknarvinnu.
Spyrjið fermingarbarnið hverjar
óskir þess eru og reynið að koma til
móts við þær óskir. Þetta er þrátt
fyrir allt sérstakur og mikilvægur
dagur í lífi barnanna okkar. Svo
myndi ég bara halda áfram að anda
inn og anda út. Þetta hefst allt að
lokum.“
Kíló af bleiku M&M
Hefur þú fengið stuðning fyrir
þennan undirbúning frá einhverjum
sem er snillingur í svona viðburðum?
„Já aldeilis. Vinkona mín Þórunn
Hulda Vigfúsdóttir hefur verið mér
innan handar með ráðleggingar. Hún
er mikill fagurkeri og hún hélt ótrú-
lega fallega veislu þegar dóttir henn-
ar fermdist. Svo skráði ég mig í hóp-
inn Fermingarundirbúningur og
hugmyndir á Fésbókinni og hef því
fylgst örlítið með hvernig aðrir hafa
sínar veislur. Þar hef ég fengið ýms-
ar hugmyndir en ég tel að það sé
mikilvægt að fá ekki samviskubit ef
maður gerir hlutina öðruvísi en aðrir.
Sumar fjölskyldur halda fast í fjöl-
skylduhefðir en aðrir velja að fara í
gegnum þetta ferli á nýstárlegan
hátt. Ekkert er verra né betra.
Maðurinn minn hefur einnig veitt
mjög góðan andlegan stuðning. Hann
stendur með mér í þessu öllu þrátt
fyrir að eiga stundum erfitt með að
skilja af hverju ég þarf nauðsynlega
að kaupa kíló af bleiku M&M-nammi
því það passar svo vel við þemað. Þá
hristir hann hausinn, faðmar mig og
býðst svo til að halda á pokunum.“
Alba Mist telur niður dagana þar til hún
fermist, svo mikið hlakkar hún til.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Alba fermist í ljósum kjól
frá Asos og ætlar að æfa
sig í að ganga á hælum
fyrir ferminguna.