Morgunblaðið - 09.04.2019, Page 4

Morgunblaðið - 09.04.2019, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2019 ENGINN AÐGANGSEYRIR. SKRÁNING Á VEFNUM WWW.SI.IS RÁÐSTEFNA MATVÆLALANDSINS ÍSLANDS 2019 HVAÐ MÁ BJÓÐA ÞÉR AÐ BORÐA? SÉRSTAÐA OG SAMKEPPNISFORSKOT Í MATVÆLAFRAMLEIÐSLU HILTON REYKJAVÍK NORDICA 2. HÆÐ, SALUR H & I MIÐ. 10. APRÍL KL. 10.00-12.00 M AT VÆLALANDIÐ ÍSLAND FJÁRSJÓÐUR FRAMTÍÐAR Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Á þriðja hundrað skákmanna frá 40 löndum komu saman í Hörpu í gær á opnunarathöfn Reykjavíkur- skákmótsins. Forseti FIDE, Arkady Dvorko- vich, er heið- ursgestur móts- ins og hefur lýst yfir áhuga á að styrkja skák- kennslu í skólum hér á landi. Á meðal kepp- enda eru 32 stór- meistarar, þar á meðal ofurstórmeistarar og skák- undrabörn frá Bandaríkjunum, Indlandi og Íran. Þá hefur það vakið athygli að Íraninn Alireza Firouzja, sem er aðeins 16 ára, er þriðji stigahæsti keppandi mótsins. Mótið er tileinkað minningu Stef- áns Kristjánssonar stórmeistara, sem lést í fyrra, langt fyrir aldur fram. Gunnar Björnsson, forseti Skák- sambands Íslands, segir að mótið sé af svipuðum styrkleika og í fyrra: „Það sem er áberandi í ár er að margir ungir og efnilegir skák- menn eru meðal keppenda,“ segir Gunnar og á þá meðal annars við yngsta stórmeistara heims, ind- verska undrabarnið Dommaraju Gukesh, sem er aðeins 12 ára, sjö mánaða og 17 daga. Hinn 16 ára Alirexa Firouzja er ekki síður efni- legur en Íslandsvinurinn og stór- meistarinn Ivan Sokolov hefur sagt að hann sé framtíðarheimsmeist- araefni. FIDE vill styðja við skák- kennslu í skólum Íslands Arkady Dvorkovich, forseti FIDE, hefur þegar fundað með forsætisráðherra og mennta- málaráðherra um mögulegan þátt FIDE í skákkennslu í íslensku menntakerfi. Að auki ræddi hann við Lilju um möguleg hátíðarhöld á Íslandi árið 2022, þegar hálf öld er liðin frá einvígi aldarinnar milli Spasskys og Fischers, sem fram fór í Laugardalshöll árið 1972. Á setningu Reykjavíkurskák- mótsins lýsti Katrín Jakobsdóttir ánægju yfir því að FIDE væri tilbúið að styrkja skákkennslu í skólum hérlendis og bætti við að setning Reykjavíkurskákmótsins markaði hátíðarstund á ári hverju. „Margir minni skákmenn eru ekki að koma hér í fyrsta skipti og sérstaklega margir Þjóðverjar,“ segir Gunnar og bætir við að Hen- rik Carlsen, faðir Magnusar Carl- sens, heimsmeistara í skák, hafi verið skráður á mótið en afskráð sig tveimur dögum fyrir það. „Hann var að vonast eftir að geta verið með en Magnus er að keppa í Azerbaídsjan um þessar mundir,“ segir Gunnar og kveður það skýringuna á fjarveru Henriks. Morgunblaðið/Árni Sæberg Fjölmenni Harpa verður undirlögð á næstu dögum vegna Reykjavíkurskákmótsins. Skákundrabörn setja svip á Reykjavíkurskákmótið  Fyrsta umferð Reykjavíkurskákmótsins hófst í gær  FIDE lýsir yfir áhuga á að styðja skákkennslu á Íslandi Andri Yrkill Valsson yrkill@mbl.is Einstaklingur sem kom fyrir nokk- urs konar njósnatæki í tölvu í Há- skólanum á Akureyri á dögunum, sem nemur það sem slegið er á lykla- borð, komst óséður aftur út með tækið eftir að það fannst. Hólmar Svansson, framkvæmda- stjóri háskólaskrifstofu HA, segir að tækið hafi verið hreinsað eftir að það fannst en því svo komið fyrir aftur í von um að hægt væri að góma við- komandi þegar hann kæmi að vitja um tækið. Til þess að fylgja öllum reglum um persónuvernd varð töf á uppsetningu eftirlitsmyndavéla og í millitíðinni náði viðkomandi í tækið úr vélinni og komst óséður á braut. „Fólk er svekkt að svona óheiðar- leiki viðgangist hér, að verið sé að reyna að stela lykilorðum fólks. Við sáum að þarna inni voru upplýsingar sem hefðu verið viðkvæmar, en náð- um sem betur fer að eyða því öllu svo viðkomandi hafði ekkert upp úr krafsinu,“ segir Hólmar, en tækið sendi ekki frá sér nein gögn heldur þurfti að vitja um þau. Um var að ræða kennaratölvu í opinni kennslustofu í skólanum, svo ekki er hægt að fullyrða að um nem- anda eða starfsmann skólans hafi verið um að ræða. Hins vegar virðist viðkomandi hafa þekkt til á svæðinu og möguleiki hafi verið á því að ná inn á svæði kennara, jafnvel hafa áhrif á einkunnir eða sjá próf á und- an öðrum. Það hafi ekki tekist og Hólmar segir að sennilega sé ekkert hægt að gera nema vara fólk við að skilja tölvur eftir á opnum svæðum. Leiðinlegast sé að hafa ekki náð að góma neinn. Hægt að kaupa slík tæki á slikk „Hér áður fyrr hefði sennilega ekki verið hikað við að henda upp vél og ná þannig mynd af viðkomandi, en í dag þarf að gæta að því að gera slíkt með réttum boðleiðum og að til- gangurinn sé ljós, hvað verður um gögnin og slíkt. Það er auðvitað gott og gilt, en getur þýtt að stundum taka hlutirnir lengri tíma.