Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.04.2019, Page 30
Ég held ég þurfi að fara í heilaskann og láta tékka á mér. Málið er að áhverjum mánudegi byrja ég í sykurbindindi og á hverjum þriðjudegi, ogjafnvel á mánudagseftirmiðdegi, er ég búin að steingleyma öllu saman.
Þvílíkt gullfiskaminni!
Í vinnunni erum við tvær hér sem erum dálítið veikar fyrir sykri. Hún er
sjúk í nammi en ég er meira fyrir kökurnar. En ef engar kökur eru í boði hér í
Hádegismóum, og nammið liggur á borðum, læt ég mig bara hafa það.
Í stað þess að þegja þunnu hljóði tilkynni ég reglulega vinnufélögum að nú
sé hafið enn eitt sykurbindindið. Þannig held ég að ég skapi mér ákveðið að-
hald. Það virkar þannig að á þriðjudeginum þegar ég sting óvart upp í mig
súkkulaði, heyrist úr horni: hva, varstu ekki byrjuð í sykurbindindi?
Það er þá sem minnið bregst. „Ha?“ segi ég hissa. „Var það?“
Svo ber ég við algjöru minnisleysi. Ég væri rosa góð í réttarsal. Leiklistar-
tímarnir í New York eru aldeilis að
skila sér þegar ég leik hina blásak-
lausu minnislausu konu.
Undanfarið hefur verið erfitt að
vinna hér. Í síðustu viku var hér meiri-
háttar páskaeggjasmakk sem þurfti
akkúrat að eiga sér stað einn metra
frá mínu skrifborði. Sem þýddi að ég
þurfti aðeins að snúa mér við til þess
að teygja mig í tuttugu tegundir
páskaeggja. Ég þurfti ekki einu sinni
að standa upp!
Ég var auðvitað búin að smakka all-
ar tegundir þegar yfir lauk. Sem er í
sjálfu sér alveg merkilegt, sérstaklega
í ljósi þess að mér finnst páskaegg
ekkert góð. En líklega er það enn ein
blekkingin í mínu lífi.
En hvernig er þetta með blekkingar; hvern erum við að blekkja? Augljós-
lega ekki okkur sjálf, því innst inni vitum við upp á okkur skömmina. Samt læt-
ur maður oft út úr sér fullyrðingar eins og: „ég borða aldrei nammi“. Þetta er
auðvitað bara leið til að upphefja sjálfa sig í augum nammigrísanna. Ég ætla að
hætta þessu núna, þetta er klárlega helber lygi.
Annars er hin „sykursjúka“ samstarfskona mín komin í eitthvert sveltis-
prógramm. Sem er víst afskaplega vinsælt þessa dagana og heitir 17-7 eða 23-1
eða eitthvað álíka. Hún er búin að missa eitt kíló á þremur dögum og er ég satt
að segja dálítið afbrýðisöm.
(Fyrir þá sem ekki skilja þennan megrunakúr, sem önnur hver kona í bæn-
um er á, þá felst hann í því að fasta í 17 tíma og borða í 7 tíma. Þannig væri til
dæmis hægt að borða einungis milli 12 og 7 á daginn.)
Mig langar bara ekkert sérlega mikið á þennan
kúr. Ég er ekkert skemmtileg þegar ég er
svöng; langt því frá. Hungur er ein þess-
ara slæmu tilfinninga sem koma
mér í vont skap. Að sleppa mat
frá því að ég vakna, stundum um
sex, og til tólf á hádegi er meira
en ég þoli. Svo finnst mér allt of
gott að fá mér smá bita eftir
kvöldmat, þótt það sé ekki
nema eitt epli eða svo.
Ok, það er víst ekki allt-
af eitt epli. Enn kemur gull-
fiskaminnið við sögu. Man allt í einu að ég stóð í
50 mínútna biðröð í ísbúð Huppu í fyrrakvöld, æ
ég var búin að gleyma því! (Bragðarefur er jú
þess virði að bíða eftir.)
