Morgunblaðið - 08.04.2019, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. APRÍL 2019
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
Lucca glös
Verð 1.590 kr. stk.
Verð 7.950 kr. 6 stk.
Veður víða um heim 7.4., kl. 18.00
Reykjavík 6 skýjað
Hólar í Dýrafirði 2 léttskýjað
Akureyri 8 heiðskírt
Egilsstaðir 3 léttskýjað
Vatnsskarðshólar 4 skýjað
Nuuk 3 léttskýjað
Þórshöfn 6 heiðskírt
Ósló 8 heiðskírt
Kaupmannahöfn 13 léttskýjað
Stokkhólmur 6 skýjað
Helsinki 9 heiðskírt
Lúxemborg 14 rigning
Brussel 18 þoka
Dublin 9 skýjað
Glasgow 6 þoka
London 11 rigning
París 14 heiðskírt
Amsterdam 20 heiðskírt
Hamborg 19 heiðskírt
Berlín 19 heiðskírt
Vín 17 skýjað
Moskva 7 heiðskírt
Algarve 16 skýjað
Madríd 10 rigning
Barcelona 11 skúrir
Mallorca 15 léttskýjað
Róm 14 léttskýjað
Aþena 16 skýjað
Winnipeg 4 þoka
Montreal 8 skýjað
New York 17 heiðskírt
Chicago 13 rigning
8. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:21 20:39
ÍSAFJÖRÐUR 6:20 20:50
SIGLUFJÖRÐUR 6:03 20:34
DJÚPIVOGUR 5:49 20:10
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á þriðjudag og miðvikudag Austan og suðaustan
3-8 m/s, en 10-15 með suðurströndinni. Léttskýjað
á Norður- og Vesturlandi, annars skýjað og stöku
skúrir eða él suðaustanlands. Hiti 3 til 8 stig.
Austan 10-15 m/s syðst, annars 3-8. Skýjað með köflum og stöku skúrir eða él suðaustanlands,
en bjartviðri nyrðra og eystra. Hiti víða 2 til 8 stig.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Verkið sækist nokkuð vel og er á
áætlun. Við stefnum á að klára fyrir
nýtt skólaár,“ sagði Kristján Sigur-
geirsson verkefnisstjóri um fram-
kvæmdir við Fossvogsskóla.
„Þetta lítur miklu betur út en
rannsóknir sem gerðar voru gáfu til
kynna. Það er okkur í hag,“ sagði
Kristján. Hann sagði að gerðar
hefðu verið athugasemdir við
ákveðna staði og verið væri að laga
þá. Mygluskemmdir í skólahúsinu
reyndust minni en talið var í upphafi.
Töluvert mikið hafði lekið með
gluggum á austurhlið austasta húss
skólans, þar sem bókasafnið er.
Glerið var illa þétt en gluggarnir í
góðu standi og enginn fúi í þeim. Þar
er verið að glerja upp á nýtt og er
verkið um það bil hálfnað.
Kennarastofan er í miðhúsinu og
þar lak þakið þegar gerði hláku og
pollur myndaðist í rennu. Til hafði
staðið að skipta um járn á þakinu.
Óskað hefur verið eftir tilboði í verk-
ið og verður skipt um þak fljótlega.
Einnig verður skipt um loftræsti-
kerfi í miðhúsinu og í Vesturlandi,
vestasta húsinu, sem er elst.
„Í Vesturlandi skiptum við um öll
loft og förum yfir einangrun og raka-
sperru. Við skiptum líka um alla
gólfdúka þar. Gerðar voru athuga-
semdir við örfáa staði þar sem hægt
var að rækta upp myglu. Við förum
líka yfir þá staði,“ sagði Kristján.
Þar sem búið er að opna í Vestur-
landi lítur loftaefnið og burðarvirkið
mjög vel út. Einhvern tíma hafði lek-
ið með glugga sem liggur eftir endi-
löngum mæninum. Gert var við það á
sínum tíma og sú viðgerð hefur alveg
staðið sig.
Mygluskemmdir minni en talið var
Vel gengur að gera við Fossvogsskóla Stefnt á að klára viðgerðir fyrir nýtt
skólaár Töluvert lak með gluggum Skipt verður um loftræstikerfi að hluta
Morgunblaðið/Eggert
Fossvogsskóli Viðgerð á skólahúsinu er hafin og gengur vel. Stefnt er að því að ljúka henni fyrir næsta skólaár.
Nemendur í 2.-7. bekk eru fluttir
með sex rútum hvern skóladag
frá Fossvogsskóla í Laugardal
og til baka að lokinni kennslu.
Fyrsta bekk er kennt í færan-
legum stofum, Útlandi, við
Fossvogsskóla og þar er frí-
stundastarf einnig til húsa.
„Það eru allir ákveðnir í að
láta þetta ganga,“ sagði Árni
Freyr Thorlacius Sigurlaugsson
aðstoðarskólastjóri. „Þetta
mun koma skólastarfinu til
góða. Það er mikil samvinna og
mikil teymiskennsla. Heilu ár-
gangarnir eru í sama rými. Í
Þróttarheimilinu er 2.-3. bekkur
í stórum sal. Uppi í stúkunni eru
4.-7. bekkur og er hver árgangur
er með sinn sal. Með hvern ár-
gang eru tveir til þrír kennarar.
Þetta er svolítið vesen en á eftir
að verða skólastarfinu til góðs.“
Mikil
samvinna
KENNT Í LAUGARDAL
Í ár eru 100 ár frá því að fyrsta íslenska frímúrarastúkan, Edda, tók til
starfa og frímúrarastarf með reglubundnum hætti hófst hér á landi. Af því
tilefni var haldin hátíðarathöfn í Eldborgarsal Hörpu í gærkvöld. Starfs
Frímúrarareglunnar var minnst í tali og tónum en fjöldi stórsöngvara steig
á stokk, og komu skemmtikraftarnir bæði að utan og úr röðum reglunnar.
Þá var einnig frumsýnd ný heimildarmynd um sögu reglunnar.
Klæðareglur kvöldsins voru, líkt og hefð er fyrir þegar hópur frímúrara
kemur saman, strangar en einfaldar – kjóll og hvítt.
Morgunblaðið/Hari
Frímúrarar fögnuðu aldarstarfi sínu á Íslandi
Vegagerðin segir ómögulegt að
segja til um það nákvæmlega hve-
nær Landeyjahöfn opnast fyrir
Herjólf. Vegna spár um óhagstætt
veður er útlit fyrir að lengri tíma
taki að opna höfnina en vonast var
til. Engu að síður verður unnið að
dýpkun svo sem kostur er og á með-
an fært er. Ölduhæð og einnig öldu-
lengd er það sem mestu ræður um
hvort hægt er að vinna að dýpkun
hafnarinnar. Stundum getur veðrið
sjálft verið gott en ölduhæð engu að
síður mikil og hamlað dýpk-
unarstörfum.
Dýpkað er í Landeyjahöfn allan
sólarhringinn þessa dagana. Björg-
un er þar með dæluskipið Dísu,
dýpkunarprammann Reyni sem er
búinn stórri gröfu og efnisflutn-
ingaskipið Pétur mikla. Ágætis
gangur hefur verið í dýpkuninni
hingað til en stíf austanátt og ókyrrð
hafa tafið dýpkunarstörf í hafn-
armynninu, að sögn Vegagerð-
arinnar.
Dýpið var mælt á laugardag og
stendur til að endurtaka dýptarmæl-
inguna í dag, samkvæmt upplýs-
ingum frá Björgun. gudni@mbl.is
Landeyja-
höfn ekki
opin enn