Morgunblaðið - 15.03.2019, Blaðsíða 79

Morgunblaðið - 15.03.2019, Blaðsíða 79
hvernig kúlurnar voru allar í mis- munandi stærðum, en hvernig þær smökkuðust allar eins í munni. Ef við horfum á fólk út frá þessari hugmynd og einblínum á hjarta hvers og eins í stað útlits – eins og Jesús vildi að við gerðum, þá erum við á þessu fallega ferðalagi sem við ættum að vera á sam- kvæmt mínum skilningi á trúnni.“ Hverju þurfa fermingarbörn helst á að halda? „Það er í raun og veru minn draumur að öll fermingarbörnin hafi sterka sjálfsmynd. Ég hef ekki alltaf haft hana í gegnum tíð- ina og það var kjarninn í svo mörgu sem var að hjá mér á ákveðnum tíma. Auðvitað nota ég hefðbundið efni í fermingar- fræðsluna svo sem að kenna börn- unum að fletta upp í Biblíunni, við segjum Biblíusögur en ég fer einnig yfir efni sem er ekki í bók- um. Það sem gerir okkur mann- leg. Þegar við gerum eitthvað sem ekki er æskilegt að við gerum. Við þurfum ekki að brjóta okkur niður fyrir það. Ég sýni þeim stuttmynd um konu sem fór út af sinni braut og endaði ein – sem reis upp með Guðs hjálp og er orðin heil að nýju. Síðan finnst mér svo mikil- vægt að kenna fermingarbörnum að það eru allir að kljást við sín verkefni í lífinu og við getum aldr- ei vitað hver þau verða. Í raun reyni ég að segja þeim allt sem ég myndi vilja segja við 14 ára Nóa ef ég gæti spólað til baka og gefið honum ráð fyrir framtíðina. Það sem ég hefði viljað vita og fara með út í lífið.“ Þar sem höfuðið er fjær en hjartað nær Hvað er það erfiðasta í starfi presta að þínu mati – hvenær þarftu að stíga til hliðar og verða verkfæri Guðs? „Fyrst og fremst í aðstæðum þar sem er mikill harmur og sorg. Þar sem ég get ekki sagt neitt sem getur lagað aðstæðurnar. Ég er sem dæmi nýkominn úr að- stæðum þar sem um var að ræða sjálfsvíg hjá ungum manni og því fylgir alltaf mikill harmur. Ekki bara sorg, heldur þessi spurning hjá aðstandendum – hvað hefði ég getað gert öðruvísi? Hvernig hefði ég átt að stíga inn betur? Þá færi ég höfuðið fjær og hjartað nær. Ég reyni ekki að vera skynsamur með lausnir, vegna þess að þá er maður bara að fylla í eyðurnar og segir bara einhverja vitleysu. Ég mæti í þannig aðstæður með opið hjartað og reyni bara að vera framlenging – ég bið um heilagan anda og að ég fái að vera verkfæri Guðs.“ Nói segir að stundum þurfum við í lífinu að sætta okkur við að fá ekki svör við öllu. Í aðstæðum sem þessum sé sjálfsásökun svo niðurbrjótandi og vond. Nói segir að fyrir börnin sé svo mikilvægt að þau viti að hann er ekki bara Nói prestur heldur einn- ig vinur þeirra. „Þau geta haft samband ef þau langar að tala við vin. Það má vera í dag, á morgun eða eftir þrjú ár – í raun hvenær sem hentar þeim. Ég vil að þau viti að lífið er aldrei það ómögu- legt að ekki sé hægt að setjast niður og ræða saman. Fyrsta skrefið er alltaf að koma og hitt- ast í trúnaði. Með þessa hugmynd vil ég að þau fari út í lífið og hugsi síðan til mín kannski seinna þegar verkefni lífsins byrja að banka upp á. Málefni eins og samkynhneigð er Nóa hugleikið. Hann segir að í raun og veru ættu ekki að vera settar meiri tilfinningar í orðið en það að fólk sé örvhent. „Ég vil ekki að fólk þurfi að koma út úr skápnum. Því ég vil ekki að neinn þurfi að fara inn í einhvern skáp. Ég reyni á mínu heimili að tala um maka – ekki kyn. Þannig er ég ekki búinn að setja neinar hug- myndir inn til barnanna minna um hvað sé eðlilegt að elska og hvað ekki. Það sem færði hann nær trúnni Hvað um eitraða karlmennsku og karlmenn og tilfinningar? „Ég reyni að segja mína sögu til að leggja áherslu á málefni er varða tilfinningar – og þá hjá bæði stelpum og strákum. Mín saga er sú að þegar ég var unglingur var ég gerandi í einelti. Ég var rosalega harður sem ung- lingur við einn ákveðinn strák, síð- an þegar ég varð nítján ára og átti von á mínu fyrsta barni þá