Morgunblaðið - 08.04.2019, Síða 8

Morgunblaðið - 08.04.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. APRÍL 2019 VR • Kringlunni 7 • 103 Reykjavík • Sími: 510 1700 • vr@vr.is • vr.is Rafræn atkvæðagreiðsla félagsmannaVR um nýgerða kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins og Félag atvinnurekenda hefst 11. apríl kl. 9:00 og lýkur 15. apríl kl. 12:00. Kosning fer fram á vr.is. Innskráning á kjörseðil er með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Ef þú ert ekki með Íslykil eða rafræn skilríki sækir þú um á island.is. Kjörgögn með nánari upplýsingum berast félagsmönnum á næstu dögum. Frekari upplýsingar má einnig nálgast á vr.is eða í síma 510 1700. KjörstjórnVR Kjósum um kjarasamningaVR Nú, þegar fyrir liggur skýrslainnri endurskoðunar borgar- innar á fjórum framúrkeyrslu- verkefnum, er eðlilegt að önnur óráðsía verði einnig tekin til skoð- unar.    Borgarstjóri erannarrar skoð- unar og segir til að mynda aðspurður um Gröndalshús, sem minnihlutinn í borginni hefur lagt til að gerð verði út- tekt á, að þar sé um að ræða gamalt verkefni sem unn- ið hafi verið af Minjavernd. „Ekki er víst að það myndi hafa mikið upp á sig að taka það út,“ segir borgarstjóri.    Út af fyrir sig er „ekki víst“ aðúttekt myndi hafa mikið upp á sig, en það er þó líklegt. Og í ljósi þeirrar óreiðu sem ríkt hefur í tengslum við verkefni borgar- innar, og þá ekki aðeins Braggans sem borgarstjóri segir af léttúð að sé frávik, er sjálfsagt að fram fari úttekt á því sem snertir Gröndals- hús.    Ennfremur er sjálfsagt að borg-in fari að tillögu sjálfstæðis- manna og kanni hvernig staðið var að samningum og riftun verkefnis á Grensásvegi 12 og að gerð verði úttekt á nýja vitanum við Sæbraut, sem líkt og Gröndalshús og fleiri verkefni fór langt fram úr áætlun.    Skiljanlegt er að borgarstjórivilji síður að gerðar verði frekari úttektir á verkum meiri- hlutans. Verulegar líkur eru á að slíkar úttektir varpi enn sterkara ljósi á þá óreiðu sem ríkt hefur í fjármálum borgarinnar á liðnum árum. En það eru ekki rök fyrir að ráðast ekki í úttektir. Þvert á móti. Dagur B. Eggertsson Feluleikur þjónar ekki borgarbúum STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Landhelgisgæsla Íslands (LHG) fær um mánaðamótin mannlausan dróna til notkunar og verður hann gerður út frá Egilsstaðaflugvelli. Er um að ræða samstarfsverkefni LHG og Siglingamálastofnunar Evrópu (EMSA) en dróninn verður hér á landi í þrjá mánuði og prófaður við ýmis löggæsluverkefni, leit og björgun auk eftirlits með mengun á hafinu við Íslandsstrendur. Flýgur á um 120 km hraða Dróninn, sem er með 15 metra vænghaf, er af gerðinni Hermes 900, vegur rúmt tonn og hefur um 800 kílómetra flugdrægni. Getur hann því auðveldlega flogið að lög- sögumörkum Íslands fyrir austan landið og til baka aftur. Þá flýgur dróninn á um 120 kílómetra hraða, er útbúinn afísingarbúnaði og er stjórnað í gegnum gervitungl. Að auki er dróninn búinn myndavélum og radar, en í honum er einnig sér- stakur búnaður sem greinir neyðar- boð og sendir þau áfram í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar. Ásgeir Erlendsson, upplýsinga- fulltrúi Landhelgisgæslu Íslands, segir fjölmenna áhöfn fylgja drón- anum hingað til lands og að tækinu sé stýrt af flugmönnum. „Meginhluti verkefnisins er fjár- magnaður af EMSA. En gert er ráð fyrir að verkefninu ljúki í lok júlí. Landhelgisgæslan er spennt að sjá hvernig dróni sem þessi nýtist við löggæslu og leit og björgun á hafinu umhverfis Ísland,“ segir Ásgeir við Morgunblaðið. Gæslan prófar dróna hér við land  Vegur rúmt tonn og hefur 800 km flugdrægni  Með myndavélar og radar Nýtt hvala-, fiska- og náttúrugripa- safn í gömlu fiskiðjunni í Vestmanna- eyjum var opnað á laugardag. Hið nýja safn, sem einnig hýsir björgun- arstöð fyrir lunda o.fl., tekur við af gamla safninu Sæheimum, sem opn- að var 1964. Í samtali við Morgun- blaðið segir Óskar Pétur Friðriksson Eyjamaður nýja safnið vera mjög frábrugðið hinu gamla og að allt sé mun nútímalegra. „Maður er búinn að fara þúsund sinnum á gamla safnið, svo kemur maður á nýja safnið og þetta er algjör bylting. Búrin eru t.d. miklu stærri,“ segir Óskar og nefnir að mögulegt sé að fara inn í sum búrin. Þá nefnir Óskar glaður í bragði að á nýja safn- inu nái búrin neðar og því þurfi ekki að halda á yngstu gestunum svo þeir geti barið dýrin sem þar eru augum. Áskorun að hanna safnið Í samtali við Morgunblaðið segir Bragi Magnússon, verkfræðingur hjá Mannviti í Vestmannaeyjum, sem hefur haft yfirumsjón með byggingu safnsins, það hafa verið áskorun að hanna safnið, enda séu kröfur eig- enda um velferð dýranna mjög mikl- ar. „Þetta er björgunarstöð fyrir lunda og hvali líka, svo það eru gerð- ar enn þá ríkari kröfur um að dýr- unum líði vel.“ Hann segir að lykillinn felist í því að hafa búrin nægilega stór fyrir dýrin og að hönnunin sé þannig að þau truflist sem minnst af gest- unum, en einnig að gestirnir fái sem besta yfirsýn.“ Gera má ráð fyrir að mjaldrarnir hvítu, Litla-Hvít og Litla-Grá, sem innan tíu daga koma alla leið frá Sjanghæ til Vestmannaeyja, muni vekja mikla ánægju hjá áhugamönn- um um skepnur hafsins. Í hinu nýja safni er laug fyrir hvalina en framtíð- arheimili þeirra verður í kví í Kletts- vík. teitur@mbl.is Eyjamenn sælir með nýja safnið  Nýtt hvalasafn opnað í Eyjum Ljósmynd/Óskar Friðriksson Búr Börnin geta fylgst með fisk- unum „innan frá“ á nýja safninu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.