Morgunblaðið - 09.04.2019, Síða 12

Morgunblaðið - 09.04.2019, Síða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2019 Sími 555 2992 og 698 7999 Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra Gott fyrir: • Maga- og þarmastarfsemi • Hjarta og æðar • Ónæmiskerfið • Kolesterol • Liðina Læknar mæla með selaolíunni Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð Óblönduð – meiri virkni Selaolía Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni bætta líðan og heilsu. Guðfinna Sigurgeirsdóttir. „Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“ Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á „Sumir fara í tímabundin verkefni á borð við pílagrímaferðir og sólar- landaflug í Evrópu fyrir hin ýmsu fé- lög,“ segir Vignir og nefnir einnig aðspurður að stór hluti flugmann- anna hafi farið í viðtal hjá Cargolux en 60% félagsmanna ÍFF voru Ís- lendingar. Hvað flugstjórana varðar virðast þeir tvístrast í fleiri áttir. Vignir segir aðspurður að það hjálpi til að ÍFF-menn kunni til verka á Airbus-þotum í ljósi vand- ræðanna með Boeing 737 Max-þot- urnar sem enn eru kyrrsettar.„Flug- félög eru væntanlega mikið að nota Airbus núna. Maður finnur það al- veg,“ segir Vignir sem segist enn ekki hafa fengið símtalið frá Skúla Mogensen sem reynir þessa dagana að byggja WOW air upp á nýtt. „Hann verður að hafa hraðar hendur því menn eru að tínast út um allan heim,“ segir Vignir. Í vinnu strax eftir gjaldþrot Að sögn Guðmundar Úlfars Jóns- sonar, formanns flugvirkjafélags Ís- lands, hefur flugvirkjum WOW air gengið vel að finna sér ný störf og bresk ráðningaskrifstofa sendi full- trúa hingað til lands aðeins fjórum dögum eftir gjaldþrot WOW air. „Það eru nokkrir strax komnir í vinnu á Íslandi og voru mættir til vinnu annars staðar á fyrstu dögum eftir gjaldþrot. Aðrir eru komnir með vinnu erlendis. Ekki allir en mjög margir,“ segir Guðmundur við Morgunblaðið. „Íslenskir flugvirkjar eru eftir- sóknarverðir alls staðar í Evrópu og hafa oft meiri réttindi en aðrir flug- virkjar,“ segir Guðmundur. „Þýski markaðurinn er alltaf svo- lítið stór hjá íslenskum flugvirkjum og svo eru það sömuleiðis breskar ráðningaskrifstofur sem annast út- hýst viðhald fyrir ýmis félög,“ segir Guðmundur. Segir hann þó að marg- ir þurfi að ráða sig í ákveðin verkefni erlendis og verði síðan í fríi hér á Ís- landi þess á milli. Út fyrir landsteinana AFP Atvinna 61 flugvirki starfaði hjá WOW air þegar félagið leið undir lok.  Vel hefur gengið hjá flugmönnum, flugstjórum og flugvirkjum WOW air að finna sér ný störf  Fjölmargir hafa farið í viðtal hjá flugfélaginu Cargolux Starfsmenn WOW air » 188 flugmenn og flugstjórar störfuðu hjá WOW air er félag- ið leið undir lok. 60% þeirra eru íslenskir ríkisborgarar. » 61 flugvirki starfaði hjá WOW air þegar flugfélagið varð gjaldþrota. Margir eru þegar komnir með vinnu. BAKSVIÐ Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Flugmönnum, flugstjórum og flug- virkjum sem störfuðu hjá WOW air sem varð gjaldþrota í lok síðasta mánaðar gengur vel að finna sér nýja vinnu en hana er mestmegnis að finna erlendis. Samtals voru 188 flugmenn og flugstjórar starfandi hjá WOW undir það síðasta og 61 flugvirki. Flugfélögin Cargolux, Japan Air og Silk Way Airlines frá Aserbaídjs- an hafa öll borið víurnar í flugmenn WOW air að sögn Vignis Arnar Guðnasonar, formanns Íslenska flugmannafélagsins, ÍFF, sem er stéttarfélag flugmanna WOW air. Hann segir ýmsa vera búna að fara í viðtöl en störfin séu ekki í hendi. „Ekkert í boði hérna“ „En vissulega erum við eftirsóttur starfskraftur. En menn þurfa að fara út fyrir landsteinana. Það er ekkert í boði í hérna,“ segir Vignir í samtali við Morgunblaðið. Það séu þá svo- kallaðir túrar sem séu í boði. Annars þurfi fólk að flytja til útlanda með öllu því sem tilheyrir. „Auðvitað vilja menn búa hér og vinna. Sjálfur sá ég fyrir mér að vera hjá WOW air út starfsferilinn. Það er ekkert grín þegar því er kippt undan manni á einni nóttu,“ segir Vignir. „Bankinn var búinn að gefa það út að hann myndi ekki láta krónuna veikjast vegna útflæðis aflands- króna. Bankinn fór því á móti útflæði aflandskróna hinn 5. mars þegar aflandskrónufrumvarpið tók gildi. Hann greip svo inn í að nýju 26. mars en hann gerði það einnig 28. mars í kjölfar gjaldþrots WOW air.