Morgunblaðið - 09.04.2019, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2019
Fagleg þjónusta hjá löggiltum heyrnarfræðingi
Góð
heyrn
glæðir samskipti
Með þeim færðu notið minnstu smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna. Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða,
tvöfalt stærra minni og eru sérlega sparneytin.
Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum tækjum. Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með
takka á tækjum. Eru með rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan hátt, eða með einnota rafhlöður.
ReSound LiNX Quattro
eru framúrskarandi heyrnartæki
Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is
Erum flutt í
Hlíðasmára 19
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Ákvörðun hefur verið tekin um að
hafa lokaða glugga Barnaspítala
Hringsins sem snúa að fram-
kvæmdasvæði við Landspítalann, en
þar fer fram jarðvegsvinna um þess-
ar mundir. Tilteknir gluggar spít-
alans hafa verið festir aftur og óheim-
ilt er að opna svaladyr.
„Gluggunum sem snúa að fram-
kvæmdunum, jarðvegsvinnunni, er
lokað vegna teórískrar hættu á því að
jarðvegsbakteríur geti borist inn þeg-
ar það er svona mikið rót. Þetta er
mjög stíf ákvörðun til að varna þessu
og hættan er afskaplega lítil,“ segir
Ásgeir Haraldsson, yfirlæknir á
Barnaspítala Hringsins, en innan
veggja spítalans hefur verið látið vita
af þessu, m.a. með tilkynningum sem
límdar hafa verið á svaladyr spít-
alans. „Bannað að opna svaladyrnar!
Hætta á að myglusveppur [aspergill-
us] úr jarðvegi berist inn vegna fram-
kvæmda fyrir utan,“ segir á límmið-
unum.
Ævintýri að fylgjast með
Ásgeir segir að ónæmisbældum
sjúklingum, t.d. börnum í krabba-
meinsmeðferð, stafi helst hætta af
jarðvegsbakteríum, en áréttar að að-
eins sé um algjöra varúðarráðstöfun
að ræða.
Landspítalinn hefur á dögunum
kynnt breyttar aðgönguleiðir að spít-
alanum og þurft að gera aðrar ráð-
stafanir vegna framkvæmdanna. Ás-
geir segir að starfsemi
barnaspítalans hafi almennt séð
gengið vel meðan á framkvæmdum
hefur staðið. Á vinnusvæðinu hefur
þurft að gera sprengingar sem fólk á
svæðinu finnur vel fyrir.
„Við starfsfólkið búum við það að
hér titrar allt og skelfur allt tvisvar á
dag. Það þolist alveg þokkalega,“ seg-
ir Ásgeir. „Fyrir krakka, sérstaklega
pínulítið stálpaða og unglinga, þá er
alveg frábært að geta fylgst með
vörubílum, krönum, borum og köllum
í gulum vestum. Það er ævintýri fyrir
marga hérna,“ segir hann.
Loka gluggum spítalans
vegna jarðvegsbaktería
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Barnaspítali Fólki á spítalanum er bent á að opna ekki svaladyr vegna
hættu á því að myglusveppur berist inn vegna jarðvegsframkvæmda.
Varna því að myglusveppur berist inn í Barnaspítala
Hringsins Getur valdið ónæmisbældum skaða
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
„Af því við erum ekki eigendur
hússins mun ég ekki tjá mig um
ástand þess,“ segir Alma D. Möller
landlæknir,
spurð út í myglu
í húsnæði emb-
ættis landlæknis
við Barónsstíg og
flutninga, en
auglýst hefur
verið eftir nýju
húsnæði til leigu.
Óháður mats-
maður lauk við
úttekt á ástandi
húsnæðisins fyrir um tveimur vik-
um og að sögn Ölmu var ákvörðun
tekin um flutninga í kjölfarið og
leigusamningi til ársins 2026 rift á
grundvelli 1. og 3. tl. 60. gr. húsa-
leigulaga. Riftunin er þannig byggð
á því að leigusali hafi ekki bætt úr
annmörkum á hinu leigða húsnæði
og því að húsnæðið hafi spillst
þannig […] að það nýtist eigi leng-
ur til fyrirhugaðra nota eða teljist
heilsuspillandi að mati heilbrigðis-
yfirvalda. Áður höfðu landlæknis-
embættið og húseigandi látið skoða
húsnæðið í sitthvoru lagi, en nið-
urstöður úttektanna stönguðust á.
Því var ákveðið að fá óháðan aðila.
Þorsteinn Steingrímsson húseig-
andi sagði á vef RÚV að myglu og
skemmdir í húsinu væri að rekja til
sóðaskapar og vanrækslu land-
læknisembættisins. Þessu hafnar
landlæknir. „Það er mjög skýrt í
skýrslu matsmanns að þetta hefur
ekkert með okkur að gera,“ segir
Alma.
Tjá sig ekki sem
leigjendur hússins
Alma D. Möller
Samningi rift eftir úttekt matsmanns
Barónsstígur Embætti landlæknis leigði í gömlu heilsuverndarstöðinni.