Morgunblaðið - 09.04.2019, Side 17
UMRÆÐAN 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2019
Ýmsir hafa tjáð sig í
fjölmiðlum síðustu
daga og hafa viljað
greina ástæðurnar
fyrir falli WOW. Fyrir
mér hafa margir með
þessum greiningum
verið að leita langt yf-
ir skammt.
Í viðtali við Morg-
unblaðið 31.3. 2019
virtist helzti punktur
Gylfa Zoëga prófessors – sem þó
hefur fjallað um krónuna og gjald-
miðlamálin af mikilli þekkingu og
skynsemi – verið sá að ef höf-
uðstöðvar WOW hefðu verið er-
lendis hefði mátt bjarga félaginu
þar sem með þessum hætti hefði
íslenzk vinnulöggjöf og íslenzkir
kjarasamningar ekki gilt. Auðvit-
að er nokkuð til í þessu en í mín-
um augum er þetta þó ekki aðal-
atriðið.
Fyrrverandi stjórnarmaður í
WOW, Ben Baldanza, reyndur
maður í flugvélarekstri, kemur
líka með sína greiningu. Hann tel-
ur upp fimm rekstraratriði sem
hefðu mátt betur fara, sem eflaust
er rétt, en sér samt greinilega
ekki heldur skóginn fyrir trjánum.
Aðrir kenna miklum sveiflum í
eldsneytisverði og háum íslenzk-
um launakostnaði um. Hér verður
þó að hafa í huga að hækkun elds-
neytiskostnaðar bitnar á öllum
flugfélögum með svipuðum hætti
og hefur hún því ekki bein áhrif á
samkeppnisstöðu og með góðri
starfsmannastýringu tókst WOW
að halda launakostnaði félagsins
mjög niðri.
Hann var t.a.m. 18% síðasta
eðlilega rekstrarárið, 2017, en þá
var hann 31% hjá Icelandair. Hér
er aftur um rétt atriði að ræða
sem nokkurt vægi hafa en þetta
eru samt heldur ekki aðalatriðin.
Rekstur WOW byggðist að
mestu á tekjum í dollurum, en
stærsti hluti gjalda var í íslenzk-
um krónum. Er því ljóst að gengi
dollars gagnvart krónu hafði af-
gerandi þýðingu fyrir þróun,
rekstur og afkomu félagsins.
Á árunum 2012 til 2016 sveifl-
aðist gengi krónunnar gagnvart
dollar á bilinu 120 til 130 krónur í
dollar. Meðalgengi þessi fimm ár
var stöðugt; um 123 krónur í doll-
ar. Var því eðlilegt að far-
gjaldastýring félagsins í dollurum
svo og rekstrar- og afkomu-
áætlanir byggðust á þessu gengi.
Einhvern veginn er það svo að
sú von virðist seint deyja að loks
komist stöðugleiki í krónuna enda
eiga menn með rekstur hér ekki
marga aðra kosti.
En svo gerist það 2017 að svika-
tólið krónan hleypur enn einu
sinni óvænt út undan sér; doll-
arinn hrekkur allt í einu niður í
um 105 krónur í dollar að með-
altali. Krónutekjur félagsins
lækka um 15%, nánast
eins og hendi sé veif-
að og án þess að fé-
lagið gæti með nokkr-
um hætti fengið rönd
við reist.
Flest stærri félög
sem eru í alþjóðlegum
rekstri og samkeppni
stefna á 10% tekju-
afgang fyrir afskriftir,
fjármagnskostnað og
skatta. Meira leyfir
hörð alþjóðleg sam-
keppni yfirleitt ekki.
Þetta endar oft í því að hreinar og
endanlegar rekstrartekjur verða
2-4% af brúttóveltu. 15% tekjutap
á ársgrundvelli er því heiftarlegt
högg. Sérstaklega fyrir nýtt félag
sem er í uppbyggingu og hefur enn
ekki náð að mynda sterka eigin-
fjárstöðu. Auðvitað nær þetta
tekjutap ekki til gjalda í dollurum
en það leggst af fullum þunga á
launakostnað og allan innlendan
kostnað sem virðist t.a.m. 2016-
2017 hafa verið um eða yfir tveim-
ur þriðju af heildargjöldum.
Árið 2017 aflaði félagið tekna
upp á 486 milljónir dollara. Ef
gengið hefði verið 123 krónur í
dollar, eins og það var að meðaltali
árin fimm þar á undan, hefðu
tekjur WOW í krónum orðið 59,8
milljarðar það ár.
En þar sem raungengi WOW
það ár var ekki nema 107 krónur í
dollar varð veltan í krónum ekki
nema 52 milljarðar króna, í stað
59,8 milljarða. Þannig varð WOW
fyrir tekjutapi upp á 7,8 milljarðar
króna bara af því að krónan sveik.
Ef dollar/krónugengið hefði
haldist svipað 2017 og árin fimm
þar á undan hefði WOW hagnast
um 5,4 milljarða króna árið 2017 en
vegna „svika“ krónunnar varð fé-
lagið að taka á sig tap upp á 2,4
milljarða króna.
