Morgunblaðið - 09.04.2019, Qupperneq 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2019
skornirthinir.is
LYTOS LE FLORIANS
4 SEASONS
VATNSHELDIR
SKÓR
Vibram sóli
100% vatnsheldir
Tilboðsverð: 9.997
Verð áður: 19.995
Stærðir 36-47
tir
50% afsláttur
til 30. apríl
5 li
HANDBOLTI
Olís-deild kvenna
Undanúrslit, annar leikur:
ÍBV – Fram........................................... 29:34
Staðan er 2:0 fyrir Fram.
Haukar – Valur..................................... 20:24
Staðan er 2:0 fyrir Val.
Dominos-deild karla
Undanúrslit karla, annar leikur:
ÍR – Stjarnan ........................................ 85:76
Staðan er 1:1.
NBA-deildin
Toronto – Miami ............................... 117:109
Cleveland – San Antonio.................... 90:112
Minnesota – Oklahoma City ............ 126:132
Detroit – Charlotte............................. 91:104
Indiana – Brooklyn............................. 96:108
Memphis – Dallas .................... (frl.) 127:129
Houston – Phoenix ........................... 149:113
Milwaukee – Atlanta ........................ 115:107
Boston – Orlando.............................. 108:116
New York – Washington.................. 113:110
Golden State – LA Clippers ............ 131:104
Portland – Denver............................ 115:108
Sacramento – New Orleans............. 129:133
LA Lakers – Utah ............................ 113:109
Fimmtán lið hafa tryggt sér sæti í úr-
slitakeppninni: Milwaukee, Toronto, Gol-
den State, Denver, Houston, Portland,
Philadelphia, Utah, Boston, Oklahoma, In-
diana, San Antonio, LA Clippers, Brooklyn
og Orlando.
Detroit, Charlotte og Miami berjast um
sextánda og síðasta sætið.
KÖRFUBOLTI
EYJAR/ÁSVELLIR
Guðmundur Tómas Sigfússon
Jóhann Ingi Hafþórsson
Fram er komið í 2:0 í einvígi sínu
gegn ÍBV í undanúrslitum Íslands-
móts kvenna í handknattleik eftir
sigur í Eyjum í gærkvöld, 34:29.
Þrjá vinninga þarf til að komast
áfram í úrslitaeinvígið og verður að
teljast líklegt að Fram hreppi þriðja
vinninginn á fimmtudagskvöld.
Eftir góða byrjun Framara, sem
leiddu 9:3, kom slæmur kafli hjá
þeim sem hefði átt að gefa góð fyr-
irheit fyrir afganginn af leiknum en
allt kom fyrir ekki. Þrátt fyrir að
ÍBV hafi minnkað muninn í 11:12
misstu Framkonur ekki dampinn og
sigu fram úr hægt og bítandi.
Ragnheiður Júlísdóttir og Stein-
unn Björnsdóttir áttu stórkostlegan
leik í gærkvöldi og léku á als oddi.
Ragnheiður gerði þrettán mörk úr
sínum fimmtán skotum, skotin voru
mörg hver uppi í samskeytunum og
óverjandi fyrir markvörð ÍBV.
Steinunn spilaði ótrúlega varnarlega
og var frábær sóknarlega, hún gerði
sjö mörk úr sjö skotum, stal bolta,
blokkaði skot og stöðvaði margar
sóknir heimakvenna.
Framkonur spiluðu góða vörn
þrátt fyrir að gefa Eyjakonum ekki
mikið af fríköstum, þær þvinguðu
leikmenn ÍBV í erfið skot og náðu
markverðir Fram að verja tólf skot,
fimm fleiri en Andrea í marki ÍBV.
Leikmenn ÍBV náðu sér ekki á
strik í upphafi leiks og þrátt fyrir
góða kafla inn á milli var sigurinn
verðskuldaður. Að auki má nefna að
70% skota ÍBV komu að utan, þær
áttu erfitt með að finna góð færi og
því fór sem fór.
