Morgunblaðið - 15.03.2019, Side 20

Morgunblaðið - 15.03.2019, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2019 ungfrú reykjavík Kjúklingabringa í Brioche brauði með cheddar osti, sólþurrkuðu tómatmauki og mangó-jógúrtsósu Fabrikkusmá- borgararnir slá í gegn í öllum veislum. 30 borgarar á hverjum bakka! 6 gómsætar tegundir í boði! WWW.FABRIKKAN.IS PANTANIR Í SÍMA575 7575 Ferköntuð fermingarveisla ÞÚ PANTAR - VIÐ GRILLUM - ÞÚ SÆKIR Þ óra er í Seljaskóla. Hún er ánægð með vinkonurnar í bekknum sínum. Hún æfir handbolta, syngur í ung- lingakór í Seljakirkju og hefur áhuga á myndlist og hönnun. Hefur alltaf farið í kirkju Hvernig er að fara að fermast? „Það er bara spennandi, kirkjan og trúin hafa alltaf verið hluti af mínu lífi. Ég hef farið í kirkju síðan ég man eftir mér.“ Muntu fermast í kirkju eða borgara- lega? „Ég fermist í Seljakirkju.“ Ertu búin að finna fatnað til að vera í? „Já, góð vinkona mín sem heitir Íris gaf mér ótrúlega fallegan kjól í jóla- gjöf. Henni fannst hann svo fallegur að hún ákvað að gefa mér hann, hún hélt að hann liti út eins og eitthvað sem ég hefði keypt mér. Sem er alveg rétt, mér finnst hann svo flottur að ég ætla að fermast í honum!“ Hvaða máli skiptir trúin í þínu lífi? „Hún skiptir mig miklu máli. Það er gott að geta beðið fyrir fólki og alls konar hlutum, fengið styrk, huggun og hugrekki ef mann vantar það. Ég hugsa að það sé mjög mikilvægt fyrir alla að geta trúað á eitthvað, hvort sem það er Jesús, Guð eða eitthvað annað. Svo er líka hægt að trúa á kærleik- ann!“ Veisla með góðum kökum Hvernig verður veislan? „Veislan verður haldin á fermingar- daginn minn, 7. apríl. Hún verður í sal í Laugardalnum sem við græjum og skreytum. Það verður boðið upp á alls konar kökur og drykki. Ég er ekkert fyrir svona fínan fermingarmat. Ég hef rosalega gaman af því að baka og bíð þess vegna upp á kökur í mínum anda. Svo verður myndasýning, skemmtun fyrir gestina, spurningaleikur og fjör.“ Til hvers hlakkarðu sem tengist þessu? „Ég hef rosalega gaman af því að versla og græja, það er spennandi. En það er aðallega spennandi að fá að upp- lifa þetta allt, greiðslu, myndatöku, veisluna og auðvitað ferminguna sjálfa!“ Er eitthvað sem þú kvíðir fyrir að gera? „Nei, ég held að þetta verði bara gaman.“ Ertu með hlutverk í veislunni? „Já, ég mun bara tala við fólkið mitt og láta mér þykja ótrúlega gam- an. Þetta gerist víst bara einu sinni.“ Jesú gerði heiminn betri Hvað hefurðu lært af fermingar- fræðslunni? „Mjög svo margt. Til dæmis trúar- játninguna, sögur úr Biblíunni, og sögur sem prestarnir segja okkur. Margar sögurnar í fermingar- fræðslunni kenna manni ekki bara um sögu Jesús og Guð, heldur ýmis- legt sniðugt sem maður ætti að hafa í huga í lífinu. Óli og Malla (sem eru prestarnir) eru líka mjög skemmti- legir, leyfa okkur að vinna verkefni sem eru skemmtileg en fræðandi. Ég hef líka lært um sögu Jesús, hvernig hann gerði heiminn að betri stað.“ Hvað langar þig að fá í fermingar- gjöf? „Ég er ekki viss, ég á allt sem mig vantar. En ég væri alveg til í utan- landsferð með mömmu.“ Að njóta stundarinnar með börnunum Mamma fermingarbarnsins Guð- rún Snorradóttir segir að hún sé af- skaplega gæfusöm kona. „Ég starfa sem stjórnendamarkþjálfi, vinn alla daga við það sem ég elska og nýt lífs- ins. Ég á þrjár yndislegar stelpur og eiginmann sem ég deili lífinu með ásamt góðum vinum og fjölskyldu. Fólk er að mínu mati það sem mestu máli skiptir í lífinu og þar hef ég nú þegar dottið í lukkupottinn.“ Er þetta fyrsta barnið þitt sem fermist? „Já, ég byrjaði að eignast börn frekar seint, 34 ára, og núna er loks- ins komið að fyrstu fermingunni. Mikil tímamót og mjög spennandi tímar fram undan.