Morgunblaðið - 08.04.2019, Síða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. APRÍL 2019
AF TILRAUNUM
Ragnheiður Eiríksdóttir
heidatrubador@gmail.com
Ljómandi Músíktilraunir eru nú ný-
afstaðnar en úrslit þeirra fóru fram
í troðfullum Norðurljósum í Hörpu
í fyrrakvöld. Það var einstaklega
mikil fjölbreytni í Músíktilraunum
þetta árið og kokteill kvöldsins
samanstóð af þungarokki, skútu-
rokki, indíi, þjóðlagatónlist, pönki,
reggípoppi, amerísku rokki og
dansvænni raftónlist, svo það var
næsta víst að allir myndu finna eitt-
hvað við sitt hæfi.
Ég iðaði í skinninu þar sem ég
sat og beið fyrstu sveitarinnar sem
var Merkúr frá Vestmannaeyjum.
Arnar Júlíusson, söngvari og gítar-
leikari, átti hreinlega heima á svið-
inu svo öruggur var hann. Lokalag
þeirra, „To the last man“, reyndist
enn og aftur þeirra traustasta lag
og þar náðu þeir að gleyma sér og
spila af gleði og öryggi.
Við tók Konfekt, þrjár tvítugar
stúlkur frá Seltjarnarnesi sem leika
það sem stundum hefur verið kallað
„skúturokk“ og vísar til létt-
klæddra sveita um miðbik áttunda
áratugarins að syngja eitthvað
mjúkt og grúvandi og fagurlega
raddað um borð í bátunum sínum.
Fyrir utan bátana bauð Konfekt
upp á allt þetta og framúrskarandi
grípandi lög í ofanálag. Þarna er
komin hljómsveit til að fylgjast
með.
Það var töluverð breidd í lög-
um Parasol og bandið var töluvert
betra en á undanúrslitakvöldi sínu.
Söngvarinn Tómas Árni Héðinsson
var mjög öruggur og hljómaði í
fyrsta laginu eins og Lou Reed, gíf-
urlega afslappaður með letilegar
fraseringar sem fóru honum vel.
Ásta, klassískt menntaður
víóluleikari sem er nýbyrjuð að
spila á gítar og syngja frumsamin
lög, bætti frábæru lagi við þau tvö
sem hljómuðu í undanúrslitum.
Ljóst er að ef hún heldur áfram á
þessum slóðum mun hún geta
breytt heiminum. Henni tekst að
minnsta kosti að stöðva tímann og
hrífa alla, meira að segja mestu
kúlista, með sér í sinn fagra heim.
Síðust fyrir hlé var Eilíf sjálfs-
fróun með sitt skondna ádeilupönk
og uppskar hlátrasköll og almenna
kátínu um allan sal og svo var þetta
hálfnað og tími kominn á gott kaffi
og smástund til að melta alla snilld-
ina sem var að baki.
Síðari hluti hófst með hinni
geðþekku Karma Brigade, sextett
sem raðar sínu reggípoppi fagur-
lega í hljóðheiminn.
Flammeus frá Akureyri voru
næstir, fullir af einbeitingu. Það er
helst að verið sé að reyna að koma
aðeins of mörgum hugmyndum að í
einu, og lög og kaflaskiptingar
kæmust betur til skila væri öllu
leyft að anda aðeins betur.
Hinar 15 ára stöllur Guðlaug
Sóley Höskuldsdóttir og Aníta Núr
Magnúsdóttir í gugusar buðu upp á
skemmtilega dagskrá. Fyrsta lagið,
með gott grúv og dansrútínu, er
áreiðanlega eitt flottasta ósungna
lag sem keppt hefur í Tilraununum.
Nýjasta lagið var svo emópopp sem
breyttist í mínimalíska teknótónlist.
Allt var flutt af sjálfsöryggi og
verður gaman að fylgjast með þess-
ari sveit blómstra og springa út.
Caravan Kids úr Garðabæ
hljómuðu eins og þau væru að spila
á amerískri sveitakrá við þjóðveg
66 í Bandaríkjunum. Söngkonan
hefur svalan tón í röddinni og gott
viðmót en það er helst að lagasmíð-
ar mættu slípast ögn.
Dread lightly lék fallega þjóð-
lagatónlist sem lagðist að manni
eins og hlýtt teppi í kuldakasti.