Haukar létu Val hafa fyrir sigri
Deildar- og bikarmeistarar Vals
eru einnig einum sigri frá því að
komast í úrslit eftir 24:20-sigur á
Haukum á útivelli. Valur hefur oft
spilað betur en í gær, en gæði liðsins
eru það mikil að þrátt fyrir það var
sigurinn öruggur.
Haukar spiluðu gríðarlega fasta
vörn í byrjun leiks og virtist Vals-
konum brugðið. Þegar fyrri hálf-
leikur var hálfnaður hafði Valur að-
eins skorað þrjú mörk. Haukar voru
hins vegar klaufar í sókninni og gátu
Valskonur þakkað fyrir að fá aðeins
fimm mörk á sig á þeim kafla. Þegar
skammt var eftir af fyrri hálfleik
fékk Ragnheiður Sveinsdóttir, fyr-
irliði og einn besti varnarmaður
Hauka, beint rautt spjald fyrir ljótt
brot. Í kjölfarið varð leiðin að marki
Hauka greiðari fyrir Val.
Það var ljóst að Haukar ætluðu að
láta Valskonur finna fyrir því með
hörðum varnarleik, en Ragnheiður
fór yfir strikið og var refsað. Haukar
voru ekki líklegir til afreka eftir
rauða spjaldið. Heimakonur gátu
helst þakkað Ástríði Glódísi Gísla-
dóttur fyrir að sigur Valskvenna var
ekki stærri. Markmaðurinn ungi
varði 14 skot og þar af tvö vítaköst.
Karen Helga Díönudóttir var sömu-
leiðis mjög öflug. Sandra Erlings-
dóttir var nokkuð sein í gang, eins
og aðrir leikmenn Vals, en eftir því
sem leið á leikinn sýndi hún snilli
sína sem leikstjórnandi. Ef hún var
ekki að brjótast í gegn sjálf átti hún
fallegar sendingar á liðsfélaga sína,
nánast í hverri sókn. Valur er með
betra lið en Haukar og þarf Hafnar-
fjarðarliðið á einhverju ótrúlegu að
halda til að eiga möguleika á að fara
í úrslit.
Eitt skref eftir
hjá Fram og Val
Stefnir í úrslitaeinvígi nágrannanna
Morgunblaðið/Eggert
Dauðafæri Valskonan Anna Úrsúla fer inn af línunni í gær.
Rúnar Alex Rúnarsson, landsliðs-
markvörður í knattspyrnu, er í úr-
valsliði franska íþróttadagblaðsins
L’Equipe í 31. umferð frönsku 1.
deildarinnar sem var leikin um
helgina. Rúnar átti þá stórgóðan
leik í marki Dijon sem vann mjög
óvæntan útisigur á Lyon, 3:1. Fram
kemur hjá L’Equipe að fimm sinn-
um í leiknum hafi Rúnar varið mjög
vel en hann er annar tveggja leik-
manna í deildinni sem fengu 8 í ein-
kunn hjá blaðinu í þessari umferð.
Lið hans er í harðri fallbaráttu og
er í 18. sæti af 20 liðum.
Rúnar Alex í liði
umferðarinnar
AFP
Frakkland Rúnar Alex Rúnarsson í
leik með Dijon í vetur.
Frakkar, gestgjafar heimsmeist-
aramóts kvenna í knattspyrnu í
sumar, sýndu styrk sinn í gærkvöld
með því að vinna stórsigur á silfur-
liði síðasta Evrópumóts, Dönum,
4:0, í vináttulandsleik sem fram fór
í Strasbourg. Delphine Cascarino
skoraði tvö fyrstu mörkin, Griedge
Mbock það þriðja og Valerie Gauv-
in skoraði fjórða markið þegar enn
voru 25 mínútur eftir af leiknum.
