Morgunblaðið - 09.04.2019, Page 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2019
✝ GuðbrandurÞórðarson
fæddist í Hergilsey
á Breiðafirði 24.
október 1933. Hann
lést á Dvalarheimil-
inu Barmahlíð,
Reykhólum, 27.
mars 2019.
Foreldrar hans
voru hjónin Þórður
Valgeir Benjamíns-
son, fæddur í Flatey
á Breiðafirði 2. ágúst 1896, d. 10.
nóvember 1985, bóndi í Hergils-
ey og í Flatey og síðar verkamað-
ur í Stykkishólmi, og Þorbjörg
Sigurðardóttir, fædd á Brjáns-
læk á Barðaströnd 26. október
1899, d. 27. mars 1987.
Guðbrandur var 11. í röð 16
systkina: Valborg Elísabet, Sig-
urður, Dagbjört Guðríður, Björg
Jóhanna, Auður, Benjamín, Guð-
mundur Sigurður, Ari Guð-
mundur, Sigríður Hrefna, Jó-
hannes, Ásta Sigrún, Ingunn,
Gunnar, Gunnar Þórbergur og
Sigurbjörg.
Guðbrandur kvæntist Mörtu
Þorsteinsdóttur frá Jörva í
Haukadal. Börn Guðbrands og
Mörtu: 1) Margrét, f. 9. mars
1957, gift Stefáni Bjarnasyni.
Börn þeirra: a) Bjarki Elvar,
f.1977, kvæntur Emelíu Braga-
börn þeirra: Halldór Logi, and-
vana fæddur, Sóley Þrá. c)
Brynjar Örn, f. 1988. d) Tómas
Freyr, f. 1992. Börn Bjarnheið-
ar: a) Sunnefa, f. 1987, gift Ósk-
ari Erni Eggertssyni, dóttir
þeirra Elísabet Freyja. b) Máni,
f. 1996. c) Dagur, f. 2001. 5) Þor-
steinn, f. 7. mars 1968, kvæntur
Theodóru Skúladóttur, börn
þeirra: Hafsteinn Andri, f. 1991,
og Dagbjört Lilja, f. 1995.
Guðbrandur ólst upp í
Hergilsey og síðar í Flatey á
Breiðafirði. Hann fór ungur að
vinna fyrir sér, má þar t.d. nefna
byggingarvinnu við frystihúsið í
Flatey, vertíð í Stykkishólmi og
Ólafsvík og síldarvertíð á Siglu-
firði. Hann fór 17 ára suður og
vann um tíma í byggingarvinnu í
Reykjavík, frystihúsi í Keflavík
og á Keflavíkurflugvelli hjá
hernum. Hann flutti snemma árs
1955 í Dalina, þá 21 árs og bjó
þar alla tíð síðan. Hann starfaði
lengst af hjá Kaupfélagi
Hvammsfjarðar í Búðardal við
verslunarstörf. Hann stofnaði
nýbýli með Mörtu úr landi Jörva
sem var nefnt Jörvi 2. Hann
byggði þar upp stóra hlöðu og
ræktaði upp tún sem þóttu stór á
þeim tíma, auk þess var hann
stoð og stytta tengdaforeldra
sinna við búskapinn að Jörva.
Hann fór út í Flatey bæði að vori
og hausti að aðstoða foreldra
sína við nýtingu hlunninda í Her-
gilsey.
Útför Guðbrands fer framfrá
Fríkirkjunni Hafnarfirði í dag,
9. apríl 2019, klukkan 13.
dóttur, börn þeirra:
Sigríður Margrét,
Þórdís Unnur og
Stefán Bragi. b) Hel-
ena Marta, f. 1983,
gift Teiti Birgissyni,
dóttir þeirra Bryn-
hildur Björk. c)
Svanberg Addi, f.
2002. 2) Þorbjörg, f.
5. nóvember 1959,
gift Þórði Pálssyni,
börn þeirra: a) Em-
ilía, f. 1977, gift Magnúsi Hjalte-
sted. Börn þeirra: Sól, Elísa, Lár-
us og Þórður. b) Marta, f. 1980,
gift Guðna Rafni Eiríkssyni. Börn
þeirra: Bryndís, Þórður, Þor-
steinn Óli og Þór. c) Guðbrandur,
f. 1987, d. 2. maí 1990. d) Ólafur,
f. 1991. e) Hergils, f. 1993. 3)
Svanberg, f. 14. nóvember 1962,
kvæntur Þóru Skúladóttur. Son-
ur Svanbergs, Ragnar Hrafn, f.
