Morgunblaðið - 08.04.2019, Side 20

Morgunblaðið - 08.04.2019, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. APRÍL 2019 ✝ Birkir FreyrSteingrímsson fæddist í Reykja- vík 9. júlí 1999. Hann lést 28. mars 2019. Hann var elstur í þriggja systkina hópi. Foreldrar hans eru Nanna Hlín Skúladóttir, f. 25. febrúar 1972, og Steingrímur Birkir Björnsson, f. 27. júní 1966. Systkini eru Björn Breki Steingrímsson, f. 10. apríl 2002, og Sunneva Rán Steingríms- dóttir, f. 2. maí 2007. Birkir Freyr bjó alla tíð í Kópavogi, gekk í Salaskóla og Menntaskólann í Kópavogi, þaðan sem hann stefndi á að útskrifast sem stúdent af al- þjóðabraut í vor. Útför hans fer fram frá Lindakirkju í dag, 8. apríl 2019, klukkan 13. Skrifuð á blað verður hún væmin bænin sem ég bið þér – en geymd í hugskoti slípast hún eins og perla í skel við hverja hugsun sem hvarflar til þín. (Hrafn Andrés Harðarson) Björn afi. Fallegi, blíði og ljúfi frændi minn er fallinn frá. 19 stutt ár er allur sá tími sem okkur auðnaðist að njóta samvista við hann og búa til minningar sem eiga að endast okkur alla ævina. Minningar streyma fram um fallegan ljóshærðan dreng sem þroskaðist í brosmildan myndar- legan ungan mann sem átti alltaf til knús handa okkur hinum. Ljúf- sárar minningar um yndislegar stundir í fjölskylduferðum hér heima og að heiman eru nú sem dýrmætur fjársjóður. Minning um lítinn snáða í sundi með frænku sem fær að setja gel í hárið hans svo hann yrði „töffari“. Gjaldið er Brynjuís handa honum og far á háhesti heim því hann var svo þreyttur eftir allt labbið enda bara fjögurra ára. Minning um börn að busla í heitum potti um bjarta sumarnótt, mikil hlátrasköll, búið að lauma sápu í vatnið og hvítur freyðandi straumur lekur letilega út á tún meðan þau busla og skvetta hvert á annað – Birkir Freyr skartar voldugu yfirvara- skeggi úr sápufroðu. Minning um gleðibrosið þegar hann fékk súkkulaði-éclair í rúmið á afmæl- inu í Frakklandi vermir hjarta- rætur. Minning um unglinginn sem situr hlæjandi á tröppunum í Kötuhúsi að þurrka gönguskóna okkar með hárblásara eftir svað- ilför í sveppamó og svo kláraði hann ólífuolíuna hjá húsráðanda á skóna svo þeir yrðu ekki „eins og skorpnir sveppir“. Netflix-kósíkvöld og umræður um hver væri heitasta ofurhetjan hjá Marvel meðan óheyrilegt magn af snakki hvarf sisvona. „Hvar seturðu þetta allt sam- an?“ spurði ég einhverju sinni for- viða. „Ætli ég sé ekki með „hollow bones“ eins og pabbi,“ var svarið. Ég grínaðist með að hann líktist nafna sínum í landsliðinu þegar hann lét sér vaxa bæði skegg og hár og fékk skot til baka að hann vissi allt um mitt „crush“ á þeim manni. Alltaf stutt í húmorinn. „Getum við haft amerískar pönnukökur Sivva frænka?