hugs- aði ég með mér hvernig líf ég vildi skapa fyrir hann. Ég vissi að við ættum von á strák og ég fann djúpt innra með mér að mig lang- aði að hann myndi fæðast inn í heiminn og eignast vini. Að honum liði vel í skóla og fleira í þeim dúr. Ég fann einnig að mig langaði ekki að hann myndi lenda í mér eins og ég var á vissum tíma. Þá fann ég djúpt innra með mér þessa skömm vegna þess hvernig ég hafði komið fram sjálfur. Ég reyndi að finna kraft til þess að hafa samband við þann sem ég hafði ekki verið góður við. Ég vildi sýna iðrun og innra með mér bjó jafnvel sú hugmynd að við gætum orðið vinir. Ég hringdi í hann en mig skorti kraft til að fylgja þessu eftir. Ég lét nokkra daga líða, en síðan þegar ég ætlaði að hafa samband við hann aftur, þá frétti ég að hann hefði látist af slys- förum. Ég náði ekki að koma afsök- unarbeiðni minni til hans eða að sýna honum iðrun fyrir hegðun mína. Ég notaði trúna til að koma mér í gegnum þessa erfiðu lífs- reynslu og það sem talaði mikið til mín var það sem Jesús sagði þeg- ar hann hékk á krossinum og sagði: „Faðir fyrirgef þeim því þeir vita ekki hvað þeir gjöra.“ (Lúk 23.34) Jesús hékk á kross- inum og sagði þessi orð. En hann hefði leikandi getað sagt að hann fyrirgæfi þeim öllum. En hann sagði það ekki. Líklega vegna þess að hann var ekki tilbúinn til þess sjálfur, en hann benti á þann möguleika að hver og einn getur leitað fyrirgefningar frá Guði.“ Ég er sem dæmi nýkominn úr aðstæðum þar sem um var að ræða sjálfsvíg hjá ungum manni og því fylgir alltaf mikill harmur. Ekki bara sorg, heldur þessi spurning hjá aðstand- endum – hvað hefði ég getað gert öðruvísi? FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019 MORGUNBLAÐIÐ 79 Mi Iceland | 537-1800 | mii@mii.is | www.mii.is Flottar fermingargjafir Mi Band 3 MITU Mini RC drone Mi Mix 3 Mi A2 Lite Mi Band 3 er hágæða heilsu- og snjallúr sem býður upp á ótal marga möguleika. Úrið er vatns- og rykvarið með 5 ATM-staðli Mi Mix 3 er sími fyrir kröfuhörðustu notend- urnar sem vilja allt það nútímalegasta og með öllum nýjustu möguleik- unum. Framhliðin er öll þakin skjá en fram- myndavélin er falin í millirými símans sem hægt er að renna upp. Mi A2 Lite er ódýrari útgáfan af Mi A2 en engu að síður virkilega öflugur og flottur sími á verði sem erfitt er að toppa. Mi Iceland er vefverslun sem sendir frítt hvert á land sem er Fleiri hugmyndir af flottum fermingargjöfum á mii.is Mi Electric Scooter er rafmagnshlaupahjól sem er búið til úr samskonar áli og notað er í flugvélar. Auðvelt er að brjóta hjólið saman og halda á því. Fylgstu með í appinu 8.990 kr. 79.990 kr. 12.990 kr. 89.990 kr. frá 29.990 kr. 5.990 kr. Ódýr og endingar- góður dróni frá Xiaomi fyrir þá sem vilja notendavæna og skemmtilega upplifun! Drónanum er stjórnað með smá- forriti úr símanum. Mi Selfie Stick Tripod er skemmtileg græja sem er ekki bara venjulegt Selfie stick, þetta er einnig hægt að nota sem þrífót. Það kemur einnig með innbyggð fjarstýring sem hægt er að nota til þess að taka myndir. Mi Electric Scooter Mi Selfie Stick Tripod Þegar kemur að fermingum þarf ekki að kosta of miklu til. Stundum getur verið gaman að skreyta hluti og muni sem við eigum heima fyrir, eða í geymslunni ef því er að skipta. Gamlar ferðatöskur, bækur sem á að henda, myndir og stell fá stað í rómantískum veislum ef við höfum áhuga á slíku. Blaðsíður úr gömlum bókum er dýrleg hugmynd í stað borðdúks. Kostar ekki neitt og er fallegt og skapandi. Að skreyta úr því sem til er Að dreifa grænum blöðum á veislu- borðið er alltaf vinsælt. Blómahaf í gamaldags töskum er nokkuð sem grípur augað. Ef maður rekst á gamlar myndir er hægt að láta prenta þær út í fleiri eintökum. Það setur sögulegt þema í boðið. Sósukanna úr gömlu búi fallega skreytt með blóm- um er prýðilegur vasi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.