En alla vega, ég ræddi þetta við samstarfs-
konu mína, varðandi 17-7 kúrinn. Sagðist
nú varla nenna þessu; þetta hljómaði
svo leiðinlega. Hún var reyndar með
góða lausn á því. „Þú getur bara troðið
í þig kökum milli 12 og 7!“
Páskaegg voru í seil-
ingarfjarlægð og
freistingin of mikil.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Svo ber ég við
algjöru minnisleysi
’Ok, það er víst ekkialltaf eitt epli. Ennkemur gullfiskaminniðvið sögu. Man allt í einu
að ég stóð í 50 mínútna
biðröð í ísbúð Huppu í
fyrrakvöld, æ ég var búin
að gleyma því!
Allt og
ekkert
Ásdís Ásgeirsdóttir
asdis@mbl.is
Undirrituð
elskar kökur
meira en
margt annað.
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.4. 2019
Rafvörumarkaðurinn við Fellsmúla | Sími: 585 2888
OPIÐ ALLA DAGA
Mán. til fös. kl. 9–18.
Laugard. kl. 10–16.
Sunnud. kl. 12–16
EITT LANDSINS
MESTA ÚRVAL
AF PERUM
10 til 11 Þingvellir Páll Magnússon og Björt Ólafs-
dóttir stýra líflegum þjóðmálaþætti í beinni útsend-
ingu á K100 alla sunnudagsmorgna.
11 til 14 100% helgi á K100 Stefán Valmundar
rifjar upp það besta úr dagskrá K100 frá liðinni
viku, spilar góða tónlist og spjallar við hlustendur.
14 til 17 100% Tónlistinn Siggi Gunnars fer yfir
40 vinsælustu lög landsins. Tónlistinn er unninn
upp úr gögnum frá Félagi hljómplötuframleiðanda
og er eini opinberi vinsældalisti landsins.
17 til 00 K100 tónlist
07.00 Strumparnir
07.25 Kormákur
07.35 Tindur
07.50 Mæja býfluga
08.00 Skoppa og Skrítla á
póstkorti um Ísland
08.15 Blíða og Blær
08.35 Heiða
08.55 Latibær
09.20 Tommi og Jenni
09.45 Ævintýri Tinna
10.10 Lukku láki
10.30 Ninja-skjaldbökurnar
10.55 Friends
11.20 Ellen
12.00 Nágrannar
12.20 Nágrannar
12.40 Nágrannar
13.00 Nágrannar
13.20 Nágrannar
13.45 Friends
14.10 Lego Master
15.00 Hversdagsreglur
15.25 God Friended Me
16.10 Jamie’s Quick and Easy
Food
16.35 Lose Weight for Good
17.10 Heimsókn
17.40 60 Minutes
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.55 Sportpakkinn
19.10 Britain’s Got Talent
20.15 Atvinnumennirnir okkar
20.55 The Sandhamn Murders
22.25 Killing Eve
23.10 High Maintenance
ÚTVARP OG SJÓNVARP
Sjónvarp Símans
RÚV
Rás 1 92,4 93,5
Omega
N4
Stöð 2
Hringbraut
18.00 Að Norðan
18.30 Hátækni í sjávarútvegi
(e)
19.00 Eitt og annað
19.30 Þegar
20.00 Að Austan
20.30 Eitt og annað
21.00 Nágrannar á norður-
slóðum
20.00 Omega
21.00 Tónlist
22.30 Gegnumbrot
23.30 Tónlist
24.00 Joyce Meyer
20.00 Ísland og umheimur
20.30 Mannamál (e)
21.00 Spánarsýsla 1
21.30 Spánarsýsla 2
endurt. allan sólarhr.
