Morgunblaðið - 15.03.2019, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 15.03.2019, Blaðsíða 22
A lba lýsir sjálfri sér sem mjög opinni manneskju. „Mér finnst gaman að kynnast nýju fólki. Áður fyrr var ég mjög feimin en það hefur breyst. Vinir mínir segja að ég sé með mikinn húmor en ætli ég sé ekki líka með kaldhæðinn húmor. Ég myndi einnig segja að ég væri ákveðin eða orðin ákveðnari og sjálfsöruggari með tím- anum. Samt er ég líka viðkvæm og má ekkert aumt sjá. Undanfarið ár hefur verið mjög spennandi með nýju fólki í mínu lífi og fleiri vinum.“ Alba er skapandi og hefur brenn- andi áhuga á tísku, dansi og ljós- myndun. Tískan heillar „Ég vil ekki plana framtíðina of mikið, bara sjá hvert lífið leiðir mig. Ég gæti alveg hugsað mér að fara til Danmerkur í menntaskóla en ég er hálfdönsk og tvítyngd svo það gæti verið gaman. Í dag finnst mér hönn- unarbransinn heillandi, hvort sem það er innanhússhönnun eða fata- hönnun. Hver veit hvað gerist; kannski verð ég bara flugmaður og ferðast um allan heiminn.“ Hvernig er að fara að fermast? Mér finnst það mjög spennandi og ég hef hlakkað til lengi. Ég hef verið að plana ferminguna í huganum í langan tíma, finna þema og mér finnst ótrúlegt að allt í einu sé komið að þessu. Í Danmörku er sagt að maður sé að labba inn í „de voksnes rækker“ sem þýðir að þá sé maður að byrja að taka skref inn í fullorðins- lífið. Þar eru fermingarnar allt öðru- vísi. Mig hefur alltaf dreymt um að halda risaveislu einhvern tímann og nú er að koma að því.“ Ætlar að vera í hælaskóm Muntu fermast í kirkju eða borg- aralega? „Ég fermist í Langholtskirkju með Hólmfríði bestu vinkonu minni og öðrum góðum vinum úr skólanum.“ Ertu búin að finna fatnað að vera í? „Já, kjóllinn er kominn á hreint og hann kemur mjög vel út. Ég ætlaði fyrst að vera í samfestingi og striga- skóm en er svo komin í kjól og hæla- skó. Mamma er að reyna að kenna mér að ganga á hælum en ég geng nánast eingöngu í strigaskóm þannig að það verður að koma í ljós í hvaða skóm ég enda á fermingardaginn.“ Hvaða máli skiptir trúin í þínu lífi? „Ég bið ekki borðbæn á hverju kvöldi en það er gott að hugsa til þess að það sé eitthvað þarna úti sem passar upp á okkur. Ég trúi á að Guð sé andi sem er alltaf til staðar en ekki endilega karlkyns eða kvenkyns. Ég missti afa minn fyrir nokkrum árum og stundum finnst mér eins og hann sé hjá mér. Þannig trúi ég.“ Erfitt að bíða eftir veislunni Hvernig verður veislan? „Hún verður vonandi skemmtileg. Ég hlakka til að hitta allt fólkið sem kemur til að gleðjast með mér. Við höfum lengi verið að skipuleggja allt frá því hvernig skraut á að vera, mat- ur og myndir. Ég er bara svo spennt að ég get eiginlega ekki beðið lengur.“ Til hvers hlakkarðu mest? „Ég hlakka eiginlega til alls; að fermast með vinum mínum, halda æðislega veislu og auðvitað spila gjafirnar inn, en það er alls ekki mik- ilvægast. Ég mun líka halda aðra fermingarveislu úti í Kaupmanna- höfn hjá pabba mínum fyrir fjöl- skyldu og vini mína þar, þannig að þetta verða tvær ólíkar veislur.“ Er eitthvað sem þú kvíðir fyrir að gera? „Já, ég kvíði smá fyrir því að fara með orðin mín. Ég kvíði líka pínulítið fyrir því að misstíga mig og detta á leiðinni upp að altarinu. Það væri týpísk ég. Eins gott að ég verði búin að æfa mig á hælunum en ég veit að allt gengur upp á endanum.