Morgunblaðið - 09.04.2019, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2019
SMÁRALIND – KRINGLAN
maze Phythagoras
hilla með stoðum.
Verð 12.900,- stk. – margir litir
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Gallabuxur
Kr. 15.900
Str. 36-46 • 5 litir
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum
hyggst í sumar undirbúa og jafnvel
hefja tilraunaveiðar á humri í
gildrur. Humarinn yrði síðan flutt-
ur lifandi úr landi og boðinn við-
skiptavinum á veitingahúsum,
væntanlega að mestu á meginlandi
Evrópu til að byrja með.
Humarkvóti er í sögulegu lág-
marki og kom fram í ræðu sem
Guðmundur Örn Gunnarsson,
stjórnarformaður VSV, flutti á að-
alfundi félagsins í lok síðasta mán-
aðar að þetta væri m.a. gert til að
bregðast við samdrættinum. Fyrir
tæpum tíu árum gerði Vinnslu-
stöðin tilraunir með gildruveiðar.
Þær gengu þokkalega „en við
hvorki þekktum mikið til tilheyr-
andi markaðsmála né höfðum
nægilega góð tengsl við mark-
aðinn,“ sagði Guðmundur í ræðu
sinni.
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson,
framkvæmdastjóri, segir að þessar
veiðar yrðu fyrst og fremst í til-
raunaskyni. Fyrirtækið eigi hum-
argildrur, en það sé ekki nóg að
koma þeim fyrir á líklegum stöðum.
„Þú færð upp lifandi humar, sem
þarf að halda lifandi og selja þann-
ig. Tæknin sem þarf til flutnings er
þekkt, en áður en viðskiptavinur á
veitingahúsi í Evrópu getur valið
sér lifandi humar frá Vinnslustöð-
inni úr búri þurfum við að átta okk-
ur á því hvernig best er að standa
að þessu. Þetta yrðu engar magn-
veiðar og við þyrftum að fá marg-
falt hærra verð fyrir lifandi humar
heldur en frystan til að þetta borgi
sig,“ segir Sigurgeir.
Óþægilega lítið
vitað um ástæður
Í ræðu sinni á aðalfundinum fjall-
aði Guðmundur Örn meðal annars
um brest í loðnuveiðum og hum-
arveiðum og sagði meðal annars:
„Loðnubresturinn lokar vissulega
dyrum hjá okkur, sem við vonum
og trúum að sé tímabundið, en
Vinnslustöðvarfólk kannar þessa
dagana hvaða dyr megi hugsanlega
opna í staðinn og reyna að draga úr
áfallinu sem loðnubresturinn aug-
ljóslega er.
Humarbrestur kemur yfir okkur
á sama tíma, sömuleiðis verulegt
högg fyrir félagið og samfélagið
hér. Sameiginlegt er með humri og
loðnu að óþægilega lítið er vitað um
ástæður þess hvernig komið er.
Reyndar hafa vísindin alls engin
svör við spurningum um hvað eig-
inlega gerðist með humarinn og
hvers vegna.“
Undirbúa veiðar
á humri í gildrur
Yrði fluttur lifandi úr landi
Á flugi Lifandi humar er víða að finna á matseðlum veitingahúsa.
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
Það var greinilegt vor í lofti á höfuð-
borgarsvæðinu um liðna helgi þar
sem veður var bæði bjart og stillt.
Fjölmargir nýttu tækifærið og tóku
fram grillin að nýju eftir veturinn og
starfsfólk bensínstöðva fann vel fyr-
ir því miðað við sölu á gaskútum.
„Það seldist rosalega vel og klár-
aðist að mestu leyti,“ segir Jón
Ingvi Geirsson, verslunarstjóri Olís í
Garðabæ, en viðmælandi sem Morg-
unblaðið ræddi við sagðist hafa ver-
ið einn af um 80 viðskiptavinum sem
endurnýjuðu gaskútinn á stöðinni
síðastliðinn laugardag.
„Það getur passað, salan var í það
minnsta mjög mikil,“ segir Jón
Ingvi, en stöðin var vart undirbúin
fyrir svona góða sölu þar sem nýjar
birgðir af gaskútum koma jafnan
ekki nema aðra hverja viku yfir
vetrartímann og fram undir páska.
Harpa Viðarsdóttir á N1 í Foss-
vogi tekur í sama streng. „Ég klár-
aði alla tíu kílóa plastkútana mað-
ur!“ segir hún og telur líklegt að um
hafi verið að ræða hátt í 20 kúta.