1982. Börn Þóru: Birna, f. 1970,
og Ragnar, f. 1980. Þóra á þrjú
ömmubörn: Emmu, Róbert og
Andreu og tvö langömmubörn:
Nellie og Aliciu. 4) Reynir, f. 12.
febrúar 1964, kvæntur Bjarn-
heiði Jóhannsdóttur. Synir Reyn-
is: a) Sævar Már, f. 1983, kvæntur
Hrafnhildi Ægisdóttur, börn
þeirra: Ægir Þór og Katrín
María. b) Oddur Logi, f. 1986, trú-
lofaður Heklu Björk Jónsdóttur,
Elsku pabbi minn er farinn frá
okkur. Hann hefur verið lélegur til
heilsunnar síðustu árin og
mamma hefur passað einstaklega
vel upp á hann. Það var okkur fjöl-
skyldunni þungbært að hann, sem
var alltaf boðinn og búinn að
hjálpa öllum, þyrfti svo að verða
fyrir því að það væri hvergi pláss
fyrir hann í sinni heimabyggð þeg-
ar hann var orðinn of veikur til að
vera heima. Ég vil færa starfsfólk-
inu á Barmahlíð bestu þakkir fyrir
þá umönnun sem hann fékk hjá
þeim þessar síðustu vikur.
Pabbi var hörkuduglegur til
vinnu og féll sjaldan verk úr hendi,
vann langan vinnudag, tók sér
aldrei sumarfrí og leysti þau verk-
efni af alúð sem hann tók að sér.
Hann talaði aldrei illa um fólk og
var alltaf til í að aðstoða þá sem
leituðu til hans.
Það var alltaf gaman að fylgjast
með pabba í vinnunni, en hann
vann í pakkhúsi Kaupfélags
Hvammsfjarðar í fjöldamörg ár.
Fyrst þar sem Leifsbúð er núna,
en svo flutti það uppeftir og þá var
mikið pláss og mjög gaman að
fylgjast með þegar verið var að af-
greiða bændur með alla mögulega
hluti svo sem byggingarvörur,
fóðurvörur og áburð. Fyrir tíma
lyftaranna var mikið puð að tæma
vöruflutningabíla og vinna í upp-
skipun þegar flóabáturinn Baldur
kom í Búðardal með vörur.
Pabbi var mjög gestrisinn og
tók iðulega bændur heim í hádeg-
inu sem komu langt að en það var
ekki sími heima á þeim tíma svo
hann gat ekki látið mömmu vita.
Hún eldaði því alltaf fyrir nokkra
aukalega í hádeginu. Það voru
engir barnastólar til heima og ég
man eftir pabba sitja með bræður
mína hvorn á sínu lærinu og bita
matinn ofan í þá og mata þá líka.
Þegar pabbi var ekki í vinnunni
var hann iðulega að hjálpa öðrum
eða ömmu og afa á Jörva en hjá
þeim var ég í sveit frá sex til 15
ára. Ég sat oft á Massey Fergu-
son-inum hjá honum þegar hann
var að vinna hin ýmsu sveitastörf
á Jörva. Ég man oft eftir að hafa
fylgst með bílum sem voru á leið
fram Haukadalinn og beið spennt
eftir að pabbi kæmi því þá gat ég
skottast með honum og lært að
umgangast vélarnar og hrossin og
ýmislegt annað. Þær gátu orðið
langar vikurnar í sveitinni ef pabbi
kom ekki. Við fórum stundum að
veiða saman í Haukadalsvatni eða
ánni.
Pabbi hafði mörg áhugamál og
var virkur í félagsstarfi í Búðar-
dal. Hann var kirkjurækinn en
átti það til að sofna í kirkjunni og
fór þá gjarnan að hrjóta en það
fannst mömmu ekki mjög
skemmtilegt afspurnar svo hún
vildi ekki alltaf fara með.
Pabbi var mjög ættrækinn og
gladdist mjög þegar eitthvað af
fólkinu hans kom í heimsókn. Við
heimsóttum líka afa og ömmu í
Stykkishólmi. Við krakkarnir sát-
um aftur í Landrover-num sem
passaði vel fyrir sjö manna fjöl-
skylduna. Þetta var töluvert
ferðalag á þeim tíma og vegirnir
frekar lélegir. Í Hólminum heim-
sóttum við systkini hans og for-
eldra og þáðum veitingar hjá öll-
um. Það var einstaklega gaman að
koma með honum út í Flatey og
læra að veiða lunda, skarf og
þorsk og fara í allar eyjarnar í
dúntekju og heyra um lífið þegar
hann var að alast upp þar.
