Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.04.2019, Page 2
Hvernig hefurðu það?
„Alveg rosalega gott, er í banastuði
og er að upplifa skemmtilega daga þar
sem allt gengur upp.“
Hvaða áhrif hefur blús á fólk?
„Blúsinn er móðurkartaflan í tónlistinni og tengir alla sam-
an, fólk af öllum gráðum í lífinu. Blúsinn er eins konar
grunntónn tónlistarinnar. Það er einstakt hvað það skapast
mikil tengsl milli fólks í gegnum tónlistina.“
Hverju mælirðu með að fólk passi sig að
missa ekki af á hátíðinni í ár?
„Blúshátíð er, frá A til Ö, eins og stórt listaverk, stillt upp
eins og innsetningu í Reykjavíkurborg þessa daga og at-
riðin skapa öll heildarlistaverk og erfitt að velja eitthvað
eitt.“
Hverju ertu persónulega spenntastur fyrir?
„Ég er spenntastur fyrir að hitta allt blúsfólkið, bæði tón-
listarmennina, sjálfboðaliðana, allt fólkið sem kemur og
myndar stemninguna. Þessum galdri og seið sem myndast
alltaf á Blúshátíð.“
Hvernig stemningu ber Blúshátíð með sér í
borgina?
„Hátíðir í borginni lyfta upp lífsgæðum borgarbúa og þessir
dagar sem áður voru stundum þeir leiðinlegustu eru orðnir þeir
bestu. Hún umbreytir orkunni og færir með sér gleði.“
Morgunblaðið/Hari
HALLDÓR BRAGASON
SITUR FYRIR SVÖRUM
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.4. 2019
Langar þig í ný gleraugu!
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
PLUSMINUS | OPTIC
Það fyrsta sem Marilyn Monroe leikkona tók eftir þegar
hún hitti Arthur Miller rithöfund, voru gleraugun!
Á dauða mínum átti ég von en ekki því að mínir menn í bandarískubárujárnshljómsveitinni Slayer yrðu fyrsta frétt í kvöldfréttatímaRíkissjónvarpsins. Þetta gerðist sumsé fyrir réttri viku. Kom að vísu
ekki til af góðu en í fréttinni kom fram að þeir „vegendur“ hefðu stefnt tón-
listarhátíðinni Secret Solstice vegna ógreiddra reikninga. Grafalvarlegt mál.
Eftir helgina skýrði nýr forsprakki Secret Solstice málið frá bæjardyrum
hátíðarinnar og sagði það ekki hverfast um vangoldin laun heldur aðra reikn-
inga sem fyrri rekstraraðilar hefðu hafnað. Það hlýtur þá að snúa að ferða-
kostnaði eða öðru slíku, myndi maður ætla. Vonandi greiðist sem fyrst úr
þessari flækju. Það er ekki gott að
vera á öndverðum meiði við Slayer en
sem kunnugt er varð sveitin til þegar
sjálfur frumkrafturinn sængaði hjá
hinu illa. Þessir menn hafa traust
sambönd í neðra.
Blóði var ekki fyrr hætt að rigna af
hendi Slayer en Reykjavíkurborg reis
upp á afturlappirnar og sagði Secret
Solstice líka skulda sér peninga. Aftur
vísaði forsprakki hátíðarinnar þeim
ásökunum til föðurhúsanna og sagði
að hátíðin yrði haldin í sumar hvort
sem það yrði í samstarfi við eða í
óþökk borgarinnar.
Mér er hlýtt til Secret Solstice, þó
ekki nema væri fyrir þá staðreynd að hátíðin færði mér Slayer og það á sjálf-
um kveðjutúr þessa goðsagnakennda bands. Ég lít líka á það sem mannrétt-
indi okkar eyjarskeggja að hafa reglulega aðgang að tónlistarfólki í fremstu
röð í heiminum. Ekki hafa allir tök á því að teygja sig til stjarnanna. Sjálfur
þekki ég til dæmis konu sem hefur djúpan áhuga á tónleikahaldi en vill helst
ekki fljúga. Lífsgæði hennar myndu dala hratt hyrfu hátíðir á borð við Sol-
stice af sjónarsviðinu.
Þá komum við að staðsetningunni en hún hefur sem kunnugt er staðið í
sumum enda þótt fólkið sem ég þekki þarna í grenndinni hafi ekki kveinkað
sér. Vel má vera að Laugardalurinn sé ekki heppilegasti staðurinn fyrir at-
gang af þessu tagi en þá er bara að finna hátíðinni aðra torfu. Lausnir eiga
alltaf að bera hindranir ofurliði. Upplagt væri til dæmis að sameina Secret
Solstice Kjalarnesdögum en þessar gagnmerku hátíðir fara jafnan fram á
svipuðum tíma, um hásumarið. Sjálfur gæti ég alveg hugsað mér að hýsa Ro-
bert Plant í gestaherberginu á sveitasetri mínu. Án þess að senda reikning.
Secret Solstice
ekki Slayin af
Pistill
Orri Páll
Ormarssonn
orri@mbl.is
’Það er ekki gott aðvera á öndverðummeiði við Slayer en semkunnugt er varð sveitin
til þegar sjálfur frum-
krafturinn sængaði hjá
hinu illa.
Emil Örn Jóhannesson
Ég ætla að chilla með fjölskyldunni.
Ég held á Ólafsvík.
SPURNING
DAGSINS
Hvað ætlar
þú að
gera um
páskana?
Margrét Blöndal
Ég ætla að læra fyrir stúdenstprófin
mín og borða súkkulaði.
Morgunblaðið/Ásdís
Arnar Skúlason
Ég ætla að gera ekki neitt. Nema
kannski að fara í ræktina.
Agnes Nína Hannesdóttir
Vinna eins mikið og ég get á Prik-
inu. Svo reyni ég að eyða tíma með
fjölskyldunni.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Kristinn Ingvarsson
Blúshátíð í Reykjavík hefst um helgina með Blúsdegi í miðborginni 13.
apríl og stendur hátíðin til 18. apríl. 16.-18. apríl verða stórtónleikar á
Hilton Reykjavik Nordica, kl. 20, þar sem fjöldi listamanna koma
fram. Á lokakvöldi Blúshátíðar halda Vinir Dóra, með Halldór Braga-
son í forsvari, upp á 30 ára starfsafmæli sitt með blúsveislu.
Blús móður-
kartaflan