Morgunblaðið - 23.04.2019, Side 1

Morgunblaðið - 23.04.2019, Side 1
Þétt dagskrá » Iðnaðarmenn funda í dag og fram að helgi. Þeir eiga fund hjá ríkissáttasemjara á morgun. » Sameyki fundar með Reykjavíkurborg, ríkinu og Isavia í vikunni. » Bandalag háskólamanna ræðir við ríkið og sveitarfélögin í vikunni en leggur áherslu á að ræða við fjármálaráðuneytið. „Þeir albjartsýnustu segja að við semjum í byrjun júní en ég er hræddur um að við gefum þessu tíma fram í júní. Það er mikið eftir,“ segir Árni Stefán Jónsson, formaður stéttarfélagsins Sameykis. Iðnaðarmenn gera tilraun til samninga í vikunni og Bandalag há- skólamanna sömuleiðis. Mesti ákafinn virðist þó vera í iðn- aðarmönnum enda stefndi formaður Rafiðnaðarsambandsins, sem er einnig talsmaður iðnaðarmanna í kjaraviðræðum við Samtök atvinnu- lífsins, á að semja fyrir síðustu ára- mót. Ef iðnaðarmenn semja ekki fyr- ir vikulok munu þeir kjósa um aðgerðir, að sögn talsmanns þeirra, Kristjáns Þórðar Snæbjarnarsonar. Kosningu um kjarasamning Starfsgreinasambandsins annars vegar og Afls starfsgreinafélags hins vegar lýkur klukkan fjögur síðdegis í dag. Starfsgreinasambandið mun kynna niðurstöður atkvæðagreiðsl- unnar á morgun. Kjörsókn hjá Afli er afar dræm, að því er fram kemur í frétt á vef starfs- greinafélagsins, og er ekki nema rúm 18% kjörsókn vegna kjarsamn- ings verslunarmanna og rúm 16% vegna kjarasamnings verkafólks. Formaður Starfsgreinasambands- ins vildi ekki gefa upp tölur um kjör- sókn þegar eftir þeim var leitað. Auknar launagreiðslur vegna lífs- kjarasamningsins sem ríkisstjórnin kynnti í byrjun mánaðar munu kosta sveitarfélögin 2% meira en ríkið, eða sem nemur fjórum milljörðum króna yfir samningstímabilið. „Þetta er vegna samsetningar starfsmannahópsins okkar, við erum með fleira fólk í láglaunastörfum,“ segir sviðsstjóri kjarasviðs Sam- bands íslenskra sveitarfélaga. Mikið eftir í kjaraviðræðum  Ákafi í iðnaðarmönnum  Dræm kjörsókn hjá Afli  Launahækkanir vegna lífskjarasamnings kosta sveitarfélögin fjórum milljörðum meira en þær kosta ríkið MKjaraviðræður fara aftur »4 Þ R I Ð J U D A G U R 2 3. A P R Í L 2 0 1 9 Stofnað 1913  94. tölublað  107. árgangur  TIL VITUNDAR- VAKNINGAR Í UM- HVERFISMÁLUM KA ÍSLANDSMEISTARI MÓSESARMYND MICHELANGELOS ÚR MARMARA SÖGULEG STUND HJÁ FÉLAGINU 24 HYRND HETJA 28PLOKKDAGUR 11 H V ÍT A H Ú S IÐ / A c ta v is 7 1 1 0 3 0 Betolvex B-12 H Fæst án lyfseðils Minningarathafnir voru haldnar víða um Srí Lanka í gær, en 290 manns hið minnsta létust í skæðum hryðjuverkaárásum á páskadag og rúm- lega 500 manns særðust. Neyðarlög voru sett á í landinu í gærkvöldi og hafa 24 verið handteknir vegna ódæðisins. Talið er að lítt þekktur hópur íslamista hafi staðið að árásinni, en sjálfvígs- sprengjumenn létu til skarar skríða á sex mis- munandi stöðum í höfuðborginni Colombo, auk þess sem sprengt var við kirkjur og hótel í borg- inni, sem og í borgunum Negombo og Batticaloa. Segja yfirvöld á Srí Lanka að hryðjuverkasam- tökin hafi notið stuðnings erlendra aðila við árás- irnar. Allir Íslendingar sem vitað er um á Srí Lanka eru sagðir óhultir, en staðfest hefur verið að þrjú dönsk systkini hafi látist í ódæðinu. Guðni Th. Jó- hannesson, forseti lýðveldisins, sendi í gær sam- úðarkveðjur til Maithripala Sirisena, forseta Srí Lanka, og annarra íbúa þar vegna hryðjuverk- anna. Sagði í kveðju forsetans að hugur okkar væri hjá þeim sem misst hefðu ástvini eða orðið fyrir árásum; og að ekkert gæti réttlætt slík grimmdarverk. Jafnframt kvaðst forseti vona að umburðarlyndi í trúarlegum efnum, sem fyrir hendi væri á Srí Lanka, næði að dafna og aukast í framtíðinni. »13 og 14. AFP Beðið fyrir fórnarlömbum árásarinnar  Að minnsta kosti 290 létust í hryðjuverkaárásum á Srí Lanka á páskadag Katrín Jakobs- dóttir er í 17. sæti lista banda- ríska dagblaðs- ins USA Today yfir tuttugu launahæstu þjóðarleiðtoga heimsins. Katrín er ofar á listan- um en þeir Leo Varadkar, for- sætisráðherra Írlands, Jimmy Morales, forseti Gvatemala, og Édouard Philippe, forsætisráð- herra Frakklands, sem rekur lestina í 20. sæti. Forsætisráð- herrar Danmerkur og Svíþjóðar eru í 15. og 16. sæti fyrir ofan Katrínu. Katrín er ein af fjórum konum á lista blaðsins, en hann náði yfir kjörna þjóðarleiðtoga eða þá sem sitja í forsæti ríkisstjórna. Launa- hæst kvenna er Carrie Lam, framkvæmdastjóri Hong Kong, en Lee Hsien Loong, forsætisráð- herra Singapúr, ber höfuð og herðar yfir aðra á listanum. »4 Í 17. sæti þeirra launahæstu Katrín Jakobsdóttir Talið er að elds- voði í fjölbýli við Sléttuveg 7 hafi átt upptök sín í dekkjum eða rusli. Slökkvilið- ið segir varasamt að geyma mikið af dekkjum sam- an þar sem þau séu mikill elds- matur. Slökkvi- liðið fær reglulega útköll þar sem kviknað hefur í dekkjum. Eldurinn kom upp í bílageymslu hússins að morgni sunnudags. 33 íbúðir fyrir öryrkja eru í húsinu og sérútbúnir bílar hreyfihamlaðra íbúa urðu fyrir tjóni. Þessir íbúar eru nú margir án fararskjóta. Það hamlar þeim mjög, samkvæmt formanni Sjálfsbjargar, landssamtaka hreyfihamlaðra. »6 Geymsla dekkja í fjölbýli varasöm Slökkviliðsmenn Mynd af vettvangi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.