“ Hólmar segir að til þess að bregð- ast við atvikum sem þessum verði að öllum líkindum smíðað utan um tölv- ur skólans svo ekki verði hægt að stinga minnislyklum eða öðrum tækjum í samband. Nú sé hins vegar þetta tæki í umferð, sem hann segir að auðvelt sé að kaupa fyrir slikk á netinu. Þá sé það þekkt í dag að nota svona tæki til að stela gögnum. Misstu þrjótinn út með búnaðinn  HA náði að hreinsa út viðkvæm gögn Gjaldþrot WOW-air hafði áhrif á þátttakendafjölda Reykjavíkurskákmóts- ins, að sögn Gunnars Björnssonar, forseta Skáksambands Íslands. Að hans sögn þurftu 10 keppendur, sem höfðu pantað flug með WOW air, að aflýsa ferð sinni til landsins og hætta við þátttöku á mótinu. Tilkynnt var um gjaldþrot lágfargjaldaflugfélagsins í lok mars, þegar aðeins tíu dagar voru fram að móti. Þetta setti strik í reikninginn hjá mörgum en Gunnar segir að þátttakan í ár sé engu að síður jafngóð og á undanförnum árum. Færri vegna gjaldþrots WOW NOKKRIR ÞURFTU AÐ AFLÝSA ÞÁTTTÖKU Maxim Baru, sem gegnt hefur starfi sviðsstjóra félagssviðs hjá Eflingu stétt- arfélagi, hefur látið af störfum hjá félaginu. Þetta staðfestir Viðar Þor- steinsson fram- kvæmdastjóri Eflingar í samtali við Morgunblaðið en kveðst ekki geta tjáð sig nánar um starfslok Baru. Samkvæmt heimasíðu Efl- ingar hefur Valgerður Árnadóttir tekið við starfi sviðsstjóra fé- lagssviðs. Í viðtali í fréttablaði Eflingar fyrr á árinu kom fram að Max, eins og hann er kallaður, sé eng- inn nýgræðingur þegar kemur að verkalýðsbaráttu. Hann hafi starf- að fyrir stéttarfélög víða, síðast í Kanada. Sviðsstjóri hættur hjá Eflingu Maxim Baru Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Stærð hrygningarstofns makríls hefur verið endurmetin og er hann nú talinn 77% stærri en samkvæmt niðurstöðum Alþjóðahafrannsókna- ráðsins í fyrrahaust. Stofninn er ekki lengur metinn undir varúðarmörk- um og því líklegt að ráðgjöf ICES um veiðar þessa árs verði endurskoðuð á næstunni, að sögn Guðmundar J. Óskarssonar, fiskifræðings á Haf- rannsóknastofnun, sem sæti á í vinnuhópi ICES. Það gerist þó ekki sjálfkrafa heldur þurfa strandríkin að fara fram á það og hafa fulltrúar þeirra rætt við ICES um þessa stöðu og framhaldið, að sögn Guðmundar. Hrygningarstofninn er nú metinn vera 4,16 milljón tonn, en í haust var hann metinn um 2,35 milljón tonn að stærð. Þegar ráðgjöfin lá fyrir í fyrrahaust komu fram talsverðar efasemdir um niðurstöður stofn- matsins. Í kjölfarið var ákveðið að fara í saumana á líkaninu á vettvangi ICES. Guðmundur segir að við nákvæma skoðun á stofnmatslíkani og gögnum sem eru notuð í því hafi verið gerðar úrbætur með þessu endurmati á stærð hrygningarstofnsins. Hann segir að mat á stofnstærð makríls sé viðkvæmt þar sem tímaseríur sem það byggist á séu tiltölulega stuttar. Umfram ráðgjöf í mörg ár ICES lagði til síðasta haust að heildaraflinn 2019 færi ekki yfir 318 þúsund tonn. Ráðgjöf ICES fyrir síð- asta ár var hins vegar 551 þúsund tonn og var því um að ræða rúmlega 40% samdrátt í tillögum ráðsins um afla. Makrílafli hefur hins vegar í mörg ár verið umfram ráðgjöf, en ekki er samkomulag um stjórnun makrílveiða í NA-Atlantshafi. Makrílstofninn 77% stærri  Alþjóðahafrannsóknaráðið hefur endurmetið stærð hrygningarstofnsins  Er ekki lengur undir varúðarmörkum  Ný veiðiráðgjöf fyrir þetta ár líkleg Ljósmynd/Þorgeir Baldursson Veiðar Makrílvertíð byrjar líklega í júlí, en kvóti hefur ekki verið ákveðinn. Gunnar Björnsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.