“ var viðkvæðið ef foreldrarnir skruppu frá og ég naut þeirra forréttinda að passa systkinin í Lómasölum. „Með miklu beikoni“ kom svo frá guðsyninum og geislandi bros sem bræddi hjartað og allar varnir brustu. Vinur vina sinna, sem hann sagði mér að væru sér mikilvægir því þeir gerðu hann að betri manni og hann sæi ekki sólina fyrir þeim. Ég spurði hann hvort þeir vissu af því og væru sama sinnis – já hann hélt það. Ég vona það því betri dreng var ekki hægt að eiga fyrir vin. Ég man einungis eftir að hafa séð hann einu sinni virkilega reið- an – einu sinni á 19 árum! Og varð mjög fegin að sjá að hann hafði erft smá „Arnanesskap“ en reiðin varði ekki lengi – alltaf stutt í brosið. Milljón minningar sem gætu fyllt heila bók en samt ekki nógu margar til að fylla tómarúmið sem skapast hefur við þetta ótímabæra fráhvarf. Augasteinn foreldra sinna og gleðigjafi okkar hinna sem getum ekki ímyndað okkur framtíðina án hans. Ég hélt að ég hefði allan tímann í veröldinni til að njóta meiri sam- vista og skapa minningar með þessum fallega og hæfileikaríka unga manni, sjá hann fara í gegn- um lífið og eiga bjarta framtíð. En lífið er hverfult og menn- irnir ráðgera en guð ræður. Hvíl í friði fallega mannvera. Sigurveig. Birkir Freyr Steingrímsson var minn elsti vinur og táknaði margt í mínu lífi. Hann var mín uppáhalds þungarokksalfræðibók og tókst okkur að tengjast mikið í gegnum tónlist þrátt fyrir að við værum með gjörólíkan smekk, en hann var mjög opinn fyrir því sem ég hlusta á. Ástríða hans fyrir tón- list hefði ekki getað verið meira smitandi og ég þakka honum eilíf- lega fyrir þær umræður sem við áttum um tónlist. Mörg kvöld hafa horfið í gegn- um kvikmyndir eftir að við vinirn- ir fengum brennandi áhuga á kvikmyndagerð og gagnrýni. Eft- ir að hafa horft á oftast tvær eða jafnvel fleiri myndir gleymdum við okkur langt fram á nótt við að ræða skoðanir okkar á myndun- um. Við Birkir áttum það sameig- inlegt að vera með sterkar skoð- anir á myndum en vorum sammála um margar þeirra. Grunnurinn að skoðunum Birkis var augljóslega faðir hans, Stein- grímur, og átti hann mikið í smekk hans á myndum, ekki ólíkt mér. Þrátt fyrir að við byggðum okkar persónulega smekk í gegn- um tíðina hætti hann aldrei að nefna pabba sinn í umræðum og var það ljóst hversu mikla virð- ingu Birkir bar fyrir honum. Fjölskylda hans var honum yfir höfuð mjög mikilvæg. Við töluðum oft um hvað yngri bræður okkar gátu pirrað okkur eins og gerist og sem elstu bræður þurftum við ósjaldan að passa yngri systkini en í einrúmi talaði hann ávallt eins og hann hefði unnið í lottóinu þeg- ar kom að fjölskyldunni. Ég varð vinur hans sem dreng- ur og sá fram á að vera vinur hans til enda og ég varð harmi sleginn þegar ég frétti af láti hans þegar hann var aðeins rétt byrjaður að lifa. Ég hætti samt sem áður aldr- ei að vera vinur hans. Hann verð- ur vinur minn alveg til enda, sama hvað gerist, og verður ávallt með okkur í umræðum og anda þrátt fyrir allt annað. Takk fyrir allt, elsku Birkir Freyr. Þinn vinur og aðdáandi, Kristófer Númi. Það er með miklum söknuði sem við minnumst Birkis Freys Steingrímssonar. Birkir var skemmtilegur drengur. Þegar hann byrjaði hjá okkur í leigunni var hann óharðnaður unglingur, rétt tæplega 17 ára, af- skaplega ljúfur og með skemmti- lega kæki og takta. Með sinni hæglátu og ljúfu framkomu vann hann fljótlega hug og hjörtu allra sem með honum störfuðu og við- skiptavina einnig. Eftir því sem tíminn leið