Morgunblaðið - 09.04.2019, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 09.04.2019, Qupperneq 32
LISTHÚSINU Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050 Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl. 12-16 „Kona tekin af lífi – Lesið í dómsskjöl Natansmála og réttarhöldin yfir Agnesi í bók- menntum, sam- félagi og sögu“ nefnist fyrir- lestur sem Helga Kress flytur í Þjóðminjasafni Íslands í dag kl. 12.05. Hún skoðar endurupptöku upprunalega dómsmálsins frá 1830 hjá Lögfræðingafélagi Íslands 2017, fer yfir upprunalegu dómsskjölin og vitnisburð sakborninganna Agnesar og Sigríðar, en bæði Helga og Eggert Þór Bernharðsson hafa út frá heimildum ályktað að kon- urnar tvær hafi orðið fyrir harðræði og ofbeldi af hendi Natans. „Kona tekin af lífi“ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 99. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. ÍR lagði Stjörnuna að velli 85:76 í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í körfuknattleik í Breiðholtinu í gærkvöldi. Staðan í rimmu liðanna er nú 1:1 en vinna þarf þrjá leiki til að komast í úrslit. Næsti leikur verður í Garðabænum. Stjarnan hafnaði í efsta sæti Dom- inos-deildarinnar í vetur en ÍR í 7. sæti. »27 Spennan magnast hjá ÍR og Stjörnunni ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Reykjavíkurliðin Valur og Fram eru 2:0 yfir gegn Haukum og ÍBV í und- anúrslitum Íslandsmóts kvenna í handknattleik eftir leik gærkvölds- ins. Fram, sem er meistari síðustu tveggja ára, sigraði ÍBV 34:29 í Vestmannaeyjum. Valur, sem er deildarmeistari, lagði Hauka að velli á Ásvöllum 24:20. Vinna þarf þrjá leiki til að komast í úrslit en það voru einmitt Fram og Valur sem léku til úr- slita í fyrra. »26 Valur og Fram 2:0 yfir í undanúrslitunum Andri Yrkill Valsson yrkill@mbl.is „Við vonumst til þess að geta haldið fleiri aukasýningar,“ segir Kristín Lára Torfadóttir, nemandi í Árbæj- arskóla, en hún fer með hlutverk Sóleyjar í uppsetningu skólans á leikritinu Fútlús. Leikritið var frum- sýnt fyrir viku og voru fjórar sýn- ingar áætlaðar. Það seldist hins veg- ar upp á þær allar, og vel það, svo sett var upp aukasýning í gærkvöldi. Leikhópurinn vonast til þess að þær verði enn fleiri. „Við erum með fullt af flottu fólki í skólanum sem lagði mikla vinnu í þetta. Það er búið að vera meira en uppselt. Það eru 160 sæti í salnum en við erum búin að selja um 190 miða á hverja sýningu. Við erum bara búin að redda fleiri stólum og höfum reynt að finna út úr þessu,“ segir Kristín Lára. Handritið er fengið frá Versl- unarskóla Íslands, sem setti upp sýninguna Fútlúz fyrir tveimur ár- um. Kristín segir að í uppsetningu Árbæjarskóla sé hins vegar búið að bæta við fleiri persónum og um sé að ræða bætta útgáfu kvikmyndarinnar Footloose, sem sló í gegn á níunda áratugnum. Leiklistarkennari skólans, Ás- grímur Geir Logason, er leikstjóri, Kristján Sturla Bjarnason er tónlist- arstjóri og þeir Andri Már Magna- son og Brynjar Ingi Unnsteinsson eru meðal fleiri starfsmanna skólans sem einnig koma að uppsetningunni. Þá eru á milli 30 og 40 nemendur í unglingadeild skólans sem annað- hvort leika eða koma að ljósa- og tæknimálum. Eru eins og lítil fjölskylda Hlutverkum var útdeilt í nóv- ember eftir leiklistarprufur fyrir nemendur í unglingadeild og æfing- ar hófust strax í byrjun janúar. „Þetta er svo gaman, það er svo mikil gleði í þessu og maður er alltaf svo spenntur að fara að sýna. Stress- ið er farið og það er svo gaman að sjá fólkið í salnum. Við erum líka búin að bæta svo miklu við sýninguna, er- um með mikinn metnað í söng og dansi sem kryddar mikið upp á þetta,“ segir Kristín Lára, og segir kennara taka fullt tillit til þess að mikill tími fari í sýninguna. Margir sem koma að uppsetningunni hafa svo drauma um frekari frama á sviði. „Það eru mjög margir sem stefna að leiklistinni. Við erum mjög þéttur hópur, eiginlega eins og lítil fjöl- skylda, sem dreymir um að fara sömu leiðina,“ segir Kristín Lára og bendir áhugasömum miðakaup- endum á að hafa samband við skól- ann til þess að reyna að þrýsta á um fleiri aukasýningar. Morgunblaðið/Eggert Árbæjarskóli Nemendur voru með fimmtu sýninguna á Fútlús í gær, fyrir fullum hátíðarsal skólans. Uppselt á allar sýning- ar og rúmlega það  Fútlús í uppsetningu Árbæjarskóla hefur slegið í gegn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.