“ Að njóta í veislunni Ertu með hlutverk í veislunni? „Hlutverkið mitt er bara að njóta veislunnar og bjóða fólk velkomið.“ Hvað hefurðu lært af fermingar- fræðslunni? „Ég hef lært fullt. Meira um trúna mína og hvernig ég get nýtt mér hana í daglegu lífi. Prestarnir eru æðislegar konur, þær taka alltaf vel á móti okkur og við lærum á skemmti- legan hátt. Fáum okkur alltaf gott snarl svo þetta er miklu skemmti- legra en ég bjóst við.“ Hvað langar þig að fá í fermingar- gjöf? „Nýjan iPhone-síma, Macbook- tölvu, pening, eitthvað fallegt í her- bergið eða utanlandsferð.“ Stolt fermingarmóðir Marín Manda er ákaflega stolt móðir. „Ég á tvö börn og nú hef ég einnig eignast stjúpson sem ég elska eins og minn eigin. Ég er án efa orðin meyrari en áður því lífið er alls ekki sjálfgefið. Við erum jú sífellt að læra, sem er svo dásamlegt, en ég hef ein- mitt lært að það er í lagi að hlúa að sjálfri mér þrátt fyrir að vera 100% mamma. Ég hef gjarnan sagt að ég sé með skipulagt „kaos“ í kringum mig í daglega lífinu en með árunum hafi ég uppgötvað að best er að klára verkefnin í stað þess að ýta þeim til hliðar. Ég hef ávallt verið afskaplega sjálfstæð, ákveðin, skapandi og opin að eðlisfari. Ævintýragjörn og þarf að hafa mikið fyrir stafni.“ Ertu að ferma í fyrsta skiptið? „Já, ég er að ferma frumburðinn svo ég hef enga fyrri reynslu.“ Matur frá Hamborgarabúllunni Hvernig hefur undirbúningurinn verið? „Hann hefur gengið nokkuð vel en plönin hafa breyst örlítið á leiðinni. Salurinn var fundinn snemma í ferl- inu svo það var mikill léttir. Við vorum búin að ákveða notast við veisluþjónustu og bjóða upp á ýmsa rétti en ákváðum síðan að apa eftir vinafólki okkar sem pantaði Hamborg- arabúlluna í veisluna. Mér finnst það ótrúlega skemmtileg lausn. Einnig verðum við með fallegt kökuborð og gos fáum við hjá Ölgerðinni. Ég bað svo vinkonu mína Emilíu Kristínu (kallar sig Mckrizz á Instagram) að mynda fermingarskvísuna því hún tek- ur æðislegar myndir og það er svo gott að vinna með henni.“ Hvernig er að vinna með barninu í þessum undirbúningi? „Það hefur alveg verið áskorun. Sem betur fer erum við með svipaðar fagurfræðilegar hugmyndir. Við lág- um báðar yfir Pinterest og skoðuðum skreytingar, hárgreiðslur, kjóla og mat og höfðum nánast sömu hug- myndirnar þegar við bárum saman bækur okkar. Alba Mist er aðeins mínimalískari og ég hef því þurft að ýta svolítið á hana að prófa nýjan skó- fatnað og slíkt.“ „Alltaf dreymt um risaveislu“ Alba Mist og Marín Manda Magnúsdóttir eru í óðaönn að undirbúa fermingu Ölbu. Alba held- ur veislu á Íslandi og í Danmörku. Hún getur varla beðið eftir fermingunni og mun bjóða upp á ljósmyndabás, hamborgara og skemmtun. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Alba Mist og Marín Manda eru mjög nán- ar mæðgur. Fermingin er sú fyrsta sem Marín Manda undirbýr með fjölskyldunni.  SJÁ SÍÐU 24 Maðurinn minn hefur einnig veitt mjög góðan andlegan stuðning. Hann stendur með mér í þessu öllu þrátt fyrir að eiga stundum erfitt með að skilja af hverju ég þarf nauð- synlega að kaupa kíló af bleiku M&M-nammi því það passar svo vel við þemað. 22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019 Fermist þú ham-borgaralega? 30 borgarar á hverjum bakka! 6 gómsætar tegundir í boði! JÓI EIGANDI 13 ÁRA. „Ég hefði verið ögn svalari ef við hefðum boðið uppá smáborgara í fermingunni minni.“ www.fabrikkan.is 5 75 75 75
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.