Morgunblaðið - 11.04.2019, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2019
Þann 11. apríl gefur Pósturinn út sjö frímerki. Um er
að ræða ferðamannafrímerki, frímerki tileinkuð ungviði
íslensku húsdýranna og Evrópufrímerkin 2019, þar sem
þemað er fuglar. Einnig kemur út frímerki til að minnast
þess að Ljósmæðrafélag Íslands er 100 ára í ár.
Fyrstadagsumslög fást á helstu pósthúsum.
Einnig er hægt að panta þau hjá
Frímerkjasölunni. Sími: 580 1050.
Netfang: stamps@stamps.is
Heimasíða: www.stamps.is
facebook.com/icelandicstamps
Safnaðu litlum listaverkum
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Togarinn Sturlaugur H. Böðvarsson
AK hefur nú fengið nafnið Mars RE
13, en Útgerðarfélag Reykjavíkur
keypti skipið af HB Granda í byrjun
febrúar. Runólfur Viðar Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri ÚR, segir að
stefnt sé að því að gera skipið út og sé
ýmislegt í skoðun í þeim efnum.
Kaupverðið fékkst ekki gefið upp, en
skipið var smíðað hjá Þorgeir & Ell-
ert hf á Akranesi 1981 og er því tæp-
lega 40 ára gamalt.
Nefna má að einn af nýsköpunar-
togurunum bar nafnið Marz og kom
hann til Reykjavíkur 1948. Hann og
systurskipið Neptúnus voru þá
stærstu togarar flotans.
Sturlaugur fór í sinn síðasta túr
fyrir HB Granda í febrúar í fyrra, en
nýsmíðin Akurey AK leysti skipið af
hólmi. Skipið var smíðað fyrir Grund-
firðinga og hét þá Sigurfari SH. Har-
aldur Böðvarsson hf. á Akranesi
eignaðist síðan skipið og fékk það þá
þá Sturlaugsnafnið. Eftir sameiningu
Granda og Haraldar Böðvarssonar í
HB Granda hefur skipið verið gert út
undir merkjum félagsins.
Skipið liggur nú við bryggju við
Grandagarð og þar liggur einnig
Grandaskipið Helga María AK 16, en
það var tekið úr rekstri í byrjun febr-
úar í ár. Ægir Páll Friðbertsson,
framkvæmdastjóri HB Granda, segir
það vera í skoðun hvað gert verður
við skipið. Það hefur þó ekki verið
sett í formlega sölumeðferð.
Helga María var smíðuð 1988 í
Flekkefjord í Noregi og bar fyrst
nafnið Haraldur Kristjánsson HF.
Skipið var ásamt systurskipinu Sjóla
HF einn af fyrstu frystitogurunum
sem smíðaðir voru fyrir Íslendinga.
Haraldur Böðvarsson hf á Akranesi
eignaðist skipið 1999 og fékk það þá
nafnið Helga María. Það varð síðan
hluti af flota HB Granda og var
breytt í ísfisktogara í Póllandi 2013.
Morgunblaðið/Sigtryggur Sigtryggsson.
Við bryggju Ísfisktogararnir Mars RE og Helga María AK voru báðir lengi gerðir út frá Akranesi.
Sturlaugur verður Mars
Útgerðarfélag Reykjavíkur kaupir skipið af HB Granda
Helga María við bryggju í tvo mánuði Framhaldið óljóst
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Gott verð hefur fengist fyrir grá-
sleppu á vertíðinni, en aflabrögð
munu víða vera svipuð og tvö síðustu
ár. Eftirspurn eftir grásleppu til
vinnslu hefur verið mikil og fiskur-
inn keyrður landshorna á milli ef því
hefur verið að skipta. Í vor hafa
fersk hrogn verið flutt með flugi til
Danmerkur.
Ágætur kraftur hefur verið í ver-
tíðinni fyrir norðan og norðaustan
land undanfarið og eru um 140 bátar
byrjaðir veiðar, sem er lítils háttar
fjölgun frá því í fyrra. Í heildina hef-
ur afli glæðst frá fyrstu dögum ver-
tíðar og veður orðið skaplegra. Veið-
arnar eru bundnar sérleyfum til
grásleppuveiða og má hver bátur
róa í 44 daga samfellt frá því að
hann leggur netin.
