Morgunblaðið - 09.04.2019, Side 8

Morgunblaðið - 09.04.2019, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2019 Helga Möller söngkona, semsigraði í Eurovision fyrir rúmum þremur áratugum með Gleðibankanum, í það minnsta í huga Íslendinga, var í léttu spjalli á K100 í gærmorgun.    Þar lýsti húnmeðal annars ánægju með nýjasta framlag Íslands til þessarar tónlist- arhátíðar, en minnti flytjendur þess um leið á að Eurovision væri ætlað til að sameina þjóðir en ekki sundra þeim.    Þetta er ágætábending. Það skortir ekki vettvang til að sundra fólki og þjóðum í dag og sjálfsagt að halda í það sem eykur samkennd og samhug, svo sem Eurovision, Ól- ympíuleika og annað ámóta.    Þá ræddi Helga um heilsufar sittog hitnaði í hamsi. Hún sagði farir sínar ekki sléttar af kynnum af heilbrigðiskerfinu. Hún hafði les- ið áhugaverða umfjöllun sunnu- dagsblaðs Morgunblaðsins um lið- skiptaaðgerð erlendis og sagðist vera að fara í eina slíka eftir að hafa beðið í meira en ár.    Þessa aðgerð hefði að hennarsögn verið hægt að fram- kvæma á Klíníkinni hér á landi fyr- ir 1,2 milljónir en heilbrigðisyfir- völd kysu frekar að láta hana bíða lengi og greiða svo 3 milljónir fyrir aðgerð í Svíþjóð.    Svandís Svavarsdóttir heilbrigð-isráðherra ritaði grein hér í blaðið í gær um að verið væri að stytta biðlista. Það er gott. En hvers vegna er hagkvæmasta og fljótlegasta leiðin ekki valin? Helga Möller Af Hatara og heilbrigðismálum STAKSTEINAR Svandís Svavarsdóttir Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Sr. Ingiberg Jónas Hannesson, fyrrver- andi prófastur og al- þingismaður, lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík 7. apríl síðastliðinn, 84 ára að aldri. Ingiberg fæddist í Hnífsdal 9. mars 1935, sonur hjónanna Hann- esar Guðjónssonar, sjómanns og verka- manns, og Þorsteinu Guðjónsdóttur, hús- móður og verkakonu. Ingiberg varð stúd- ent frá Menntaskólanum að Laug- arvatni 1955 og lauk embættisprófi í guðfræði frá Háskóla Íslands 1960. Að loknu guðfræðinámi var hann ráðinn framkvæmdastjóri blaðsins Frjálsrar þjóðar og vann við blaða- mennsku á vegum þess um nokkurra mánaða skeið. Hann var vígður sóknarprestur 26. júní 1960 og veitt Staðarhólsþing í Dölum þar sem hann þjónaði í 45 ár; og jafnframt Hvammsprestakalli frá 1970. Hann var settur prófastur í Dalaprófasts- dæmi 1969 til 1971 og síðar skipaður prófastur í Snæfellsnes- og Dalapró- fastsdæmi 1976-2005. Ingiberg var varaþingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Vesturlands- kjördæmi 1974-1978 og sat sem slík- ur á Alþingi um nokkurra mánaða skeið og síðan sem al- þingismaður Vestur- lands á árunum 1977- 1978. Ingiberg starfaði sem fréttaritari Morg- unblaðsins frá 1970 til 1994. Ingiberg gegndi margvíslegum félags- og trúnaðarstörfum. Hann sat í nefndum og ráðum m.a. fyrir sveit- arfélagið og kirkjuna; má nefna að hann var formaður barnavernd- arnefndar og áfengis- varnarnefndar til fjölda ára. Hann var formaður skóla- nefndar Laugaskóla í Sælingsdal í 33 ár. Þá var hann formaður Veiði- félagsins Laxins í 30 ár, endurskoð- andi Kaupfélags Saurbæinga um árabil og formaður Ungmenna- félagsins Stjörnunnar í nokkur ár. Ingiberg sat sem fulltrúi á Allsherj- arþingi Sameinuðu þjóðanna 1978 og 1984. Fjöldi greina og hugvekja ligg- ur eftir Ingiberg í ýmsum bókum, blöðum og tímaritum. Eftirlifandi eiginkona Ingibergs er Helga Steinarsdóttir. Börn Ingi- bergs og Helgu eru Birkir, Þor- steinn Hannes, Bragi Jóhann og Sól- rún Helga. Útför Ingibergs fer fram frá Víði- staðakirkju í Hafnarfirði mánudag- inn 15. apríl kl. 13. Andlát Sr. Ingiberg Hannesson Félagsmenn í Grafíu – stéttarfélagi í prent- og miðl- unargreinum, kjósa þessa dagana um tillögu um að félagið verði aðili að Rafiðnaðarsambandi Íslands. Í tilkynningu Grafíu til félagsmanna um at- kvæðagreiðsluna segir að meginástæður áforma um aðild að RSÍ séu tvær. „Annars vegar sú mikla fækkun starfa sem hefur orðið í prentiðnaðinum, og því fækkun félagsmanna sem gerir erfiðara að við- halda þeim réttindum sem stærri verkalýðsfélög bjóða félagsmönnum sínum. Starfandi félagsmenn GRAFÍU eru 721 í dag en heildarfjöldi fé- lagsmanna eru 974. Og hins vegar þau tækifæri sem skapast sem hluti af stærra sambandi til að sinna kjarnaverkefnum fyrir félagsmenn á sama tíma og sótt er fram t.d. með betri þjónustu og betri nýtingu fjármuna.“ Stjórn og trúnaðarráð félagsins hvetja fé- lagsmennina til að styðja aðildina að RSÍ og benda á að með Grafíu innanborðs verði RSÍ sterkasta iðnaðarmannasambandið með um 5.700 greiðandi félagsmenn. Grafía var áður Félag bókagerðarmanna en nafni þess var breytt árið 2015. Félagið á rætur sínar í Hinu íslenska prentarafélagi sem var stofnað 1897 og er elsta stéttarfélag landsins með samfellda sögu. Því nafni var breytt í Félag bókagerðar- manna við sameiningu Hins íslenska prentara- félags, Bókbindarafélags Íslands og Grafíska sveinafélagsins 1980. Árið 2015 var nafni félagsins svo breytt í Grafía til að endurspegla betur störf fé- lagsmanna en grafískir hönnuðir höfðu m.a. sam- einast félaginu um seinustu aldamót. omfr@mbl.is Kjósa um aðild Grafíu að RSÍ  Elsta stéttarfélag landsins með samfellda sögu  Félagsmönnum hefur fækkað

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.