Morgunblaðið - 09.04.2019, Page 14

Morgunblaðið - 09.04.2019, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Tæknibreyt-ingar hafaverið hrað- ar á liðnum árum, ekki síst á sviði fjölmiðlunar sem hefur skilað sér í hraðari og meiri straumi upplýsinga til almenn- ings en nokkurn tímann fyrr í sögunni. Hraðinn er raunar orðinn slíkur og áreitið svo mikið og stöðugt að talið er að þetta kunni að hafa ófyrir- sjáanleg áhrif á almenning og hafi þegar haft neikvæð áhrif á andlega heilsu. Þetta eru von- andi skammtímaáhrif sem fjara út eftir því sem fólk lærir að stýra tækninni í stað þess að láta tæknina stýra sér. Þá má einnig vonast til að eftir standi betri og meiri upplýs- ingar sem gagnist fólki og þar með þjóðfélögum í heild sinni að þroskast og þróast á já- kvæðan hátt. Í öllu þessu umróti er aug- ljóst að þýðing hefðbundinna, vandaðra og ritstýrðra fjöl- miðla er síst minni en áður. Segja má að enn brýnna sé en áður, þegar hraðinn var minni, að einhverjir séu til sem taki að sér að greina hismið frá kjarnanum og tryggja eftir fremsta megni að almenningur hafi aðgang að réttum upplýs- ingum. Morgunblaðið hefur alla tíð sinnt þessu hlutverki og lagt áherslu á vönduð fréttaskrif og fréttaskýringar auk þess að hafa í ritstjórnargreinum skoðanir á ýmsu því sem rætt er hér á landi og annars staðar. Þá hefur það verið lifandi vett- vangur skoðanaskipta og flests þess sem skiptir landsmenn máli, hvort sem það er af alvar- legra tagi eða skemmtiefni og afþreying. Allt er þetta mikilvægt og verður verkefni Morgunblaðs- ins hér eftir sem hingað til, en eins og áherslur hafa breyst í gegnum tíðina taka þær breyt- ingum í dag og munu án efa gera það áfram eftir því sem tíminn krefst. Í blaði dagsins sjá dyggir lesendur þess nokkrar breyt- ingar, ekki stórvægilegar þó, en þróun sem ekki er ólík því sem hefur verið að gerast í löndunum í kringum okkur. Eitt af því er til dæmis að íþróttaefnið er ekki lengur í sérstöku blaði heldur hluti af aðalblaðinu og þá hafa orðið tilfærslur og breytingar á ein- stökum efnisþáttum. Með þessum breytingum eykst sveigjanleiki í rekstri og vinnslu blaðsins og betri tök eru á að leggja áherslu á það sem brýnast er hverju sinni. Þetta þýðir að blaðið getur eftir sem áð- ur sinnt mikil- vægum umfjöll- unarefnum af þeirri yfirsýn og umfangi sem lesendur þess þekkja og kunna vel að meta. Annað sem nýlega var gert til að bæta rekstur blaðsins er að útgáfufélag þess, Árvakur hf., keypti meirihluta í dreif- ingarfyrirtækinu Póstmiðstöð- inni ehf. sem meðal annars dreifir Fréttablaðinu. Með þessu var, jafnframt því að skjóta styrkari stoðum undir reksturinn, tryggt betur að dreifing til áskrifenda yrði sem öruggust hér eftir sem hingað til. Nú stendur samein- ing dreifikerfanna yfir og hafa sumir áskrifendur orðið fyrir óþægindum af þeim sökum. Morgunblaðið biðst velvirð- ingar á því og keppist við að laga hratt og vel þá hnökra sem upp hafa komið. Hluti af þeim breytingum sem segja má að tíminn krefj- ist af fjölmiðlum er að nálgast notendur sína á fleiri máta en áður. Í þessu skyni hóf Árvak- ur snemma að gefa út frétta- og afþreyingarvefinn mbl.is, sem hefur vaxið og dafnað og er fyrir löngu orðinn fastur punktur í tilveru langflestra landsmanna og mest lesni vef- ur landsins. Árvakur hefur einnig hafið útvarpsrekstur til að koma efni sínu á framfæri við stærri hóp og hefur K100 vaxið jafnt og þétt frá því að útsendingar hófust á vegum Árvakurs fyrir rúmum tveimur árum. Þá er áhersla lögð á að koma efni Morgunblaðsins til áskrif- enda með fjölbreyttari hætti og margir sem nýta sér aðgang að Mogganum sínum hvenær sem er og hvar sem þeir eru staddir í veröldinni. Þannig hefur blaðið og efni þess verið gert aðgengilegt á snjall- tækjum og símum, hluti þess hefur verið gerður aðgengileg- ur með Hljóðmogganum fyrir þá sem eru á ferðinni eða hafa af öðrum ástæðum ekki að- stæður til að lesa, auk þess sem efnið hefur nýlega verið gert aðgengilegra á mbl.is. Allt er þetta gert í því skyni að auka þjónustu við áskrif- endur og tryggja þeim greiðan aðgang að Morgunblaðinu því eins og áður sagði eru rit- stýrðir og vandaðir miðlar á borð við þá sem Árvakur gefur út helsta trygging almennings fyrir því að eiga aðgang að réttum upplýsingum. Morgunblaðið þróast en leggur jafnan áherslu á að greina hismið frá kjarnanum} Ekki eru allar upplýsingar eins Þ að var áhugavert að fylgjast með umfjöllun Landans á RÚV um liðna helgi um ungmennaráð Suð- urlands. Af þeim áhugaverðu mál- efnum sem unga fólkið á Suður- landi fjallaði um nefndi það skatta sérstaklega. Einn viðmælandi þáttarins hafði orð á því að það vantaði aukna fræðslu um skatta. Ungt fólk áttaði sig á því þegar það færi að vinna að það væri búið að taka stóran hluta launa þeirra í skatt. Það bregður sjálfsagt öllum sem koma nýir inn á vinnumarkaðinn þegar þeir skoða launa- seðilinn sinn. Stór hluti teknanna er tekinn í skatt og launþegar meðhöndla aldrei þá upp- hæð. Það er að vísu nokkuð sem mætti skoða, hvort ekki sé réttara að launþegar fái útgreidd brúttólaun sín og standi sjálfir skil á skatt- greiðslum. Þannig kann að vera erfiðara fyrir hið opinbera að hækka skatta. Ég hef lagt fram þings- ályktunartillögu þar sem hvatt er til þess að hið opinbera, bæði stofnanir og fyrirtæki, aðgreini skiptingu útsvars og tekjuskatts á launaseðlum starfsmanna sinna til að varpa betra ljósi á það hvernig skattheimtu er háttað. Það er rétt hjá unga fólkinu á Suðurlandi að það vantar meiri fræðslu um skatta. Þeir sem fylgdust með öðrum þætti á RÚV vikuna áður, Silfrinu, fengu þar kennslu- stund í því hvernig maður ætti ekki að horfa til skatta og skattheimtu. Í umræðu um stöðu ferðaþjónustunnar ítrekaði Oddný Harðardóttir, þingflokksformaður Sam- fylkingarinnar, fyrri stefnu flokksins um að hækka skatta á þessa mikilvægu atvinnu- grein. Oddný, sem er fyrrverandi fjár- málaráðherra, sagði að ferðaþjónustan nyti enn skattaafsláttar þar sem meginþorri henn- ar væri í neðra þrepi virðisaukaskatts. Hún lét þess ógetið að ferðaþjónustan greiðir, ein út- flutningsgreina, virðisaukaskatt og skilar þannig umtalsverðu fjármagni í ríkiskassann. Hún lét þess líka ógetið að störf í ferðaþjón- ustu hafa nær tvöfaldast á innan við áratug sem aftur skapar hinu opinbera tekjur, að ónefndum öllum óbeinu áhrifunum sem ferða- þjónustan hefur til hins betra á íslenskt efna- hagslíf. Það væri hægt að halda langa tölu um það hversu miklar tekjur ferðaþjónustan skapar opinberum aðilum í núverandi skatta- umhverfi. Það viðhorf sem birtist til skatta er sem fyrr segir ekki síður dýrmæt lexía um það hvernig maður ætti ekki að horfa á skattheimtu. Það er rangt að líta á innheimtu á neðra þrepi virðisaukaskatts sem skattaafslátt eða einhvers konar opinberan styrk, sér- staklega þar sem útflutningsgreinar (sem ferðaþjónustan er) greiða almennt ekki virðisaukaskatt. Það er vond kennslustund ef skilaboðin eru þau að öll skattheimta undir 100% sé gjöf frá ríkinu. Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Pistill Vond kennslustund Höfundur er formaður utanríkismálanefndar og ritari Sjálfstæðisflokksins. aslaugs@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Fjármála- og efnahagsráðu-neytið fellst ekki á þærhugmyndir SeðlabankaÍslands og fleiri aðila að verðandi Þjóðarsjóður verði hýstur í Seðlabankanum eða í vörslu bank- ans sem hluti af gjaldeyrisforða bankans. Eins og greint var frá hér í blaðinu fyrr í vetur setti Seðlabank- inn m.a. fram þá skoðun í umsögn við frumvarp fjármála- og efnahags- ráðherra að það gæti bæði verið heppilegt og hagkvæmt ef Seðla- bankinn sæi um daglegan rekstur og umsýslu Þjóðarsjóðsins. Í frum- varpinu er hins vegar gengið út frá því að öllum rekstri sjóðsins verði útvistað til einkaaðila. Fjármála- og efnahagsráðu- neytið hefur nú svarað marg- víslegum ábendingum og gagnrýni á frumvarpið með nýju minnisblaði til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis. Ráðuneytið er t.a.m. ósammála þeirri skoðun í umsögn Seðlabankans að markmiðið með stofnun Þjóðarsjóðsins séu sum þau sömu og búa að baki vörslu gjald- eyrisvaraforða Seðlabankans. „Ráðuneytið lítur ekki svo á að gjaldeyrisvaraforða á vegum Seðla- bankans hafi verið haldið úti til að mæta áföllum á borð við alvarlegar afleiðingar sjúkdómsfaraldurs, vist- kerfisbrests eða náttúruhamfara, sem Þjóðarsjóði er ætlað að mæta,“ segir á minnisblaði ráðuneytisins. Stærð og handbærni gjaldeyr- isforðans lúti öðrum þjóðhagslegum viðmiðum en eigi við um Þjóðarsjóð, enda hlaupi kostnaður við forðann á annan tug milljarða króna árlega þar sem ávöxtun af honum sé afar lítil. Þá geti breytingar á gengi krónunnar haft mikil áhrif til lækk- unar eða hækkunar. ,,Fremur virðist þá koma til álita að skoða hvort draga mætti úr umfangi forðans og kostnaði við hann. Loks er vandséð að til þess gæti komið að tekjutap eða útgjöld ríkissjóðs af mótvægisráðstöfunum í kjölfar efnahagsáfalls, t.d. vegna alvarlegs mengunarslyss á fiskimið- unum, væru greidd úr gjaldeyr- isforða Seðlabankans,“ segir ráðu- neytið. Þjóðarsjóðurinn á að vera vörn fyrir þjóðina ef stórfelld áföll ríða yfir og til hans eiga að renna tekjur ríkisins af arðgreiðslum og auð- lindaafnotagjöldum orkuvinnslufyr- irtækja. Talið er að arðgreiðslur Landsvirkjunar gætu á nokkrum ár- um orðið 10-20 milljarðar kr. á ári. Á nýafstöðnum aðalfundi Landsvirkj- unar var samþykkt að greiða 4,25 milljarða kr. í arð til eigendanna. Umsýsla lánsfjármála ríkis frá Seðlabanka til ráðuneytis Ráðuneytið telur ekki heppilegt að fela bankanum umsýslu Þjóðar- sjóðsins, verkefnin tilheyri ekki hlutverki hans við framfylgd pen- ingastefnu og fjármálastöðugleika og óþarft sé að hann verði milliliður fyrir ráðuneytið ,,í umgjörð sem ætlunin er að verði fremur einföld og skilvirk í sniðum“. Í umfjöllun ráðuneytisins á minnisblaðinu til þingnefndarinnar er vikið að því að ráðuneytið hafi fal- ið Seðlabankanum með samningi að hafa umsýslu með lánsfjármögnun ríkissjóðs. Nú sé verið að endur- meta þann samning í ljósi reynsl- unnar. ,,Þegar hefur verið ákveðið að færa samskipti við lánshæfis- fyrirtæki til ráðuneytisins. Á árinu verður einnig til skoðunar að um- sýsla með lánsfjármálum ríkissjóðs og upplýsingamiðlun um hana færist aftur til ráðuneytisins eða til stofn- unar á vegum þess,“ segir á minnis- blaðinu. Áföllum ekki mætt með gjaldeyrisforða Morgunblaðið/Ómar Seðlabankinn Ráðuneytið segir stærð og handbærni gjaldeyrisforðans lúta öðrum þjóðhagslegum viðmiðum en eiga við um Þjóðarsjóðinn. Fjármála- og efnahagsráðu- neytið vísar á bug þeim skoð- unum í umsögnum að í stað varúðarsjóðs gæti þjóðin stað- ið af sér áföll með því að grípa til gjaldeyrisforðans, lántöku og með atbeina öflugra lífeyrissjóða. „Lífeyrismál landsmanna væru í uppnámi ef verja ætti t.d. þriðjungi eigna lífeyrissjóða til að mæta af- leiðingum efnahagsáfalls eða vistkerfisbrests, sem væri reyndar óheimil eignaupptaka samkvæmt lögum,“ segir í at- hugasemdum við umsögn Við- skiptaráðs. ,,Ríkið hefur engan umráðarétt yfir eignum lífeyr- issjóða landsmanna og getur ekki ráðstafað þeim í kjölfar áfalls, enda fæli það í sér eignaupptöku. Lífeyrisréttindi í lífeyrissjóðum eru stjórnar- skrárvarin eignaréttindi,“ segir um umsögn Frosta Sigurjóns- sonar að við áfall gæti ríkið gripið til fjármuna lífeyrissjóða eða gjaldleyrisforðans. Ráðstafa ekki lífeyrissjóðum SVARA GAGNRÝNI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.