Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.03.2019, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.03.2019, Blaðsíða 5
eru ekki verkföll þá er það hnattræn hlýnun eða mengun eða stríð. Fréttir af dýrum sem tekst að bjarga eru eins og ferskur andblær. Þær sýna okkur gæsku og möguleika fólks til að láta gott af sér leiða. Alveg eins og mér finnst frétt síðustu viku hafa verið sú sem fjallaði um feitlagna rottu sem var bjargað eftir hún hafði fest sig í ræsi í þýskum smábæ. Átta slökkviliðsmenn björg- uðu henni og hún hljóp glöð og kát niður í ræs- ið. Sá sem stjórnaði björgunaraðgerðum sagði að jafnvel dýr sem margir þola ekki ættu skilið virðingu. Hvað sem fólki finnst um rottur þá eru þetta falleg skilaboð. Þetta eru fréttir sem segja að okkur sé viðbjargandi. Ég er alls ekki að segja að við eigum að hætta að segja fréttir af öllu sem gerist í heim- inum og „skiptir máli“ í stóru myndinni. Alls ekki. Það er hlutverk okkar sem vinnum við fjölmiðla að halda fólki upplýstu. Fólk á að geta leitað í fjölmiðla til að sjá stöðuna í þjóð- ’Þegar þetta er skrifað hafaverkföll verið úrskurðuð lögleg, með öllu sem því fylgir, enþað er meiri áhugi hjá hinum almenna lesanda á því hvernig Ásdís Rán býr og að Björn Bragi sé að selja fallegu íbúðina sína með draumasvölunum. sig sjálf úr Húsdýragarðinum. Þetta tengist í raun allt að því óbrúanlegu bili á milli þess sem fólk vill lesa og þess sem annað fólk telur rétt að það lesi. Þegar þetta er skrifað hafa verkföll verið úrskurðuð lögleg, með öllu sem því fylgir, en það er meiri áhugi hjá hinum almenna lesanda á því hvernig Ás- dís Rán býr og að Björn Bragi sé að selja fal- legu íbúðina sína með draumasvölunum. Af hverju ætli þetta sé svona? Eru frétta- menn kannski almennt bara að misskilja starf sitt svona rosalega? Eða getur verið að fólk sé búið að fá nóg af hörmungarfréttum um svif- ryk, ofurbakteríur og þriðja orkupakkann? Mér finnst það síðarnefnda vera líklegra. Við fáum endalausar fréttir af því hvernig allt sé í raun á leiðinni lóðbeint til helvítis. Ef það félaginu og þeir eiga að veita stjórnvöldum að- hald og fylgjast með rekstri hins opinbera, svo dæmi sé tekið. En við verðum líka að bera virðingu fyrir því sem fólk vill lesa og halda áfram að gera fréttir sem gefa fólki von um að kannski sé ekki allt í heiminum á leiðinni fjandans til. Þetta eru líka fréttir sem allir skilja. Hér er ekki verið að takast á um flókin lögfræðileg ágreiningsefni eða illskiljanlegar deilur sem eru vandlega flæktar með ólíkum skilningi á sömu rannsóknum eða kaffærð í línuritum og gröfum. Ef þið trúið mér ekki þá skuluð þið reyna að finna aðra skýringu á því af hverju það eru fleiri myndir af krúttlegum kisum en stjórn- málamönnum á netinu. 10.3. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5 arionbanki.is Þægilegri bankaþjónusta Arion banka Flestum Íslendingum finnst Arion appið besta bankaappið Samkvæmt könnun MMR í nóvember 2018 sögðu 50,2% svarenda Arion appið vera besta bankaappið, helmingi fleiri en nefndu öpp annarra banka. Nú er Arion appið orðið enn betra. eins kílómetra fjarlægð frá heimili sínu og vaða eða ganga á ótraust- um ís yfir á til að komast heim á veturna. Eftir umfjöllun um málið samþykkti borgarráð seint á síð- asta ári að leggja héraðsveg heim að Þverárkoti og deila kostnaði til helminga með Vegagerðinni. Allt er gott sem endar vel Sveinn fylgdist að vonum spenntur með framkvæmdinni og segir hana meiri en hann bjóst við. „Það er bú- ið að vera ófært undanfarna tvo til þrjá daga vegna framkvæmdanna en nú er vegurinn opinn. Þeir eru raunar ennþá þarna að ljúka verk- inu og þetta er hörkuvel gert hjá þeim. Ekki er annað hægt en að vera ánægður með þetta. Allt er gott sem endar vel,“ segir Sveinn og bætir við að á þessum tímamót- um sé sér þakklæti efst í huga til allra sem komu að framkvæmdinni. Sveinn festi kaup á Þverárkoti fyrir þrjátíu árum; fyrst var það raunar sumarbústaður en undan- farinn aldarfjórðung hefur hann haft þar fasta búsetu árið um kring. Sveinn verður áttræður í sumar og átti fyrir vikið ekki hægt um vik að vaða yfir ána að vetrarlagi. „Nýi vegurinn gerir mér ekki aðeins kleift að búa áfram í Þverárkoti heldur verður nú líka meiri fé- lagsskapur í vændum. Það eru rosalegar sveiflur í ánni á veturna, eins og gengur með svona fjalla- sprænur,“ segir Sveinn. Í umfjöllun Sunnudagsblaðsins í fyrra kom fram að í nokkrar vikur á hverjum vetri hefði Sveinn þurft að leggja jeppa sínum við næsta bæ, Hrafnhóla, og ganga yfir tún og svo yfir ána Þverá. „Þetta losar um kílómetra, leiðin sem ég fer þarna yfir. Það eru svo misjafnar aðstæður, stundum á ís og stundum veður maður bara yfir. Það er ekki hægt að vera á venjulegum stíg- vélum, maður þarf að vera í klof- stígvélum. Það eru svo miklar sveiflur í svona fjallalækjum. Þegar það er rigning og snjóbráð getur þetta verið eins og straumhart stórfljót,“ sagði Sveinn í fyrra. Ók á móti sjúkrabílnum Frá því var greint í Morgunblaðinu um miðjan janúar síðastliðinn að Sveinn hefði sjálfur þurft að aka yf- ir ána á móti sjúkrabíl eftir að hann veiktist skyndilega og þurfti að komast undir læknishendur. Hjá Vegagerðinni fengust þær upplýsingar að framkvæmdum myndi líklega ljúka í gær, föstudag, og hafa þær gengið greitt og vel fyrir sig. Verktaki er Suðurtak. Lítið vatn var í ánni og ekki frost, sem auðveldaði framkvæmdir. Sveinn Sigurjónsson og Kolbrún Anna Sveinsdóttir, dóttir hans, í Þverárkoti. Morgunblaðið/RAX

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.