12.00 Everybody Loves
Raymond
12.20 The King of Queens
12.40 How I Met Your Mother
13.05 Top Chef
13.50 The Good Place
14.15 Life Unexpected
15.00 Top Chef
16.00 Malcolm in the Middle
16.20 Everybody Loves Ray-
mond
16.45 The King of Queens
17.05 How I Met Your Mother
17.30 90210
18.15 Líf kviknar
18.50 Með Loga
19.45 Fótboltastelpur
21.00 Venjulegt fólk
21.40 The Truth About the
Harry Quebert Affair
22.25 Ray Donovan
23.25 The Walking Dead
00.10 A View to a Kill
02.20 Hawaii Five-0
03.05 Blue Bloods
03.50 Shades of Blue
06.55 Morgunbæn og orð
dagsins.
07.00 Fréttir.
07.03 Tríó.
08.00 Morgunfréttir.
08.05 Á tónsviðinu.
09.00 Fréttir.
09.03 Samtal.
10.00 Fréttir.
10.05 Veðurfregnir.
10.15 Bók vikunnar.
11.00 Guðsþjónusta í Nes-
kirkju.
12.00 Hádegisútvarp.
12.20 Hádegisfréttir.
12.40 Veðurfregnir.
13.00 Sögur af landi.
14.00 Víðsjá.
15.00 Grár köttur.
16.00 Síðdegisfréttir.
16.05 Helgitónlistardagur EBU
í dymbilviku.
17.25 Orð af orði.
18.00 Kvöldfréttir.
18.10 Borgarmyndir.
18.50 Veðurfregnir.
18.53 Dánarfregnir.
19.00 Óskastundin.
19.40 Orð um bækur.
20.35 Gestaboð.
21.30 Land hinna blindu:
Smásaga – seinni hluti.
22.00 Fréttir.
22.05 Veðurfregnir.
22.10 Á reki með KK.
23.10 Frjálsar hendur.
24.00 Fréttir.
00.05 Næturútvarp Rásar 1.
07.15 KrakkaRÚV
07.16 Begga og Fress
07.29 Bréfabær
07.40 Sara og Önd
07.47 Hæ Sámur
07.54 Húrra fyrir Kela
08.17 Tulipop
08.20 Hvolpasveitin
08.43 Alvinn og íkornarnir
08.55 Disneystundin
08.56 Nýi skólinn keisarans
09.17 Sígildar teiknimyndir
09.24 Dóta læknir
09.45 Krakkafréttir vikunnar
10.05 Vísindahorn Ævars
10.10 Ungviði í dýraríkinu
11.00 Silfrið
12.10 EM í fimleikum
14.25 Menningin – samantekt
14.50 Cirque du Soleil: Gleðin
16.25 Haukur Morthens
17.20 Táknmálsfréttir
17.30 N-Makedónía – Ísland
20.00 Fréttir
20.25 Íþróttir
20.30 Veður
20.40 Landinn
21.10 Hvað höfum við gert?
21.50 Sæluríki
22.40 Babýlon Berlín. Strang-
lega bannað börnum.
03.25 Margt býr í vatninu.
Bannað börnum.
01.25 Útvarpsfréttir
Leikararnir Aron Már
og Þuríður Blær, bet-
ur þekkt sem Aron
Mola og Blær, kíktu í
spjall til Sigga Gunn-
ars fyrr í vikunni til
að ræða leikritið
Kæra Jelena sem
frumsýnt var á föstu-
dag í Borgarleikhús-
inu. Aron er að út-
skrifast í vor úr leiklistardeild Listaháskóla Íslands og
er þetta hans frumraun í atvinnuleikhúsi. Hann leikur
burðarhlutverk í sýningunni svo segja má að hann
stökkvi beint í djúpu laugina. Mikið hefur gengið á á
æfingunum og er Aron til dæmis með glóðarauga eftir
Blæ og annar leikari nefbrotnaði næstum í vikunni.
Viðtalið má nálgast á k100.is.
Stekkur í djúpu laugina