Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.03.2019, Blaðsíða 32
SUNNUDAGUR 10. MARS 2019
TRATTO model 2811
L 207 cm Aklæði ct. 70 Verð 310.000,-
L 207 cm Leður ct. 10 Verð 399.000,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
SAVOY model V458
L 223 cm Áklæði ct. 70 Verð 310.000,-
L 223 cm Leður ct. 10 Verð 435.000,-
ESTRO model 3042
L 198 cm Áklæði ct. 70 Verð 249.000,-
L 198 cm Leður ct. 15 Verð 355.000,-
RELEVE model 2572
L 250 cm Áklæði ct. 70 Verð 315.000,-
L 250 cm Leður ct. 15 Verð 459.000,-
MENTORE model 3052
L 162 cm Áklæði ct. 83 Verð 335.000,-
L 201 cm Áklæði ct. 83 Verð 365.000,-
Styrktarsjóður Hringfarans ehf. hefur úthlutað sínum
fyrsta styrk, samtals 5 milljónum króna. Fyrir valinu
urðu þrír einstaklingar sem eru að framleiða fræðslu-
þætti sem fjalla um eiturlyfjaógnina, Eyþór Gunn-
laugsson, Kristján Hölluson og Sóley Freyja Sen.
„Það hefur verið sérstaklega ánægjulegt að kynnast
og vinna með þessu frábæra fólki, en þau hafa opnað
augu okkar enn frekar fyrir þeirri miklu vá sem eit-
urlyfin eru,“ segja aðstandendur sjóðsins, hjónin Krist-
ján Gíslason og Ásdís Rósa Baldursdóttir. Sjóðinn stofn-
uðu þau eftir að Kristján fór í hringferð um heiminn á
mótorhjóli og gaf í framhaldinu út bók og gerði heimild-
armynd um ferðalagið undir yfirskriftinni Hringfarinn.
Ágóðinn af hvoru tveggja rennur beint í styrktarsjóðinn.
„Þetta er svo persónulegt allt saman að ég gat ekki
hugsað mér að hafa tekjur af þessu; það væri eins og að
selja sjálfan sig,“ sagði Kristján í samtali við Sunnu-
dagsblaðið í október sl. „Þannig að þetta varð nið-
urstaðan. Ég var minntur rækilega á eyðileggingarmátt
eiturlyfja á ferðalaginu en þess utan á ég tvo gamla vini
sem orðið hafa fíkninni að bráð. Þetta stendur mér því
nærri.“
Eyþór Gunnlaugsson, Kristján Hölluson, Sóley Freyja Sen, Ásdís Rósa Baldursdóttir og Kristján Gíslason.
Styrkja gerð fræðsluþátta
Hringfaraverkefni Kristjáns Gíslasonar er farið að bera ávöxt en
úthlutað hefur verið í fyrsta sinn úr sjóði sem settur var á laggirnar
eftir að Kristján fór í hringferð um heiminn á mótorhjóli.
„Fjölskylda ein í Skrolsvík í
Norður-Noregi varð ekki lítið
undrandi á mánudag, er sjón-
varpsútsending frá Íslandi kom
fram í sjónvarpi hennar eftir að
dagskrá norska sjónvarpsins var
lokið. – Bæði mynd og hljóð
komu skýrt fram og stóð send-
ingin yfir í um stundarfjórðung.“
Frá þessum undrum og stór-
merkjum var greint í Morgun-
blaðinu fyrir hálfri öld, sunnu-
daginn 9. mars 1969.
Það var Saga Forsyte-
ættarinnar sem rataði með
þessum óvænta hætti í sjónvarp
norsku fjölskyldunnar sem átti
sér að vonum einskis ills von.
Og skýringin var af dýrari
gerðinni. „Við tæknideild norska
sjónvarpsins hefur verið talið að
þetta atvik eigi rót sína að rekja
til sérstakra aðstæðna í gufu-
hvolfinu er valda því að send-
ingar frá ýmsum sjónvarps-
stöðvum geta komið fram á
sjónvarpsskerminum um stund,
jafnt í Noregi sem annars staðar,
og sé þetta fyrirbæri ekki
óþekkt,“ sagði ennfremur í
fréttinni. Ekki fylgdi sögunni
hvað gekk á hjá Forsyteum.
GAMLA FRÉTTIN
Íslenskt
sjónvarp
í Noregi
Norsku fjölskyldunni brá að vonum í brún þegar sjálf Forsyte-ættin kom
eins og hún lagði sig óvænt í heimsókn á síðkvöldi – alla leið frá Íslandi.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Betty Boop
djassgeggjari
Ilmur Kristjánsdóttir
leikkona
Octavia Spencer
leikkona