Þær frönsku fylgdu með þessu eftir
sigrum gegn Bandaríkjunum og
Japan fyrr á þessu ári og koma
greinilega sterkar til leiks á HM.
Frakkarnir fóru
létt með Dani
AFP
Tvenna Delphine Cascarino fagnar
öðru marka sinna gegn Dönum.
Schenker-höllin, undanúrslit kvenna,
2. leikur, mánudag 8. apríl 2019.
Gangur leiksins: 0:2, 2:3, 5:3, 6:5,
7:5, 7:9, 9:10, 10:14, 11:15, 14:18,
15:22, 20:24.
Mörk Hauka: Karen Díönudóttir 5,
Berta Harðardóttir 5/5, Maria Pe-
reira 4, Ramune Pekerskyte 2, Hekla
Ámundadóttir 2, Vilborg Pétursdóttir
1, Þórhildur Braga Þórðardóttir 1.
Varin skot: Ástríður Glódís Gísla-
dóttir 14/2, Saga Sif Gísladóttir 1.
Utan vallar: 6 mínútur (Ragnheiður
Haukar – Valur 20:24
Sveinsdóttir rautt spjald).
Mörk Vals: Sandra Erlingsdóttir 4/1,
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 4, Íris
Ásta Pétursdóttir 4, Ragnhildur
Þórðardóttir 3, Morgan Þorkelsdóttir
3, Lovísa Thompson 2, Díana Magn-
úsdóttir 2, Ásdís Ágústsdóttir 2/1.
Varin skot: Íris Björk Símonard. 8.
Utan vallar: 4 mínútur.
Dómarar: Bjarki Bóasson og Gunnar
Óli Gústafsson.
Áhorfendur: 429.
Staðan er 2:0 fyrir Val.
Vestmannaeyjar, undanúrslit kvenna,
2. leikur, mánudag 8. apríl 2019.
Gangur leiksins: 0:3, 2:7, 5:9, 8:11,
11:15, 14:20, 17:23, 18:23, 20:28,
23:29, 26:32, 29:34.
Mörk ÍBV: Ester Óskarsdóttir 8,
Greta Kavaliauskaite 6, Arna Sif
Pálsdóttir 6/2, Sunna Jónsdóttir 3,
Sandra Dís Sigurðardóttir 3, Karol-
ína Bæhrenz Lárudóttir 2, Kristrún
Hlynsdóttir 1.
Varin skot: Andrea Gunnlaugsd. 8.
Utan vallar: 4 mínútur.
ÍBV – Fram 29:34
Mörk Fram: Ragnheiður Júlíusdóttir
13/3, Steinunn Björnsdóttir 7, Þórey
Rósa Stefánsdóttir 6, Unnur Ómars-
dóttir 3, Karen Knútsdóttir 2, Harpa
María Friðgeirsdóttir 1, Hildur Þor-
geirsdóttir 1, Elva Þóra Arnardóttir 1.
Varin skot: Erla Rós Sigmarsdóttir
8/1, Sara Sif Helgadóttir 3.
Utan vallar: 2 mínútur.
Dómarar: Bjarni Viggósson og Jón
Karl Björnsson.
Áhorfendur: 173.
Staðan er 2:0 fyrir Fram.
Martin Her-
mannsson lands-
liðsmaður í
körfuknattleik
spilar í kvöld sinn
stærsta leik á
ferlinum til þessa
með félagsliði.
Alba Berlín, lið
hans í Þýska-
landi, er komið til
Valencia á Spáni þar sem fyrsti úr-
slitaleikur Evrópubikarsins fer fram
í kvöld. Tvo sigurleiki þarf til að
hreppa titilinn sem jafnframt veitir
keppnisrétt í Evrópudeildinni (Euro-
league) næsta vetur. Liðin mætast
aftur í Berlín á föstudagskvöld en
oddaleikur verður í Valencia á
mánudag ef til hans kemur.
Úrslitaleikur
hjá Martin
Martin
Hermannsson