Ég mun alltaf geyma með mér
allar góðu minningarnar um þig.
Þín dóttir
Margrét.
Pabbi flutti snemma árs 1955 í
Dalina, þá 21 árs og bjó þar alla tíð
síðan. Hann kom með rússneska
kassamyndavél með sér sem hann
keypti sér þegar hann var yngri.
Það voru ófáar myndirnar sem
teknar voru á þessa vél næstu ár-
in. Hann tók bílpróf 17 ára og
keypti sér vörubíl með mági sín-
um í Stykkishólmi sem sá um bíl-
inn þar. Hann keypti sér Willy’s-
jeppa um 1960 en áður fór hann á
milli Búðardals og Jörva á drátt-
arvélinni. Seinna keypti hann sér
Landrover og átti hann alls þrjá
svoleiðis bíla næstu árin.
Árið 1956 keyptu pabbi og
mamma hús í Búðardal, Bogahús
(Thomsenshús), en þar bjuggu þau
til ársins 1967, þá fluttu þau í nýtt
hús í Búðardal sem þau keyptu fok-
helt og gerðu það íbúðarhæft. For-
eldrar pabba og bræður aðstoðuðu
þau mikið við þessa uppbyggingu.
Fjölskyldan frá Hergilsey var
mjög samheldin og stóð vel með
sínum.
Foreldrar mínir stofnaðu nýbýli
úr landi Jörva sem var nefnt Jörvi
2. Sumarið 1958 byggði hann hlöðu
og ræktaði upp mikil tún á Jörva 2
næstu árin. Þeim var úthlutað 30
lömbum til að byrja búskap með
haustið 1958. Þá um veturinn var
mamma og eldri dóttir þeirra Mar-
grét á Jörva. Mamma hugsaði um
kindurnar þeirra og aðstoðaði
einnig foreldra sína, en þá var
óþarfi að hafa vetrarmann fyrst
hún fékk að búa hjá þeim og gat
sinnt búverkum með föður sínum.
Þann vetur var pabbi inni í Búð-
ardal við vinnu. Pabbi var nýjunga-
gjarn og var ávallt með fyrstu
mönnum til að kaupa og fram-
kvæma nýja hluti. Hann lagði
vatnsleiðslur í fjárhúsin á Jörva og
smíðaði heyskera til að auðvelda
vinnuna á bænum, keypti Massey
Ferguson 35, tætara, sláttuvél,
múgavél og smíðaði sér heyvagn.
Þessi tæki voru bylting í sveitinni.
Það voru ófá skiptin sem við systk-
inin fengum að sitja í traktornum
með honum við heyskap. Áður voru
orf, ljár og hrífur notaðar á Jörva
og bundið í bagga og borið heim af
hestum. Einnig nutu sumir sveit-
ungar góðs af að flytja hey heim á
heyvagninum árum saman.
Hann átti fjölda hesta í gegnum
árin enda var nægt landrými til
beitar fyrir þá á Jörva.
Pabbi fór í smalamennsku og
var gjarnan langt á undan þeim
sem yngri voru upp fjallið. Alltaf
var pabbi boðinn og búinn til að að-
stoða samfylgdarmenn sína í gegn-
um árin, gerði hann það alla tíð og
taldi það ekki eftir sér meðan heils-
an leyfði. Fáir voru greiðviknari.
Hlaðan sem pabbi byggði á Jörva
er nú hluti af íbúðarhúsi sem Reyn-
ir sonur þeirra og Bjarnheiður
kona hans búa nú í. Þar eru þau
með leirmunaverkstæði.
Pabbi starfaði lengst af hjá
Kaupfélagi Hvammsfjarðar í Búð-
ardal við verslunarstörf. Þetta var
á þeim tíma sem fólk úr sveitunum
kom í kaupstað að versla. Þá var
daglegt brauð að pabbi kom heim
með menn úr sveitunum í hádeg-
ismat. Einnig voru margir sveit-
ungar sem fengu að halda til og
dvelja hjá þeim í Búðardal meðan
þeir voru við vinnu, fast eða til
dæmis unnu í sláturhúsinu í Búð-
ardal.
Við munum ávallt minnast þín
fyrir allt það sem þú stóðst fyrir.
Þorbjörg, Þórður
og fjölskylda.