Þetta tap, sem fór að brenna á
félaginu í vaxandi mæli 2018 og
komst svo í algleyming og vaxandi
neikvæða fjölmiðlaumræðu í fyrra-
sumar/haust, varð svo upphafið að
endinum hjá þessu ágæta félagi en
svikatólið krónan felldi það svo
endanlega á dögunum.
Ef hér hefði verið evra eða doll-
ar, ekki króna, væri WOW enn í
fullu fjöri, sennilega á hraðri frek-
ari uppleið, ekki bara eigendum og
starfsmönnum WOW, heldur líka
öllum landsmönnum og merkinu
Ísland, til góðs.
Krónan felldi WOW
Eftir Ole Anton
Bieltvedt
»En svo gerist það
2017 að svikatólið
krónan hleypur enn
einu sinni óvænt út und-
an sér; dollarinn hrekk-
ur allt í einu í um 105
krónur að meðaltali.
Ole Anton Bieltved
Höfundur er alþjóðlegur kaupsýslu-
maður og stjórnmálarýnir.
Kjarni kærleikans
er hjarta Guðs sem
breytir refsingu í fyr-
irgefningu, vonleysi
og myrkri í von og ei-
líft líf. Hann er ljósið
í heiminum. Höfundur
himins og jarðar, lífs-
ins, kærleikans, von-
arinnar og friðarins.
Hann sem er ljósið
sem blásið var á en
logar nú blítt og yljar
og vermir þeim sem í það leita.
Uppspretta lífsins
Kærleikans Guð vill nefnilega fá
að veita okkur að teyga af lind
hins sanna lífs sem aldrei tekur
enda. Fá að dreypa af þeirri kær-
leikslind sem aldrei þornar upp.
Er sí fersk, svalandi og lífgefandi.
Hann býður okkur að nærast af
sínu lífsins vatni og endurnærast
svo við komumst af. Hann vill líka
að við njótum þess að bera gefandi
ávöxt í lífinu. Jafnvel margfaldan
ávöxt, svo fleiri fái notið ávaxtanna
sem hann vill prýða okkur með.
Ávaxta sem blessa náungann og í
umhverfinu. Ávaxta
kærleika og vonar,
fyrirgefningar og frið-
ar.
Það er svo und-
ursamlegt að fá að
ausa án afláts af þeim
lífsins brunni sem við
flest þráum. Að teyga
þakklát úr þeirri lind
hjálpræðisins.
Leyndardómur
Kærleikurinn sem
er æðstur allra dyggða
er himneskur leynd-
ardómur gjafar Guðs til mín og til
þín. Við erum að tala um kærleik-
ann sem sér í þér og í mér eilífðar
verðmæti. Kærleikann sem veitir
þann frið sem enginn annar getur
veitt. Kærleikann sem enginn skil-
ur en allir mega og geta upplifað.
Meðtekið, hvílt í og notið.
Með kærleikann sem á upp-
sprettu í hinni sönnu og eilífu lind
lífsins að vopni, verður nefnilega
allt eitthvað svo miklu ljúfara,
áhyggjulausara, notalegra, þægi-
legra og betra. Þá tökum við að sjá
okkur sjálf og samferðamennina
með augum hins lífgefandi kær-
leika.
Í augum Guðs ert þú nefnilega
ekki eitthvað sem var. Heldur
verðmæti sem eru og munu verða.
Sama hvað.
Algóður Guð býðst til að anda
ferskum blæ kærleika síns á þig
svo þú fáir notið og hreinlega kom-
ist af.
Látum því eftir okkur að elska
okkur sjálf og hvert annað svo
ljómi kærleikans fái stafað geislum
sínum yfir okkur og allt okkar og
þeirra sem á vegi okkar verða.
Með vonarríkri kærleiks- og
friðarkveðju og þakklæti fyrir að
fá að vera með.
Lifi lífið!
Kjarni kærleikans
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson »Kærleikans Guð vill
veita okkur að teyga
af lind hins sanna lífs
sem aldrei tekur enda.
Fá að dreypa af þeirri
kærleikslind sem aldrei
þornar upp.
Sigurbjörn
Þorkelsson
Höfundur er ljóðskáld
og rithöfundur og aðdáandi lífsins.
SVALALOKANIR
Svalalokanir frá Glerborg eru nýtískulegar
og falla vel að straumum og stefnum
nútímahönnunar.
Lokunin er auðveld í þrifum þar sem hún opnast inná við.
Hægt er að fá brautirnar í hvaða lit sem er.
Svalalokun verndar svalirnar fyrir regni, vindi og ryki og eykur
hljóðeinangrun og breytir notkun svala í heilsársnotkun.
Glerborg
Mörkinni 4
108 Reykjavík
565 0000
glerborg@glerborg.is
www.glerborg.is
2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG
FÁÐU TILBOÐÞÉR AÐKOSTNAÐAR-LAUSU
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma