Morgunblaðið - 09.04.2019, Síða 27
í stúkunni. Við sækjum orku þangað
en auk þess er jákvætt að fá þrjá
daga á milli leikja,“ sagði Matthías
sem dró vagninn í sókninni hjá ÍR í
fyrri hálfleik og skoraði þá 12 stig.
Félagar hans spiluðu ekki nægi-
lega vel í sókninni í fyrri hálfleik en í
þriðja leikhluta kviknaði á Kevin
Capers, því hæfileikaríka ólíkinda-
tóli. Capers skoraði 18 stig í þriðja
leikhluta og smám saman hresstust
einnig Gerald Robinson og Sigurður
Þorsteinsson. Ein af hetjum ÍR í
gær var þó Daði Berg Grétarsson.
Spilaði hann sinn fyrsta leik í langan
tíma og stóð sig mjög vel í því að
valda snillinginn Brandon Rozzell
sem skoraði aðeins níu stig. Telst
það lítið á þeim bænum.
Bæði lið spiluðu raunar góða vörn
í fyrri hálfleik en þá var baráttan í
fyrirrúmi og lítið skorað. Stjarnan
lék ekki beinlínis illa í þessum leik
nema þá helst á síðustu fjórum mín-
útunum og ekki var um slaka
frammistöðu þeirra að ræða á heild-
ina litið. ÍR er einfaldlega stuðlið
sem getur unnið hvaða lið sem er á
heimavelli. Það eru ekki ný tíðindi.
Þannig hefur það verið í mörg ár.
Sækja orku í stúkuna
ÍR komst í stuð í síðari hálfleik
Jafnaði rimmuna gegn Stjörnunni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stigahæstur Kevin Capers skorar tvö af 32 stigum sínum fyrir ÍR í Breið-
holtinu í gær. Hlyni Bæringsson fyrirliða Stjörnunnar líst ekki á blikuna.
Í BREIÐHOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
ÍR-ingar eru engin lömb að leika sér
við á heimavelli sínum í Hellinum í
Breiðholti og jöfnuðu í gær rimmuna
gegn Stjörnunni í undanúrslitum Ís-
landsmóts karla í körfuknattleik. ÍR
sigraði 85:76 eftir að hafa komist í
stuð í sókninni í síðari hálfleik og er
staðan nú 1:1. Næsti leikur verður í
Garðabænum en vinna þarf þrjá
leiki til að komast í úrslit.
„Menn eru ferskir og sérstaklega
ferskir í höfðinu. Menn vilja vera í
þessari stöðu og það skiptir miklu
máli,“ sagði ÍR-ingurinn Matthías
Orri Sigurðarson í samtali við Morg-
unblaðið þegar sigurinn var í höfn.
Eftir að hafa spilað fimm leiki gegn
sterku liði Njarðvíkur, og nú tvo
gegn deildar- og bikarmeisturum
Stjörnunnar, segir Matthías þreytu
ekki vera vandamál.
„Maður verður ekki þreyttur þeg-
ar maður spilar í stemningu þar sem
maður heyrir varla í sjálfum sér
vegna þess að allir eru bandbrjálaðir
Hertz-hellirinn, undanúrslit karla, 2.
leikur, mánudag 8. apríl 2019.
Gangur leiksins: 3:4, 8:13, 11:13,
16:16, 18:16, 20:24, 23:31, 28:34,
34:40, 39:46, 47:54, 57:56, 62:68,
69:70, 77:72, 85:76.
ÍR: Kevin Capers 32/8 stoðsend-
ingar, Matthías Orri Sigurðarson 20,
Gerald Robinson 15/10 fráköst, Sig-
urður Gunnar Þorsteinsson 12/11
fráköst/7 stoðsendingar, Sigurkarl
Róbert Jóhannesson 6.
Fráköst: 24 í vörn, 6 í sókn.
ÍR – Stjarnan 85:76
Stjarnan: Hlynur Elías Bæringsson
22/5 fráköst, Ægir Þór Steinarsson
15/4 fráköst/5 stoðsendingar, Antti
Kanervo 12, Collin Anthony Pryor
11/6 fráköst, Brandon Rozzell 9/8
fráköst, Arnþór Freyr Guðmundsson
3, Filip Kramer 2, Tómas Þórður
Hilmarsson 2.
Fráköst: 21 í vörn, 7 í sókn.
Dómarar: Kristinn Óskarss., Jóhann-
es Friðrikss., Gunnlaugur Briem.
Áhorfendur: 863.
Staðan er 1:1.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2019
NÝTT – Veggklæðning
Rauvisio Crystal
• Mikið úrval lita og áferða
• Auðvelt í uppsetningu og umgegni
• Framleiðum eftir óskum hvers og eins
• Hentar fyrir heimili, vinnustaði og almenningssvæði
Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987.
Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is
Ég hef fylgst spenntur með
gengi KA í Olís-deildinni í vetur.
Tímabilið hefur gengið upp og
ofan en markmið liðsins um að
halda sæti sínu í deildinni náð-
ist. Það var ljóst þegar einni
umferð var ólokið og gáfu KA-
menn það strax út að þeir ætl-
uðu að enda tímabilið á algjörri
veislu í lokaleik liðsins gegn FH.
Heimir Örn Árnason spilaði
þar sinn síðasta leik og Sverre
Andreas Jakobsson var dreginn
inn í leikmannahópinn. Þeir voru
báðir í þjálfarateymi liðsins. Það
vantaði bara að Jónatan Magn-
ússon birtist í KA-búningnum til
að fullkomna veisluna.
Í viðtali eftir leik sagði
Sverre að hann og Heimir hefðu
séð mikinn sjarma í því að spila
saman nokkrar varnir. Þeir
spiluðu eina vörn saman í leikn-
um.
Heimir sagðist hafa fengið
gæsahúð þegar Sverre kom inn
á og það hefðu verið mistök að
láta hann ekki spila meira.
Eins og alltaf þegar leikmaður
kemur inn í hóp þá fer annar út.
Sá var búinn að taka hundrað
aukaæfingar á þessu tímabili,
spila frábærlega með U-liði KA
og stimpla sig inn í aðalliðið
með góðri frammistöðu þar.
Persónulega finnst mér það
mjög ófaglegt hjá þjálfarateym-
inu að henda slíkum manni úr
leikmannahópnum svo að gömul
kempa getið sungið sinn svana-
söng í tuttugu sekúndur.
Ég veit að margir KA-menn
eru mér sammála og þar á með-
al eru leikmenn og stjórn-
armenn. Þjálfarar eiga ekki að
misnota stöðu sína til að búa til
eitthvað sjarmerandi sem þjónar
þeirra einkahagsmunum. Þeir
eiga að hlúa að sínum leik-
mönnum í stað þess að særa
þá.
BAKVÖRÐUR
Einar Sigtryggsson
sport@mbl.is
Mauricio Pochettino, knattspyrnu-
stjóri Tottenham, segist vera á leið
í einhvern mikilvægasta leik sinn á
ferlinum í kvöld. Tottenham tekur
þá á móti Manchester City í fyrri
leik liðanna í átta liða úrslitum
Meistaradeildar Evrópu á nýja leik-
vanginum sínum í London. „Það er
gríðarlegur bónus fyrir okkur að
vera komnir svona langt í þessari
keppni. Við munum spila djarft og
ákveðið og freista þess að sigra
City,“ sagði Pochettino í gær. Í
kvöld mætast einnig Liverpool og
Porto á Anfield.
Einn mikilvægasti
leikurinn minn
AFP
Spenntur Mauricio Pochettino stýr-
ir Tottenham gegn City í kvöld.
Eden Hazard skaut Chelsea upp í
þriðja sæti ensku úrvalsdeild-
arinnar í knattspyrnu í gærkvöld
þegar hann skoraði bæði mörk liðs-
ins í 2:0-sigri á West Ham á Stam-
ford Bridge. Fyrra markið var sér-
lega glæsilegt, á 24. mínútu, þegar
hann brunaði í gegnum miðja vörn
West Ham og skoraði. Seinna mark-
ið gerði hann á lokamínútum leiks-
ins eftir sendingu frá Ross Barkley.
Hazard hefur nú skorað 16 mörk í
deildinni í vetur og auk þess lagt
upp 12 mörk fyrir Lundúnaliðið.
vs@mbl.is
Hazard kom
Chelsea í 3. sæti
AFP
Tvenna Eden Hazard fagnar ásamt
Ross Barkley og Jorginho.
Íslenska karlalandsliðið í hand-
knattleik mætir Norður-Makedóníu
í 3. riðli undankeppni EM annað
kvöld í Laugardalshöll. Allir leik-
menn sem nú skipa hópinn eru leik-
færir og klárir í slaginn en þetta
staðfesti Guðmundur Þ. Guðmunds-
son, þjálfari íslenska liðsins, í sam-
tali við mbl.is á æfingu landsliðsins
í Safamýrinni í gær.
Landsliðsfyrirliðinn Guðjón Val-
ur Sigurðsson hefur glímt við veik-
indi en hann ætti að vera orðinn
leikfær á morgun líkt og Aron
Pálmarsson, sem æfði ekki með lið-
inu í gær. Aron kom til Íslands í
gærkvöldi en hann varð spænskur
bikarmeistari með Barcelona á
sunnudaginn. Báðir eru þeir reynd-
ir leikmenn sem þekkja hugmynda-
fræði Guðmundar vel og því ætti
fjarvera þeirra á æfingunni í gær
ekki að trufla þá í sínum undirbún-
ingi. Ísland er í efsta sæti 3. riðils
með fjögur stig eftir tvo leiki.
Grikkland og Norður-Makedónía
eru í öðru og þriðja sæti riðilsins
með tvö stig og Tyrkir reka lestina
án stiga. Sigur annað kvöld ætti því
að fara langleiðina með að tryggja
Íslandi efsta sæti riðilsins.
bjarnih@mbl.is
Allir leikfærir gegn
Norður-Makedóníu