Með örfáum orðum langar mig
að minnast pabba og ýmislegs af
því sem hann tók þátt í.
Það var alltaf eitthvað nýtt sem
pabba datt í hug og framkvæmdi.
Eitt vorið stundaði hann grá-
sleppuveiðar í Hvammsfirði. Vet-
urinn áður keypti hann sér bát og
setti upp mörg grásleppunet og
viðaði að sér því sem til þurfti við
veiðar og vinnslu. Ekki fór miklum
sögum af aflanum þetta vorið, veð-
ur voru ekki hagstæð til veiða.
Eftir að kaupfélagið leið undir
lok vann hann hjá Esso í Búðardal.
Þá sá hann þörfina fyrir að aðstoða
heimamenn og ferðafólk sem kom
og þurfti aðstoð við umfelgun eða
dekkjaviðgerðir svo það gæti hald-
ið ferð sinni áfram. Hann setti upp
dekkjaverkstæði í bílskúrnum
heima hjá sér og rak meðan hann
hafði heilsu til. Síðasta árið sem
hann var með dekkjaverkstæðið
aðstoðaði Marta eiginkona hans
hann við að lyfta upp þungum
dekkjum og fleira. Síðustu 20 árin
voru þau með skógrækt í landi
Jörva og plöntuðu þar fjölda trjáa
sem orðin eru að myndarlegum
skógi.
Hann tók þátt í öllu sem um var
að vera bæði í starfi og leik. Ófá
voru félögin sem hann lagði lið í
gegnum árin. Ungmennafélög,
verkalýðsfélög, hestamannafélög,
leikfélag, hann var bíóstjóri í
Dalabúð og mjög oft dyravörður á
ýmsum skemmtunum. Einnig má
nefna bridsfélag, björgunarsveit,
slökkviliðsstörf, Rauða krossinn,
Félag skógareiganda á Vestur-
landi, Vesturlandsskóga, Félag
eldri borgara og margt fleira.
Í gegnum árin fór pabbi oft og
tók hann þátt í lífi og starfi í
Breiðafjarðareyjunum. Pabbi að-
stoðaði foreldra sína við nytjar
hlunninda frá Hergilseyjarlönd-
um. Hann tók að sér ásamt systk-
inum sínum uppbyggingu, viðhald
á húsum, bátum og rekstur
eyjabúskaparins þegar foreldrar
hans drógu sig í hlé.
Enn þann dag í dag sér stór-
fjölskyldan um nýtingu þessara
hlunninda í sameiningu. Við erum
ófá í stórfjölskyldunni frá Hergil-
sey sem eigum þaðan ógleyman-
legar minningar og athvarf enn í
dag.
Pabbi hafði mikla unun af að
stunda fiskveiðar, selveiði, veiðar
á lunda, skarfi og eggjatöku að
ógleymdri dúntekjunni sem var
ávallt í fyrsta sæti.
Pabbi var stöðugt að kenna
okkur systkinunum eitthvað nýtt í
gegnum árin – að spila og tefla,
heyskap, hestamennsku, veiðar og
margt fleira. Við búum að þessu
og getum kennt afkomendum okk-
ar margt af þessu.
Hvíl í friði, elsku pabbi, þín
dóttir,
Þorbjörg.
Nú hefur kvatt þetta jarðlíf
Guðbrandur Þórðarson tengda-
faðir minn. Okkar leiðir lágu fyrst
saman fyrir um 43 árum þegar við
Magga dóttir hans urðum par.
Mér var vel tekið af þeim Mörtu
og Guðbrandi og aldrei hefur bor-
ið skugga á okkar vináttu síðan.
Það var ýmislegt nýtt sem ég
lærði við að koma í Dalina úr
minni Öræfasveit, t.d. að fara í sil-
ungsveiði í vötnum á heiðunum í
Dalasýslu en Guðbrandur var
mikill veiðimaður hvort sem var
með byssu, stöng, færi eða lunda-
háf og voru margir silungar, laxar,
rjúpur og lundar sem féllu og svo
veiddi hann minka með Snotru
sinni. Við fórum eina skemmtilega
veiðiferð í Vatnsfjörðinn um síð-
ustu aldamót. Svo var eyjalífið úti í
Flatey þar sem þeir bræður, Jói
og Guðbrandur, sáu um dúnleit
sem ég kynntist og aðstoðaði við
sem var alveg nýtt fyrir mér. Við
fórum á skak og lögðum haukalóð
fyrir lúðu sem ég sveitamaðurinn
var alger nýgræðingur í en lagði
mig fram um að læra handtökin af
þeim bræðrum, en í lundaveiði var
ég hins vegar vanur maður og vel
liðtækur. Hann var kappsamur í
handfæraveiðunum og vildi aldrei
hætta fyrr en karið var orðið fullt.