Arnaldur kann að semja lög og
koma fram og þetta atriði á bara
eftir að þroskast og verða sterkara
er fram líða stundir.
Það má segja að lokahljóm-
sveitin, Blóðmör úr Kópavogi, hafi
átt salinn. Hún kom, sá, spilaði og
sigraði. Það virtist allt ganga upp
hjá þeim: Lögin grípandi, hljómur
til fyrirmyndar, öskur reið, gít-
arsóló æsandi og kaflaskiptingar
glæsilegar. Það var því ljóst á loka-
mínútunum að þarna væru sigur-
vegarar Músíktilrauna 2019 komn-
ir!
Konfekt landaði öðru sætinu
örugglega og hrífandi þjóðlaga-
tónlist Ástu hreppti það þriðja.
Karma Brigade var svo kosin
hljómsveit fólksins.
Í einstaklingsverðlaununum
var Tumi Hrannar Pálmason í
Flammeus kosinn bassaleikari Mús-
iktilrauna. Haukur Þór Valdimars-
son í Blóðmör vann gítarleikara-
verðlaunin. Hljómborðsleikari
Músiktilrauna var Guðjón Jónsson í
Flammeus. Rafheili Músiktilrauna
var Guðlaug Sóley Höskuldsdóttir í
gugusar. Konfekt landaði tvennum
einstaklingsverðlaunum, því Anna
Ingibjörg Þorgeirsdóttir fékk
söngvaraverðlaunin og Eva Kol-
brún Kolbeins var valin trommu-
leikari Músiktilrauna. Að lokum
fékk Ásta Kristín Pjetursdóttir
verðlaun fyrir íslenska textagerð
og er hún vel að þeim verðlaunum
komin.
Músíktilraunir eru og verða
ávallt minn uppáhaldsmenning-
arviðburður og það er með örlítið
meira sólskin í hjarta sem ég val-
hoppa nú inn í vorið, vitandi að
æsku okkar er borgið. Sagan end-
urtekur sig svo að ári því tónlist er
fögur á sem enginn fær stöðvað.
Það er mikil blessun að fá að baða
sig í henni.
Iðað í skinninu
» Lögin grípandi,hljómur til fyrir-
myndar, öskur reið, gít-
arsóló æsandi og kafla-
skiptingar glæsilegar.
Það var því ljóst á loka-
mínútunum að þarna
væru sigurvegarar
Músiktilrauna 2019
komnir!
Ljósmynd/Brynjar Gunnarsson
Furðu lostinn Hljómsveitin Blóðmör varð sigurvegari Músíktilrauna í ár og voru sumir furðu lostnari en aðrir.
Gleði Ateria, sigurbandið frá í fyrra, veitti Konfekti verðlaun fyrir annað sæti Músíktilrauna árið 2019.
Tæknirisinn Amazon hefur lýst því
yfir að kvikmyndagerðarmaðurinn
Woody Allen hafi spillt fyrir vel-
gengni kvikmynda sem hann leik-
stýrði með umdeildum ummælum
sem hann lét falla í kjölfar #metoo
byltingarinnar. Þess vegna hafi
Amazon hætt við sýningar á fjórum
myndum Allens í streymisþjónustu
sinni, en á meðal þeirra er kvik-
myndin A Rainy Day in New York.
Yfirlýsingin er andsvar Amazon
við skaðabótamáli sem Allen höfð-
aði gegn Amazon í febrúar síðast-
liðinn. Fer hann fram á að fá
greiddar 68 milljónir Bandaríkja-
dala vegna ákvörðunar Amazon um
að hafa hætt við sýningar á A Rainy
Day in New York í streymisþjón-
ustu sinni.
Ummælin, sem talsmenn Amazon
eiga við, lét Allen falla í viðtali hjá
BBC í október árið 2017. Þar sagði
hann að mál Harvey Weinsteins,
leikstjórans sem fjöldi kvenna hef-
ur sakað um kynferðisofbeldi, væri
mjög sorglegt fyrir alla sem ættu
þátt í því. Að auki nefnir Amazon
að Allen hafi varað við nornaveið-
um í #MeToo byltingunni.
Umdeild ummæli
Allens hafi slæm áhrif
AFP
Umdeildur Amazon hætti við sýningar á myndum Woody Allens.
FLJÓTANDI
SMJÖRLÍKI
Í ALLA
MATARGERÐ