Um 40% verðhækkun
Til þessa hefur mestu verið land-
að á Drangsnesi, samkvæmt upplýs-
ingum Landssambands smábátaeig-
enda. Þar eru komin á land um 118
tonn af þeim 952 tonnum sem búið
er að landa. Örn Pálsson, fram-
kvæmdastjóri LS, segir að meðal-
verð á kíló sem selt er í gegnum fisk-
markaðina hafi verið 288 krónur í
vor. Það sé um 40% hækkun frá síð-
asta ári þegar meðalverðið var á
sama tíma 206 krónur, en verðið
hækkaði nokkuð er leið á vertíðina.
Óskar Torfason, framkvæmda-
stjóri Drangs á Drangsnesi, sagði að
veiðar og vinnsla grásleppu gengju
ljómandi þessa dagana. Nóg væri að
gera, en alls eru 18 manns í vinnu
hjá Drangi, þó ekki allir í fullu starfi.
Það er stór hluti vinnandi fólks á
Drangsnesi og nágrenni þar sem
íbúar eru um 100. Síðustu daga hafa
átta heimabátar landað á Drangs-
nesi, en að auki er afli tveggja báta
frá Akranesi keyrður norður til
verkunar hjá Drangi.
Eins og áður sagði er grásleppan í
mörgum tilvikum keyrð um langan
veg, en nánast allir landa heilli grá-
sleppu. Þannig nefndi Óskar að grá-
sleppa frá nágrönnum þeirra á
Hólmavík færi til vinnslu í Búðardal
og grásleppa sem landað væri á Ísa-
firði væri meðal annars unnin á
Djúpavogi. Grásleppa frá Akranesi
hefur meðal annars verið unnin á
Vopnafirði í vor, þar sem er slæging
og söltun á hrognum í húsakynnum
HB Granda. Á Akranesi framleiðir
Vignir Jónsson hf., dótturfyrirtæki
HB Granda, kavíar úr hrognum alls
staðar að af landinu.
Verkendur duglegir að hringja
„Ég held að það sé óhætt að segja
að það hafi verið slagur um hverja
útgerð og hvert kíló af hrognun,“
segir Óskar. „Verkendur hafa verið
duglegir að hringja í kalla sem eiga
grásleppuveiðileyfi og það er von-
andi gott fyrir kallana. Þeir hafa
verið að fá gott verð, algengt að
borgaðar hafi verið 285 krónur fyrir
kílóið og upp í 300 krónur hef ég
heyrt.
Í vor höfum við sent talsvert af
ferskum hrognum með flugi til Dan-
merkur og ég gæti trúað því að allt
að helmingur hrognanna hafi farið
til Kaupmannahafnar. Þetta fer
væntanlega á veitingastaði og mér
skilst að þetta sé borðað sem ein-
hvers konar kavíar, en líka notað
sem skraut. Þetta er lúxusvara og
ætti að skila talsvert hærra verði,“
segir Óskar.
Unnið alla daga
Hjá Drangi er unnið alla daga ef
það þarf að slægja eða salta hrogn.
Netin eru í sjó alla daga frá upphafi
vertíðar og dregið er daglega ef veð-
ur leyfir. Páskahátíðin breytir litlu
þar um. Drangur er með tvo báta á
grásleppu, en í plássinu eru nokkrir
gamalgrónir í grásleppuútgerð. Að
lokinni grásleppuvertíð róa bátar
Drangs með línu, en nýverið festi
fyrirtækið kaup á 15 metra hálfyfir-
byggðum plastbát frá Rifi. Hann bar
áður nafnið Þorsteinn SH, en núna
Benni ST.
Grásleppan
flutt lands-
horna á milli
Ljósmynd/Óskar Torfason
Nóg að gera Tomas, Veronika og Unnur Ágústa við verkun á grásleppu hjá Drangi á Drangsnesi í gærmorgun.
„Slagur um hverja útgerð og hvert kíló“
Fersk hrogn flutt út til Danmerkur
Ljósmynd/Þorgeir Baldursson
Á Árskógssandi Haraldur Ólafsson við löndun úr Særúnu í síðasta mánuði.