slíp- uðust þessir taktar og kækir nokkuð til, en það sem einkenndi ávallt Birki, þann alltof stutta tíma sem við þekktum hann, var einskær ljúfmennska, gleði og til- litssemi við aðra. Ávallt tilbúinn til að rétta hjálparhönd við hvers- kyns störf og athafnir. Birkir mætti á alla viðburði með starfsfélögum sínum, hvort sem um var að ræða fundi, skemmtun eða ferðalög. Í ferðum með okkur, í jeppa- og fjórhjólaferðum, fundum við glöggt fyrir því hversu mikið Birkir naut sín úti í náttúrunni og var fróðleiksfús með afbrigðum. Hér í Leigumarkaði BYKO eignaðist Birkir góða félaga og vini sem allir sem einn sakna hans og syrgja. Við vottum fjölskyldu Birkis Freys okkar dýpstu samúð og biðjum fyrir styrk þeim til handa á þessum erfiðu stundum. Fyrir hönd starfsmanna Leigu- markaðs BYKO, Bragi Jónsson Pétur Jónsson Ívar Jón Arnarson. Kveðja frá Mennta- skólanum í Kópavogi Á þessum lokavikum vorannar, þegar líður á kennsluna og í sjón- máli eru væntingar um birtu og yl, kennslulok og útskrift, berst okk- ur sú sorgarfrétt að einn af vænt- anlegum útskriftarnemendum Menntaskólans í Kópavogi, Birkir Freyr Steingrímsson, hafi látist skyndilega hinn 28. mars. Við er- um óþyrmilega minnt á hve lítils megnug við erum andspænis dauðanum. Okkur verður sú spurn á vörum því forsjónin hrífi svo skyndilega brott ungan og efnilegan mann í blóma lífsins frá ástvinum, ættingjum og skóla- félögum. Þegar slíkir sorgarat- burðir gerast verður mönnum orða vant. Við fráfall Birkis Freys Stein- grímssonar langar okkur að heiðra minningu hans með nokkr- um fátæklegum orðum. Birkir Freyr hóf nám við Menntaskólann í Kópavogi haustið 2015 á alþjóða- braut. Hann var góðum námsgáf- um gæddur, hæglátur og kurteis og hafði allt til að bera til að farn- ast vel í lífinu. Hann sinnti náminu vel, var farsæll námsmaður og var á lista þeirra nemenda sem ljúka áttu stúdentsprófi í vor. Sagn- fræði var ein af hans uppáhalds- námsgreinum og var hann vel les- inn á því sviði. Birkir átti sér framtíðaráform um að ferðast um heiminn áður en hann héldi áfram námi í háskóla. Það er flókið að vera ungur í dag og erfitt að gera sér í hug- arlund hvað bærist innra með okkar unga fólki. Fréttin af skyndilegum dauða þessa unga og efnilega manns kom eins og reið- arslag yfir okkur. Kennarar og samnemendur Birkis Freys hafa sýnt mikinn styrk og samstöðu á þessum erfiða tíma. Birkis Freys er sárt saknað af starfsfólki og samnemum Menntaskólans í Kópavogi en eftir lifir minning um góðan dreng og þakklæti fyrir að hafa mátt njóta samvistanna við hann. Fyrir hönd allra í Menntaskólanum í Kópa- vogi sendum við aðstandendum og vinum Birkis Freys okkar innileg- ustu samúðarkveðjur og biðjum góðan guð að styrkja þá og blessa í sorg þeirra. Líttu sérhvert sólarlag, sem þitt hinsta væri það. Því morgni eftir orðinn dag enginn gengur vísum að. (Bragi Valdimar Skúlason) Margrét Friðriksdóttir skólameistari. Birkir Freyr Steingrímsson ✝ Þorvaldur Þórar-insson fæddist 12. nóvember 1969 í Sydney í Ástralíu. Hann lést á líknar- deild Landspítalans í Kópavogi 26. mars 2019. Þorvaldur