Enginn hafi þó þurft frá að hverfa
þar sem til hafi verið minni kútar,
bæði fimm og níu kílóa. Þá hafi verið
augljóst að veðrið hafði góð áhrif á
viðskiptavini.
„Nú er sumarið komið, sko. Það
er miklu léttara yfir fólki núna,“
segir Harpa.
Bjartsýnin tekur völdin á ný
Einar Long, framkvæmdastjóri
Grillbúðarinnar við Smiðjuveg, tók í
sama streng og Harpa, um að létt
hafi verið yfir fólki í góða veðrinu.
„Það er komin smá bjartsýni í fólk
eftir þetta volæði á undan,“ segir
Einar, en aukinn straumur fólks lá í
verslunina um helgina.
„Þetta er að byrja á þessum árs-
tíma og er svona á hverju ári, fólk
fer af stað þegar vorar og veðrið
batnar. Spáin framundan er mjög
góð, það er vor í lofti,“ segir Einar
Long.
Gaskútarnir kláruðust í
góða veðrinu um helgina
Grillvertíðin er greinilega hafin hjá landsmönnum
Morgunblaðið/Golli
Grillveður Gasgrillin voru víða vakin úr vetrardvala í góða veðrinu sem
ríkti á höfuðborgarsvæðinu um helgina og grillvörur seldust vel.
„Ekki hefur fjölgað mikið hjá WOW,
en þeir eru orðnir um 740,“ segir
Unnur Sverrisdóttir, starfandi for-
stjóri Vinnumálastofnunar, spurð
hvort fleiri fyrrverandi starfsmenn
félagsins hafi sótt um að komast á at-
vinnuleysisskrá. „Þessar tölur eru
fyrir WOW, en svo er 701 umsókn
frá fólki sem hefur starfað hjá öðrum
fyrirtækjum, þannig að það er nú
mikið að gera.“ Vegna fjölda um-
sókna hefur stofnunin hafið skoðun á
því hvort þörf sé á því að fjölga
starfsfólki, að sögn Unnar, sem tek-
ur fram að mest mæði á greiðslu-
stofu atvinnuleysisbóta og í þjón-
ustuveri. Þá verður bætt við
sumarstarfsmönnum og staðan end-
urmetin í haust.
Bundnar eru vonir við að dragi úr
nýjum umsóknum í ljósi þess að
samið var um kjarasamninga nýver-
ið sem gæti leitt til meiri róar á
vinnumarkaði. „Ég á ekki endilega
von um það að allt þetta fólk fari á at-
vinnuleysisbætur,“ segir Unnur og
útskýrir að margir skrái sig atvinnu-
lausa í þeim tilgangi að tryggja sig,
en finni síðan nýtt starf áður en til
þess kemur að þeir þurfi atvinnu-
leysisbætur. „Það eru að koma bestu
mánuðirnir í ráðningum, maí og
júní.“
Hún segir þungann vera á höfuð-
borgarsvæðinu og á Suðurnesjum og
hafa stofnuninni borist rúmlega þús-
und umsóknir frá höfuðborgarsvæð-
inu og 368 af landsbyggðinni, þar af
eru 213 af Suðurnesjum. gso@mbl.is
Fjölga starfsfólki eftir þörf
Um 1.500 umsóknir borist VST um atvinnuleysisbætur
Kolmunna-
veiðar við
Færeyjar
Veiðar íslenskra uppsjávarskipa á
kolmunna hefjast væntanlega aftur í
vikunni. Venus NS fór á sunnudag
frá Vopnafirði áleiðis í færeyska lög-
sögu og áhöfnin á Jóni Kjartanssyni
SU 311 flaug til Færeyja í gær, en
skipið hefur síðustu vikur verið í
Sandavogi í Færeyjum. Fleiri skip
eru í startholunum, en önnur fara
ekki á kolmunna fyrr en eftir páska.
Kolmunni er venju samkvæmt að
ganga inn í færeyska lögsögu þessa
dagana, en það hefur verið nokkuð
árvisst að þar hafa kolmunnaveiðar
byrjað syðst í lögsögunni um 10.
apríl. Mest mega 15 íslensk skip
vera að veiðum í færeyskri lögsögu á
sama tíma. Samkvæmt yfirliti á vef
Fiskistofu eru íslensku skipin búin
að veiða 95 þúsund tonn af kolmunna
í ár og fékkst sá afli allur á alþjóð-
legu hafsvæði vestur af Írlandi.
Samtals eru heimildir ársins rúm-
lega 250 þúsund tonn.
Morgunblaðið/Eggert
Venus Stefndi á Færeyjamið í gær.