“ Hvernig hefur undirbúningurinn verið? „Við mæðgurnar erum afskaplega líkar í okkur, skipulagðar í eðlinu og samstiga. Þannig að undirbúningur- inn hófst að alvöru fyrir nokkrum vik- um. Núna er meira og minna allt tilbúið, nema þá veitingarnar.“ Þóra er skapandi stelpa Hvernig er að vinna með barninu í þessum undirbúningi? „Það er dásamlegt, Þóra er svo skemmtilega skapandi stelpa. Hún er búin að hafa mjög skýra sýn á það hvernig hún vill hafa daginn og það er mikilvægast, að dagurinn verði hennar.“ Kynnist maður barninu betur? „Þegar fyrsta barnið manns ferm- ist er eins og að hefja gönguna með henni í átt að því að verða fullorðin. Já, þannig að mér finnst ég vera að kynnast henni upp á nýtt flesta daga. Hún er svo hlýr og umvefjandi per- sónuleiki, það eru forréttindi að fá að kalla þessa stelpu dóttur mína.“ Hvað kemur á óvart? „Hún hefur alltaf verið mjög ákveð- in, þannig að það hefur ekki komið mér á óvart að hún var með sínar hug- myndir um þennan dag, líkt og aðra daga.“ Hvað er erfitt? „Áskorunin felst í því að hún á af- skaplega upptekna mömmu sem er líka að sinna sínu, fyrirtæki og námi. En við náum góðum stundum saman inni á milli og njótum þeirra til fulls.“ Hvað er létt? „Það er mér bæði létt og ljúft að fá að vera „gestur“ í hennar ævintýri. Að sjá hana dafna og þroskast.“ Í hverju verður þú? „Að sjálfsögðu er mamman búin að græja dótturina en er ennþá að huga að því hverju hún mun klæðast. En það verður eitthvað létt og lipurt, eins og tengdamamma mín myndi segja.“ Gestir fá að giska um framtíðarstarfið Hvernig verður veislan? „Hún verður alfarið í anda Þóru. Hún elskar að baka og á sér leyndan draum að eiga sitt eigið bakarí. Þann- ig að það verður kaffihlaðborð með öll- um mögulegum tegundum af bolla- kökum, tertum og kruðeríi. Við verðum líka með þetta hefðbundna, myndasýningu, spurningaleik og ætl- um síðan að brydda upp á því að allir fái að skrifa til hennar miða í lokin – um það hvað þeir haldi að hún verði þegar að hún verður stór. Þessi hug- mynd kemur frá Þóru og mér finnst hún afskaplega skemmtileg.“ Áttu ráð fyrir þá sem munu eiga fermingarbörn á næsta ári? „Nú vill svo skemmtilega til að hjá okkur verður fermt aftur á næsta ári! Hún Sigrún Birna, systir Þóru, er fædd 13 mánuðum á eftir henni. Þannig að ég kem til leiks reynslunni ríkari. Mér finnst mikilvægast að þetta sé dagur barnsins. Að ferm- ingarbarnið fái að stjórna sem mestu. Að við foreldrarnir séum tilbúin að hlusta af þolinmæði og mæta þeim af fremsta megni með þeirra óskir. Síðan er verulega sterkur leikur að panta sal sem fyrst og ekki gleyma að njóta þess að undirbúa í rólegheitunum.“ Börnin stækka svo hratt Hefur þú fengið stuðning fyrir undirbúning? „Ég hef reitt mig fyrst og fremst á Þóru og hennar hugmyndir. Síðan er ég afskaplega rík af fólki, bæði fjöl- skyldu og vinum, sem eru boðin og bú- in til að vera okkur innan handar. Guðrún vill hvetja alla foreldra til að njóta þess tíma sem fram undan er með börnum sínum. Þau stækka svo hratt. „Að grípa öll tækifæri til að um- gangast unglingana okkar á meðan við fáum tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á líf þeirra og líðan er mikilvægt í mín- um huga. Fyrr en varir verða þau orð- in svo stór og okkar áhrif fara dvín- andi. Ég lærði af Hugo Þórissyni heitnum sálfræðingi að þau þarfnast þess hve mest að við elskum þau þeg- ar okkur finnst þau eiga það minnst skilið. Eru það ekki ágætis lokaorð til okkar sem eigum unglingsárin fram undan með unga fólkinu okkar?“ Fermingin er spennandi upplifun Fermingarmæðgurnar Þóra Þórarinsdóttir og Guðrún Snorradóttir njóta hvers augnabliks saman í að undirbúa ferminguna. Þær eru gott dæmi um hve ótrúlega margt getur falist í fermingunni. Elínrós Líndal|elinros@mbl.is Morgunblaðið/Hari Að ferma barn á ung- lingsárum getur ýtt undir nánd og sterk tengsl innan fjölskyldunnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.