var son- ur Ástu Þorvalds- dóttur, dáin 17. apríl 2016, og Þórarins Sæ- mundssonar. Þorvaldur ólst upp hjá móður sinni og uppeldisföður, Halldóri Waagfjörð. Þorvaldur á einn bróður sammæðra, Jón Waag- fjörð, og einnig systkini samfeðra. Þorvaldur stundaði ýmis störf um ævina, hann var á sjó í nokk- ur ár, hóf 1987 störf í Skipalyft- unni í Vestmannaeyjum, hann lærði þar plötusmíði. Hann flutti síðan til Danmerkur þar sem hann bjó um árabil. Eftir að Þor- valdur flutti aftur heim til Ís- lands vann hann lengi hjá HB Granda og síðan hjá Þorsteini frænda sínum í Frystitækni. Þorvaldur var einn af frum- kvöðlunum hér á landi í frisbí- golfi og varð sex sinnum Íslands- meistari í þeirri íþrótt. Útför Þorvalds fer fram frá Hlöðunni, Gufunesbæ, Reykja- vík, í dag, 8. apríl 2019, kl. 15. Þorvaldur var í Ástralíu fyrstu tvö æviárin en fluttist þá til Íslands. Frá fimm ára aldri ólst hann upp í Vest- mannaeyjum. Þorvaldur lætur eftir sig þrjú börn: Ragnar Smári, fæddur 19. júlí 1999, og Selma Huld, fædd 6. október 2003, sem hann eignaðist með Guðbjörgu Ragnarsdóttur, og Helena Nhi Uyen Þorvaldsdóttir, fædd 18. apríl 2010, sem hann eignaðist með Thi Dung Nguyen. Í dag kveðjum við ástkæran frænda minn, Þorvald Þórarins- son, sem lést langt fyrir aldur fram eftir stutt, snörp og erfið veikindi. Það er svo sárt að sjá á eftir þessum yndislega, ljúfa manni. Ég man Þorvald sem lítinn glókoll sem heillaði alla við fyrsta augnatillit. Orkumikinn pjakk sem tók upp á ýmsu, ef hann náði að festa tá þá var hann floginn upp um alla skápa og veggi. Ein elsta og eftirminnilegasta minningin um Þorvald er þegar hann var heima hjá okkur og týndist, hann hefur varla verið meira en tveggja eða þriggja ára. Það var leitað og leitað að drengnum, allur stiga- gangurinn var farinn að taka þátt í leitinni. Hann fannst loks þar sem hann hafði lokað sig inni í frysti- hólfi með stóra vörubílinn sinn og gat ekki opnað aftur. Mamma sagði alltaf að það hefði einhver tekið í höndina á henni og leitt hana að skápnum áður en illa fór. Skápurinn sá var reyndar bilaður eftir að Þorvaldur hafði tekið hann úr sambandi án þess að nokkur tæki eftir! Ég man Þorvald sumarið þegar ég réð mig í vist til Ástu frænku að passa. Þorvaldur var átta eða níu ára og það sem hann plataði frænku sína út í, það voru bornar heim grálúsugar lundapysjur og skriðið eftir golfvellinum þverum og endilöngum til að safna golf- kúlum sem mig minnir nú að Þor- valdur hafi síðan reynt að selja golfurunum til baka. Ég man Þorvald sem ungling og sem ungan mann. Ég man kær- leiksríka nærveruna og brosið bjarta. Ég man blíða manninn sem vildi öllum vel og vildi alltaf allt fyrir alla gera. Ég man hlé- drægnina og ákveðnina. Ég man stoltan föður. Ég man stríðinn frænda. Ég man Þorvald frænda. Samúðarkveðjur til ættingja og vina, Íris Guðmundsdóttir. Kveðja frá FGR Það var okkur, félögum í Frisbígolffélagi Reykjavíkur, mikil harmafregn að frétta andlát Þorvaldar Þórarinssonar svo langt um aldur fram eftir stutt og erfið veikindi. Þorri var meðal stofnfélaga Frisbígolffélagsins, sannkallaður