“ Halldór Kári segir að það veki nokkra eftirtekt að síðastnefnda inngripið hafi ekki náð milljarði króna. „Þetta voru um 830 milljónir króna en yfirleitt nema inngripin að minnsta kosti milljarði. Það er í raun for- vitnilegt að ekki hafi þurft meira til að styðja við gengi krónunnar í kjölfar þessara tíðinda.“ Bendir Halldór Kári raunar á að frá því að flug- félagið fór á hausinn hafi gengi krónunnar styrkst um 2,5% en seigla krónunnar undanfarið skýrist vænt- anlega hvað helst af afnámi bindiskyldunnar. Heildarvelta á millibankamarkaði með gjaldeyri nam 235 milljónum evra í marsmánuði en það jafngildir 32,2 milljörðum króna. Veltan hefur ekki verið meiri síðan í júlí árið 2017 en þá nam hún 329 milljónum evra. Af þessari veltu nam inngrip Seðlabanka Íslands jafnvirði ríflega 4,5 milljarða króna. Hlutur Seðlabank- ans í veltu mánaðarins var því 14,1%. Inngrip bankans hafa ekki verið meiri síðan í maí 2017 en þá var bank- inn aftur á móti að draga úr styrkingu. Reyndar stapp- aði inngrip hans í desember síðastliðnum nærri þeirri fjárhæð sem nú varð raunin en þá nam það tæplega 4,5 milljörðum króna. Halldór Kári Sigurðarson, sérfræðingur hjá grein- ingardeild Arion banka, segir að bankinn hafi þrívegis gripið inn í markaðinn í mánuðinum til að styðja við gengi krónunnar. Seðlabankinn beitti 4,5 milljörðum  Krónan styrkst um 2,5% frá falli WOW air í lok mars Morgunblaðið/Golli Millibankamarkaður Heildarveltan nam 32,2 milljörðum í marsmánuði. ● Arion banki hækkaði um 4,23% í 666 milljóna króna viðskiptum í Kauphöll í gær. Langmest var velta með bréf Haga eða 1.397 milljónir. Haggaðist gengi bréfa félagsins þó lítið, hækkaði um 0,34%. Velta með bréf símans nam 618 milljónum króna og hækkuðu bréf félagsins um 1,74%. Marel hækkaði um 1,95% í 271 milljónar króna við- skiptum og Festi hækkaði um 1,28% í 30 milljóna króna viðskiptum. Icelandair Group lækkaði um 1,8% í 167 milljóna viðskiptum. Aðeins eitt annað félag lækkaði í Kauphöll í gær. Það var fasteignafélagið Reitir. Gengi þess seig um 0,13% í 326 milljóna við- skiptum. Arion hækkaði um 4,23% í Kauphöllinni 9. apríl 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 118.68 119.24 118.96 Sterlingspund 155.13 155.89 155.51 Kanadadalur 88.72 89.24 88.98 Dönsk króna 17.846 17.95 17.898 Norsk króna 13.793 13.875 13.834 Sænsk króna 12.778 12.852 12.815 Svissn. franki 118.57 119.23 118.9 Japanskt jen 1.0616 1.0678 1.0647 SDR 164.52 165.5 165.01 Evra 133.23 133.97 133.6 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 164.2735 Hrávöruverð Gull 1288.9 ($/únsa) Ál 1863.0 ($/tonn) LME Hráolía 69.13 ($/fatið) Brent ● Í marsmánuði flutti Icelandair 268 þúsund farþega eða 3% fleiri en í sama mánuði 2018. Framboð félagsins var aukið um 6% frá sama tímabili og leiddi það til þess að sætanýting minnkaði úr 81,9% í 81,2%. Í tilkynningu frá fé- laginu segir að ferðamannamarkaður- inn íslenski hafi verið stærsti markaður félagsins í mars eða 45% af heildar- farþegafjölda. Segir félagið að farþeg- um á þessum markaði hafi fjölgað mest miðað við marsmánuð árið áður eða um 13%. Farþegum Air Iceland Connect fækkaði um 19% í mars frá sama mán- uði í fyrra og voru þeir 23 þúsund. Mun- aði þar mestu að flugi sem boðið var upp á til Aberdeen og Belfast hefur ver- ið hætt. Farþegum Icelandair fjölgaði um 3% í mars STUTT

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.