Hann keypti bátinn Gust með Jó-
hannesi bróður sínum sem gerður
var út á smábátaveiðar og grá-
sleppu.
Guðbrandur hafði yndi af því að
hlusta á alls konar tónlist og átti
mikið safn af alls konar músík.
Hann var alltaf þakklátur þegar
ég tók upp nikkuna og langaði þá
helst að dansa gömludansana sem
hann hafði svo gaman af. Eitt
skildi ég alls ekki; hvernig hann
mundi heilu ljóðabálkana utan að
og gat farið með án minnispunkta.
Síðast er við heimsóttum hann
á Barmahlíð fyrir u.þ.b. mánuði
fór hann með ljóðið um Bakka-
bræður eftir Jóhannes úr Kötlum
og mundi það allt reiprennandi.
Guðbrandur var nýjungagjarn
og alltaf til í að kaupa nýjar græj-
ur, keypti tölvu fyrir Mörtu í upp-
hafi tölvualdar. Hann tók þátt í
ýmsum verkefnum sem sum
heppnuðust en annað lifði skemur,
má þar nefna grásleppuveiði,
ræktun kræklings og dekkjaverk-
stæði í bílskúrnum heima. Hann
var vinnusamur athafnamaður og
ávallt tilbúinn að hjálpa ættingj-
um og samferðafólki. Fram að
Jörva fór hann oft eftir vinnu í
kaupfélaginu til að hjálpa tengda-
Guðbrandur
Þórðarson
Elskuleg dóttir okkar, systir, mágkona
og föðursystir,
BJÖRG ARADÓTTIR
rafmagnsverkfræðingur og
tölvunarfræðingur,
andaðist á krabbameinsdeild Landspítalans
föstudaginn 5. apríl.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 12. apríl
klukkan 15.
Díana Þ. Kristjánsdóttir Ari G. Þórðarson
Þórður Arason Elínborg G. Sigurjónsdóttir
Kristján M. Arason Andrea J. Mohr-Arason
Ari, Sigurjón, Bjarmi, Benjamín, Elías og Helgi
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
EIÐUR VILHELMSSON,
Stekkjargötu 35,
Innri-Njarðvík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,
föstudaginn 5. apríl.
Útförin fer fram frá Innri-Njarðvíkurkirkju fimmtudaginn 11. apríl
klukkan 14. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim
sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið.
Fyrir hönd aðstandenda,
Börn hins látna
Ástkær bróðir okkar, mágur og frændi,
STEINGRÍMUR SIGURJÓN
GUÐMUNDSSON,
lést sunnudaginn 31. mars.
Útför Steingríms fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 11. apríl
klukkan 13.
Ólafur B. Guðmundsson Laufey S. Sigmundsdóttir
Bergþór Guðmundsson Jiraporn Yuengklang
Vilhelmína I. Eiríksdóttir Reimar Kjartansson
Stefán Guðmundsson Hlíf Ragnarsdóttir
Halldór Guðmundsson Ásta Ágústsdóttir
Kristinn Kristinsson Jóhanna Sigurðardóttir
Eyrún Sigurðardóttir
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
NIKULÁS Þ. SIGFÚSSON
læknir,
lést sunnudaginn 31. mars.
Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju
föstudaginn 12. apríl klukkan 13.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjartavernd.
Guðrún Þórarinsdóttir
Sigfús Þór Nikulásson
Hjálmfríður L. Nikulásdóttir Ari Harðarson
Sigríður A. E. Nikulásdóttir Jón Hörður Jónsson
Sigrún Nikulásdóttir
Sólveig Nikulásdóttir Arnar Arnarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elsku faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, afi
og langafi,
PÁLL BREKKMANN ÁSGEIRSSON
frá Grundarfirði,
er lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands
30. mars, verður jarðsunginn frá
Keflavíkurkirkju 12. apríl klukkan 13.
Ásdís Svala Pálsdóttir Magnús Daðason
Páll Th. Pálsson Markan Alfa Lind Markan
Ásdís Ásgeirsdóttir Ragnhildur Ásgeirsdóttir
Daði, Kjartan Már, Arnar, Björgvin,
Þórir, Helena Lilja, Jón Brynjar,
Mía, Mikael, Viktor og Atlas