Morgunblaðið - 08.04.2019, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 08.04.2019, Qupperneq 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. APRÍL 2019 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Persónuleg vandamál valda þér áhyggjum og taka stóran hluta af tíma þín- um. Endurskoðaðu samskipti þín við vissa/n aðila og hættu að láta ráðskast með þig. 20. apríl - 20. maí  Naut Jafnvel þótt þú sért sjálf/ur í bar- áttu til að halda þér á floti fjárhagslega og andlega viltu láta gott af þér leiða. Mundu að allt er best í hófi. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Samband sem stofnað er til í dag getur átt eftir að verða mjög djúpt. Mestu erfiðleikar varðandi barn/börn eru að baki. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Ekki bíða eftir því að hlutirnir ger- ist af sjálfu sér. Vertu varkár í umgengni þinni við aðra og vandaðu hvað þú segir. Stígðu varlega í vænginn við hitt kynið. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er óþarfi að byrgja allt inni þegar þú átt aðgang að góðum sálufélaga. Gefðu fólki tækifæri, þú gætir grætt á því síðar. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú nýtur hins ljúfa lífs, góðs matar, víns og fallegs umhverfis. Þú hringir í vissa persónu upp á von og óvon. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þótt aðstæður á vinnustað séu ekki alveg eftir ykkar höfði skuluð þið ekki láta þær ergja ykkur. Taktu hugmyndum og gjafmildi annarra opnum örmum. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það er allt í lagi að taka smá áhættu, þegar aðstæður eru hagstæðar. Berðu klæði á vopnin hjá vinum sem deila, þú munt hljóta þakkir fyrir. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú munt njóta góðs af ein- hverju og skalt ekki gleyma sjálf/ur þeim sem minna mega sín. Gefðu þér góðan tíma til að sinna félagslífinu. 22. des. - 19. janúar Steingeit Kjörinn dagur til að grípa niður í heimspekileg eða trúarleg viðfangsefni. Þér tekst að ljúka ætlunarverki á mettíma og með frábærum árangri. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það er alveg hægt að rökræða við fólk án þess að allt fari í hund og kött. Láttu það eftir þér að daðra svolítið og sjá skemmtilegu hliðarnar á hlutunum. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þér hættir til að vera of ráðrík/ur og þú þarft að gæta þess að gera ekki meiri kröfur til annarra en þú gerir til þín. Farðu vel með þig eftir flensuna. Limruskáldið Helgi R. Einarssonspyr: „Atlot?“ Gróu á Geitaskarði gramdist og biðilinn barði, en maðurinn sá það misskildi smá og marblettinn stoltur á starði. Og fullyrðir síðan: „Ó, happ!“: Mikil synd er að sjá ’ann, því Sigríður gaf honum á ’ann. Það var nú samt happ hve vel kappinn slapp, hún vildi, jú, hausa og flá ’ann. Sigrún Haraldsdóttir yrkir á Boðnarmiði: Ómar fyrir eyrum stef, allt er nú með léttum brag, gömlum sorgum gleymt ég hef, geng til móts við nýjan dag. Ólafur Stefánsson hitti gamla bekkjarsystur sína á sólarströnd: Veröldin naumast verður sem ný virðist þar margt til baga en enn þá fylgja þér ilmvatns ský eins og í fyrri daga. Davíð Hjálmar í Davíðshaga skrifaði í Leirinn á miðvikudag að loks hilli undir vorið. – „Hér uppi á þriðju hæð er loftið þynnra og sól- skinið sterkt.“: Dýrðlegt er í Davíðshaga daginn langan fram á kvöld. Bráðum missir vetur völd. Kyssir sólin koll og maga. Kaupa þarf ég myrkvatjöld. Ósk Þorkelsdóttir orti á leið yfir Fljótsheiði: Svona mýrarfen og flóa er furðulegt að kalla „heiði“. Eins og að ganga út í móa og ætla að stunda silungsveiði. Það er veðurhljóð í Ingólfi Ómari: Kári gnauðar kyngir snjá kuldinn bítur vanga. Særinn rýkur, báran blá brotnar þung við dranga. Sigmundur Benediktsson yrkir á Leir: Týnist list í annaelg óður flyst úr geði. Enginn hristir orðabelg eða vistar gleði. Ólafur Stefánsson tekur í sama streng: Hreyfist naumast agnarögn, andans flygsukarta. Ríkir hérna þyngslaþögn, – þegar aðrir skarta. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Vorkoman og af samskiptum kynjanna „NÚNA ER ÞETTA HEILKENNI, EN EF EKKERT ER GERT Í ÞVÍ GETUR ÞAÐ FLJÓTLEGA ORÐIÐ AÐ RÖSKUN. ” „GETTU HVAÐ KOM FYRIR ÞESSAR PYLSUR Á LEIÐINNI HEIM AF MARKAÐINUM.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að sýna henni að það er enn töggur í þér. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÞAÐ ER KJÚKLINGABRAGÐ AF ÞESSUM KATTAMAT HVER HEFÐI NÚ TRÚAÐ ÞESSU? HANN ER BÚINN TIL ÚR EINS KONAR KJÚKLINGUM FÉLAGAR, VIÐ ERUM AÐ FARA AÐ BERJAST GEGN ÓVINI SEM ALDREI HEFUR TAPAÐ ORRUSTU! ÞAÐ JAFN- GILDIR SJÁLFS VÍGI! ÞAÐ SPILLIR ÞVÍ AÐ FÁ LÍFTRYGGINGUNA GREIDDA ÚT! HVÍ? ER ÞAÐ SLÆMT FYRIR BARÁTTU- ANDANN? ALDREI SEGJA ÞETTA UPPHÁTT! Að hlusta á fólkið tala um samfélagsitt, reifa sjónarmið, kalla eftir úrbótum og svo framvegis var lær- dómsríkt fyrir ungan strák. Það svo vakti með mér áhuga á þjóðfélags- málum.“ Svo mæltist Guðmundi Gunnarssyni bæjarstjóra í Ísafjarð- arbæ í viðtali við Morgunblaðið í síð- ustu viku. Þar sagði hann frá upp- vexti sínum í Bolungavík þar sem fólk mætti til fundahalda á bensín- stöðinni í þorpinu og skeggræddi bæjarmálin, þjóðfélagið, aflabrögð og veður og svo framvegis. Og Vík- verji veit að svona skeggræður eru alveg skínandi skemmtilegar. En mörkin þurfa að vera skýr. x x x Í skeggræðum fólks um málefni líð-andi stundar er mikill munur á að segja skoðun sína og svo því að hafa eitthvað til málanna að leggja. Skoð- anaglaða fólkið er margt í sama flokki og vitringurinn sem hringdi í Víkverja og segir frá hér að ofan. En svo er líka til fólk sem les sér til um mál, spyr spurninga og kemur síðan með góð innlegg sem er leiðarhnoða til framtíðar. x x x Fyrir nokkrum dögum hringdimaður á ritstjórn Morgunblaðs- ins til þess að segja blaðamönnum frá skoðunum sínum á landsmál- unum, sem hann lagði til að yrðu gerðar að umfjöllunarefni á síðum blaðsins. Áherslu lagði hann á að sagt yrði frá siðblindu og sálar- meinum tiltekinna ráðherra, sem klárlega þyrftu viðeigandi hjálp. Þjóðarheill væri í húfi, framganga og verk forystumanna þjóðmálanna gæfu innsýn í sjúkt sálarlíf. Við þess- um lestri var lítið hægt að segja nema þakka fyrir hringinguna en benda jafnframt á að fréttir í fjöl- miðlum yrðu að byggjast á stað- reyndum, rökum og þekkingu. Skoð- anir Jóns og Gunnu úti í bæ – kaffistofumas og kjaftagangur í heit- um pottum sundlauganna – væru al- mennt ekki fréttnæmar. Á þessu virtist þó takmarkaður skilningur hjá viðkomandi; sem er eins og allar þær þúsundir bullukolla sem daglega tjá sig á samfélagsmiðlum, vaða elg- inn og segja sitthvað sem gleymist fljótt. Sem betur fer. vikverji@mbl.is Víkverji Að óttast Drottin er upphaf spekinnar og að þekkja Hinn heilaga er hygg- indi. (Orðskviðirnir 9.10) Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is PLÍ-SÓL GARDÍNUR alnabaer.is Þrjár gerðir: þunnar, með sólarvörn og myrkvunar. Henta mjög vel í skáglugga og þakglugga. Við erum sérhæfð í gluggatjöldum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.