frumkvöðull þessar- ar nýju íþróttar og einn af mátt- arstólpunum í því þétta og nána samfélagi sem stundar hana hvað mest. Hann var sannkallaður af- reksmaður eins og sex Íslands- meistaratitlar hans í greininni bera vott um. Hann var keppnis- maður af allra bestu sort, þeirri sem bæði samherjar og andstæð- ingar óska sér, ljúfmenni sem gaf hvergi eftir sjálfur en var eðlis- lægt að hvetja keppinauta sína áfram af hreinni velvild og ást á íþróttinni. Íþróttaandinn verður ekki sannari en hjá slíkum manni sem getur gefið mótherjanum hollráð á ögurstundu í miðri keppni. Þorri var hæglátur og greiðvikinn leið- beinandi sem átti stóran þátt í þroska og framförum hjá mörgum byrjandanum enda var afstaða hans og framkoma á vellinum til fyrirmyndar þar sem kappið var aldrei nálægt því að bera feg- urðina ofurliði. Síðast, en ekki síst, var hann traustur félagi sem bætti hvern hóp og smitaði hann jákvæðni og jafnaðargeði. Þorra verður sárt saknað, nú þegar þétta og örugga púttið hans í miðja súlu hefur sungið í keðjunum í síðasta sinn. Meðal okkar sem áttum með hon- um himininn að leikvelli fyrir svifdiska um stund lifir minning um góðan dreng sem kvaddi allt of fljótt. Við sendum fjölskyldu hans og ástvinum einlægar samúðarkveðj- ur. F.h. Frisbígolffélags Reykja- víkur, Ólafur Haraldsson. Það var mikið áfall að fá frétt- irnar að Þorvaldur Þórarinsson, Þorri, væri fallinn frá. Þó að veik- indi hans hafi vakið áhyggjur hjá öllum sem hann þekktu trúði því enginn að þessi sterki Eyjamaður þyrfti að láta í minni pokann fyrir illvígum sjúkdómi. Þrátt fyrir að augljóst væri að ástand hans færi sífellt versnandi var samt alltaf til staðar bjartsýni hjá honum um að nú færi alveg að finnast lausn á hans málum. Þorvaldur kom eins og storm- sveipur inn í frisbígolfheiminn hér á landi þegar hann fluttist aftur til Íslands árið 2004 en hann hafði þá kynnst frisbígolfinu í Danmörku þar sem hann hafði náð góðum tökum á íþróttinni svo athygli vakti. Á Íslandi varð hann nær ósigr- andi og sex Íslandsmeistaratitlar auk ótal annarra verðlauna bera vitni um það. Þorri var góð fyr- irmynd íþróttamanna með sinni þægilegu framkomu bæði við ný- liða og keppinauta. Þessi mikla hógværð gerði hann að vinsælum meðspilara og margir nutu þess að spila með honum og læra. Nú er hann kominn á nýjan völl þar sem hann á eflaust eftir að láta diska fljúga á enn stærra sviði. Það verður mikil eftirsjá að þess- um hógværa afreksmanni og góð- ar minningar lifa lengi hjá þeim sem til hans þekktu. Við sendum börnum, fjölskyldu og vinum inni- legar samúðarkveðjur. Fyrir hönd Íslenska frisbígolf- sambandsins, Birgir Þór Ómarsson formaður. Þorvaldur Þórarinsson Elsku bróðir, mágur og frændi, ADOLF EINARSSON, bóndi, Eystri-Leirárgörðum, sem lést á Dvalarheimilinu Höfða sunnudaginn 31. mars, verður jarðsunginn frá Leirárkirkju þriðjudaginn 9. apríl klukkan 15. Guðríður Einarsdóttir Ólöf Friðjónsdóttir Pálmi Þór Hannesson Magnús Ingi Hannesson Susanne Kastenholz Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs- ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.