Morgunblaðið - 08.04.2019, Side 2

Morgunblaðið - 08.04.2019, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. APRÍL 2019 Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. 595 1000 Alicante í morgunflugi Apríl & maí Verð m.v. aðra leið 10/05/19 frá KEF til ALC með tösku og handfarangri Flugsæti frá kr. 19.900 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Daprir unglingar í 10. bekk í Grunn- skólanum á Þórshöfn sjá nú fram á að ekkert verði af skólaferðalagi þeirra til Tenerife um páskana vegna gjaldþrots WOW air, en ferðin var staðgreidd með einni millifærslu til flugfélagsins tveimur vikum fyrir gjaldþrot þess. „Við vorum búin að safna fyrir þessu ferðalagi í fimm ár og áttum eina milljón,“ sögðu krakkarnir, sem eru alls tíu í bekknum. „Við vorum dugleg við fjáraflanir, vorum með kökubasar, flöskusöfnun, spilakvöld og fleira öll þessi ár en nú er allt far- ið,“ sögðu þessir vonsviknu ungling- ar sem höfðu hlakkað til allan vet- urinn að komast í sólina eftir langan og dimman vetur. „Við eigum núna 60 þúsund og er- um að spá í að fara kannski til Vest- mannaeyja fljótlega eftir páska, sem verður þá náms- og kynningarferð í staðinn, en það er samt of dýrt fyrir okkur. Okkur datt í hug að leita eftir styrk í þá ferð bæði til foreldra og sveitarfélaganna hér en það er ekk- ert frágengið ennþá. Okkur finnst þetta bara hundfúlt, okkur langaði svo mikið út í sól og hita eftir að hafa baksað við að safna í öll þessi ár.“ Þessi tíu ungmenni í grunnskólan- um á Þórshöfn hafa nú kynnst veru- leikanum í íslenskum viðskiptaheimi og var á þeim að heyra að sú beiska reynsla myndi lengi verða þeim minnisstæð. Glata skólaferð vegna WOW Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Átta strákar og tvær stelpur eru í 10. bekk Grunnskólans. Göngugarpar í Reykjavík geta með litlum vandkvæðum þverað götur bæjarins oft og mörgum sinnum án þess að fara tvisvar yfir sömu gang- brautina, en verið er að koma nýj- um gangbrautarljósum fyrir á Suð- urgötu í námunda við HÍ. Fyrir eru á þeirri götu þrenn gangbrautar- ljós; við Starhaga, Hjarðarhaga og Guðbrandsgötu. Þá er einnig mikill fjöldi gang- brautarljósa á Snorrabraut en sem dæmi eru um 80 metrar á milli ljós- anna við Hverfisgötu og þeirra sem standa við Laugaveg og 78 metrar á milli ljósanna við Laugaveg og þeirra við Grettisgötu. Þá eru 74 metrar á milli ljósa við Flókagötu og þeirra sem finna má við Egils- götu. Í svari borgarinnar við fyrir- spurn blaðsins segir um hin nýju ljós á Suðurgötu að gatan liggi í gegnum háskólasvæðið og HÍ sé með starfsemi beggja vegna göt- unnar. Mikilvægt sé að tryggja að- gengi og öryggi þeirra sem þvera götuna á mismunandi stöðum. teitur@mbl.is Morgunblaðið/Hari Stutt á milli Á myndinni sjást stórvirkar vinnuvélar við ný gangbrautarljós á Suðurgötu, skammt frá eldri ljósum sem sjá má í forgrunni myndar. Einungis tugir metra á milli ljósa Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Lækkun hámarkshraða á Hring- braut í Reykjavík mun ekki breyta neinu um öryggi gangandi vegfar- enda á svæðinu. Hún mun þó hafa í för með sér aukna mengun. Slysið sem varð þegar ekið var á stúlku- barn við gatnamót Hringbrautar og Meistaravalla í janúar sl. var ekki vegna of mikils hraða bifreiðar held- ur galla á gangbrautarljósunum. Þetta og fleira segir Ólafur Guð- mundsson, sérfræðingur í umferð- aröryggismálum, í samtali við Morg- unblaðið í tilefni af því að 2. apríl sl. varð til nýtt þrep í hraðatakmörk- unum í íslensku umferðarlagakerfi, 40 km/klst. Formaður skipulags- og sam- gönguráðs Reykjavíkurborgar segir að huga ætti að því að breyta al- mennum hámarkshraða í þéttbýli úr 50 km/klst í 40 km/klst. Segir umferðarljósin gölluð „Þetta slys varð af því að það vantar rauða og græna kallinn. Þetta hafði ekkert með hraðann að gera,“ segir Ólafur, en eins og Morgunblaðið hefur áður sagt frá eru gangbrautarljósin á umræddum stað ekki með „rauðum og grænum karli“ mót gangandi vegfarendum. Nú segir Ólafur að til standi að taka ljósin niður, þó ekki vegna um- rædds ágalla heldur vegna þess að það sé ekki hægt að tengja ljósin við stjórntölvu miðlægrar stýringar um- ferðarljósa, sem staðsett er í Borg- artúni. Segir hann þessa tegund ljósa vera á sautján stöðum í Reykjavík. Að síðustu nefnir hann að með nýrri hraðatakmörkun muni meng- un aukast, enda mengi bílar minnst á lágum snúningi í háum gír. „Ef öll- um „50-götum“ í Vesturbænum yrði breytt í „40-götur“ myndum við auka CO2-útblástur um 900 tonn á ári.“ Öllum ljósunum verður skipt út Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, for- maður umhverfis- og samgönguráðs, segir gangbrautarljósin á svæðinu ekki vera gölluð en segir þó að á næstu tveimur árum verði öllum ljósastýribúnaði á umræddum kafla Hringbrautar skipt út. Ástæðan sé að ljósin séu af mismunandi tegund- um og misgömul. Einnig sé fyrir- hugað að bæta lýsingu á öllum götu- þverunum á svæðinu. „Við ættum að huga að því að hraði í þéttbýli yrði alla jafna 40 í stað 50. Lögin eru þannig í dag að ef þú sérð ekkert skilti þá er hámarks- hraðinn 50 en í raun er miklu örugg- ara að hafa hann 40,“ segir hún. Hún bætir við að nýja þrepið sé mikil gleðitíðindi. „Fyrsta skrefið er mikilvægasta skrefið.“ Nýja hraða- takmarkanaþrepið, 40 km/klst, tek- ur nú til Hringbrautar milli Sæmundargötu og Ánanausta, Hofs- vallagötu milli Hringbrautar og Æg- isíðu, á Ægisíðu, Nesvegi milli Kaplaskjólsvegar og Granaskjóls/ Sörlaskjóls. Nýtt þrep í hraðatakmörkunum  Breytingin eykur ekki öryggi í umferðinni en stuðlar þess í stað að meiri mengun í höfuðborginni Morgunblaðið/Eggert Slysstaður Gangbrautin við gatnamót Meistaravalla og Hringbrautar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.