Morgunblaðið - 15.03.2019, Blaðsíða 4
Hvaða væntingar ertu með varðandi
fermingardaginn?
„Ég er mjög spennt og er búin að ímynda
mér þennan dag alveg síðan stóri bróðir minn
fermdist fyrir þremur árum. Ég held að þetta
verði ótrúlega skemmtilegur dagur og ég
hlakka mikið til að eyða honum með fjöl-
skyldu og vinum,“ segir Sigrún Tinna.
Ertu með ákveðnar hugmyndir um hvern-
ig þú vilt hafa þína fermingu?
„Ég hef ákveðna hugmynd um hvernig
þessi dagur mun verða. Um morguninn
græjar fjölskyldan sig og við förum í
kirkjuna. Eftir það verður veislan og svo
förum við heim og ég opna gjafirnar.“
Er búið að ákveða hvernig veitingar
verða?
„Já, við erum svona næstum búin að
ákveða veitingarnar. Við ætlum að hafa
smáborgara frá Hamborgarafabrikkunni,
sem verða aðallega fyrir okkur krakkana
og yngri gesti. Svo verður allskonar ann-
að, ostabakki með brauði og svo auðvitað
fermingarkakan ásamt allskonar sætum
bitum.“
Færð þú að ráða öllu eða eru foreldrar
þínir með ákveðnar skoðanir?
„Þetta er auðvitað minn dagur og ég
hef mínar skoðanir en við erum búin að
taka flestar ákvarðanir saman.“
Ertu búin að finna fermingarföt?
„Já, ég er búin að finna fermingarfötin
mín. Kjóllinn minn er hvítur og mjög ein-
faldur að framan en er svo með fallegri
blúndu í bakið og hann er úr Gallerí 17.
Skórnir mínir eru hvítir Tommy Hilfiger skór
sem við pöntuðum á netinu.“
Hvað dreymir þig um í fermingargjöf?
„Ég hef ekki mikið hugsað um það en það
væri gaman að fá skartgripi, eitthvað fallegt í
herbergið væri líka skemmtilegt. En einnig
finnst mér finnst líka sniðugt að fá peninga eins
og margir fermingarkrakkar, því þá getur mað-
ur keypt það sem maður vill.“
Trúir þú á guð?
„Já, ég trúi á guð og það góða í fólki og að það
sé til einhver æðri máttur.“
Hvað lærðir þú af fermingarfræðslunni?
„Ég er búin að læra heilmikið í vetur á því að
vera í fermingarfræðslu. Ég er búin að læra
mikið um samskipti, samfélagið og virðingu og
að mínu mati er mikilvægt að krakkar fái að vita
meira um það. Það er líka skemmtilegt í ferm-
ingarfræðslu upp á félagsskapinn að gera eins
og að hitta alla krakkana sem eru í öðrum skól-
um.“
Ég trúi á það góða í fólki
Sigrún Tinna Atladóttir fermist 31. mars í Lindakirkju í Kópavogi. Hún er mjög spennt fyrir
fermingardeginum enda hefur hún beðið eftir sínum degi síðan stóri bróðir hennar, Pétur
Steinn Atlason, menntaskólanemi og leikari, fermdist fyrir þremur árum.
Marta María | mm@mbl.is
Fermingar-
kjóllinn var
keyptur í
Galleríi 17.
Við kjólinn
verður hún í
strigaskóm
sem
keyptir
voru á
netinu.
Kjóllinn er opinn í bakið með blúndu sem gerir hann sparilegan.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sigrún Tinna hefur beðið
eftir fermingardeginum sínum
síðan bróðir hennar fermdist
fyrir þremur árum.
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019
Fermist þú
ham-borgaralega?
WWW.FABRIKKAN.IS PANTANIR Í SÍMA575 7575
PANTAÐU ÞÍNA VEISLU ÁWWW.FABRIKKAN.IS
30 borgarar á hverjum bakka!
6 gómsætar tegundir í boði!