Morgunblaðið - 15.03.2019, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 15.03.2019, Blaðsíða 68
1988 – Sólrún Sverrisdóttir sjúkraþjálfari Hvaða dag fermdist þú og hvar? 4. apríl 1988 í Bústaðakirkju. Fermingardagurinn 1988 „Mér fannst dagurinn mjög sér- stakur og man vel eftir athöfninni, ferðinni í hárgreiðsluna, myndatök- unni og veislunni. Þetta var í fyrsta sinn sem svona dagur snerist bara um mig og mér fannst það gaman. Ég man að ég valdi mér ritningargrein sem ljósmóðirin sem tók á móti mér skrifaði inn í Nýja testamentið sem hún gaf öllum börnum sem hún tók á móti og mér fannst það sérstakt og man ég þessa ritningargrein enn í dag og finnst gildin hennar góð: „Sælir eru hjartahreinir því þeir munu Guð sjá“.“ Spurð um fermingardressið segir hún að hún hafi verið fljót að ákveða sig. „Við mamma völdum dressið í sameiningu, fórum bara í smá búða- rúnt og vorum fljótar að finna dress sem ég var ánægð með. Ég man ekki nákvæmlega af hverju ég valdi þessi föt, fór bara að skoða og máta og fann þessa dragt. Ég pældi mun meira í hárgreiðslunni heldur en fötunum. Skreytingarnar voru í anda þess sem hafði verið hjá systrum mínum, t.d. áletraðar servíettur sem mér fannst mjög flott.“ Hvað boðaði ferming í þínum huga? „Hún boðaði staðfestingu á því að ég er kristinnar trúar og vildi stað- festa það. Á þeim tíma fermdust flestallir og ekki mikil umræða um að gera það ekki. Ég mundi þó vel að frændi minn hafði valið að fermast ekki nokkrum árum áður en hann er nú reyndar pestur í dag.“ 1998 – Sigrún Jensdóttir hjúkrunarfræðingur Hvaða dag fermdist þú og hvar? 26. apríl í Selfosskirkju. Fermingardagurinn 1998 „Veislan stendur upp úr en mér fannst mjög gaman í minni eigin veislu. Allar gjafirnar eru auðvitað eftirminnilegar og svo hvað vínið í kirkjunni var hræðilega sterkt og vont. Ég valdi fötin sjálf, fór í búðir með mömmu og ömmu. Veislan var haldin heima og sá mamma að mestu um skreytingarnar. Ég fann mér kjól sem mér fannst fallegur, hann var ekki eins og þeir vinsælustu þetta ár- ið. Með honum fylgdi jakki í stíl sem var bundinn að framan. Það fannst mér ekki flott en amma Hrefna redd- aði því og breytti jakkanum eftir mín- um óskum.“ Hvað boðaði ferming í þínum huga? „Ferming fannst mér vera stað- festing á trúnni en einnig stór og skemmtilegur atburður sem ég hlakkaði til að upplifa sjálf eins og systur mínar og frænkur.“ 2008 – Arnheiður Steinþórs- dóttir, nemi í sagnfræði Hvaða dag fermdist þú og hvar? Ég fermdist á hvíta- sunnu, 11. maí 2008, í Ísa- fjarðarkirkju. Fermingardagurinn 2008 „Dagurinn var allur mjög eftir- minnilegur, mér fannst athöfnin sjálf svakalega spennandi og svo var auðvitað frá- bært að vera miðja athygl- innar í einn dag. Eitt af því eftir- minnilegasta var þó líklega myndatakan sem mér fannst einhverra hluta vegna sniðugt að fara í strax eftir veisluna. Þar var ég dauðþreytt í spennufalli, að drepast í tánum í óþægilegu fermingarskónum og al- veg í spreng (skil ekki af hverju ég fór ekki bara á klósettið). En ég hugsaði, „the show must go on“ og ákvað að drífa mig í gegnum þetta. Það voru mistök, því þessi vanlíðan skín í gegn á nær öllum myndunum. Ég var svo óánægð með þær að ég bað mömmu um að fara með mig í aðra myndatöku tæpu hálfu ári síðar. Í dag þykir mér þær myndir þó lítið skárri, en það er kannski bara eðli- legt.“ Spurð um fötin segir hún að þemað hafi verið dökkrautt. „Ég valdi fötin í samráði við for- eldra mína. Þemað var dökkrautt, sem var og er minn uppáhaldslitur. Eitt það snjallasta sem ég gerði á unglingsárunum var að óska eftir því að fá að fermast í þjóðbúningi. Ég var svo heppin að fá sérsaumaðan upp- hlut í fermingargjöf sem ég klæddist á þessum merka degi, og nota enn í dag. Hugsunin á bak við fatavalið var ekki aðeins sú að mér þættu þjóðbún- ingar glæsilegir, heldur vissi ég að þeir myndu seint detta úr tísku og því yrðu fermingarmyndirnar mínar aldrei hallærislegar. Mér skjátlaðist, sbr. fyrra svar.“ Hvað boðaði ferming í þínum huga? „Ég var mjög trúuð sem barn og því hafði ég beðið fermingarinnar með óþreyju í langan tíma. Fyrir mér hafði fermingin mikla kristilega þýð- ingu á sínum tíma, en þó tók barna- trúin smám saman að fjara út í kjöl- farið. Ástæðu þess tel ég vera þá að fermingin hafi í raun mun fremur táknað upphaf unglingsáranna fyrir mér, þó að ég hafi ekki áttað mig á því fyrr en löngu síðar. Ég var loksins komin í fullorðinna manna tölu og eft- ir það upphófst mikil innri barátta þar sem ég reyndi að sætta mig við það að vera ekki lengur barn og tak- ast á við hvað það þýddi að vera næst- um því fullorðin. Þegar ég lít til baka sé ég þarna ákveðin tímamót sem í raun voru mun frekar persónuleg heldur en trúarleg. Í dag reyni ég þó að halda í barnatrúna en með öðrum hætti en áður. Ég lít á hana sem hluta af mér sem mér þykir afar vænt um og tel mikilvægt að hlúa að.“ Fermingar í gegnum árin Flestir eiga góðar minningar frá fermingardeginum sínum. Kannski sér í lagi þegar ákveðnum þroska er náð og hægt er að líta til baka og hafa gaman af ákvörðunum sem einkenndu daginn, hvort sem um ræðir fötin, skreytingarnar, hárið eða annað sem þótti flott á þeim tíma. Þá er auðvitað einnig persónubundið hvað ferming merkir í huga ferm- ingarbarnanna. Við leituðum til þriggja kvenna sem fermdust hver á sínum áratugnum og fengum þær til að rifja upp hvað stóð upp úr á fermingardeginum þeirra. Nína Guðrún Geirsdóttir| ninagudrun@gmail.com 2008 – Arnheið- ur Steinþórs- dóttir, nemi í sagnfræði. 1988 – Sólrún Sverrisdóttir sjúkraþjálfari. 68 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.