Morgunblaðið - 23.04.2019, Síða 2
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Veðurblíða yljaði Reykvíkingum í gær og þeir nýttu sér sólina
sem endranær. Fjöldinn allur af fólki var í Nauthólsvík þegar
ljósmyndara Morgunblaðsins bar að garði.
Þótt kalt hafi verið í skugganum var hlýtt í sólinni og fólk
stakk sér í sjóinn til kælingar eða skemmtunar.
Útlit er fyrir að annan blíðviðrisdag beri upp í vikunni og
það á sumardaginn fyrsta. Trausti Jónsson veðurfræðingur
segir raunhæfan möguleika á því að hitamet verði slegið í
höfuðborginni á þessum fyrsta degi sumars. »8
Sóla sig á íslenskri strönd í aprílmánuði
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 2019
ANDY
FLOSS
POPP
KORN
ANDLITS
MÁLUN
ÓTRÚLEG
LEIKFÖNG
TILBOÐ
MÖGNUÐSKEMMTIATRIÐI
HOPPU
KASTALI
BLÖÐRU
BRELLUR
OPNUNARHÁT
ÍÐ
25. APRÍL KL.1
2 - FJÖLDI OPN
UNARTILBOÐA
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Mikil óánægja var í Vestmannaeyj-
um í gær með að ekki hefði verið
byrjað að dýpka Landeyjarhöfn fyrr
en í hádeginu í gær, þrátt fyrir að
veðurskilyrði til dýpkunar hefðu ver-
ið til staðar frá því á páskadag.
Framkvæmdastjóri Björgunar segir
að veður hafi gengið mun hraðar nið-
ur en menn höfðu gert áætlanir fyrir
og að tekið hafi sinn tíma að koma
verkinu af stað.
„Við erum ósátt við að verktakinn
sinni ekki því hlutverki sem hann er
ráðnn í, og það er að dýpka þegar
færi gefst til dýpkunar,“ segir Íris
Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vest-
mannaeyjum, en boðað hefur verið
til aukafundar í bæjarráði Vest-
mannaeyja í hádeginu í dag, þar sem
málið verður rætt. Segir Íris að ósk-
að hafi verið eftir því að vegamála-
stjóri komi inn á fundinn til að fara
yfir stöðuna með bæjarráði og það
hvernig framhaldinu verði háttað.
Íris segir að í samningnum við
Björgun séu ákveðin skilyrði við
dýpkun tiltekin, þau snúi að öldu-
hæð, öldulengd og vindhraða og að
vitað hafi verið að þau yrðu innan
marka í fyrradag. Hún spyr því
hvers vegna ekki hafi verið byrjað að
dýpka höfnina fyrr en í hádeginu í
gær. Þá sé hún ósátt við að áhöfn
dýpkunarskipsins Dísu hafi ekki ver-
ið í Vestmannaeyjum þannig að skip-
ið gæti siglt út um leið og tækifæri
gafst. Hún bendir á að ekkert helgi-
dagaákvæði sé í samningnum við
Björgun, heldur beri fyrirtækinu að
dýpka þegar færi gefst.
Íris segir að tækjakostur Björg-
unar sé ekki mikill og því þurfi að
nýta hvern klukkutíma sem gefist
vel. „Samfélagið í Eyjum verður fyr-
ir miklu tjóni hvern dag sem ekki
tekst að opna höfnina. Það er því
óskiljanlegt hvers vegna þeir fóru
ekki út á sunnudaginn,“ segir Íris.
Útlitið þokkalegt næstu daga
Lárus Dagur Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Björgunar, segir að
veðurútlit næstu daga sé þokkalegt
og að vonandi náist sá árangur sem
þurfi til að hægt að sé að opna Land-
eyjahöfn fyrir Herjólfi. Hann vill þó
ekki segja hversu langan tíma verkið
geti tekið, það verði að ráðast af að-
stæðum. „Þetta eru krefjandi að-
stæður en við verðum klárir.“
Lárus Páll segir ýmsar ástæður
vera fyrir því að ekki var hafist
handa á sunnudeginum. „Við förum
aldrei af stað fyrr en Vegagerðin
hefur mælt fyrir hverri vinnulotu,“
segir Lárus og bendir á að það hafi
verið gert síðast fyrir um tíu dögum.
„Og þá voru veðurskilyrðin verulega
yfir þeim skilyrðum sem mælt er fyr-
ir í útboðsgögnum. Nú gekk veðrið
mun hraðar niður en menn reiknuðu
með og Vegagerðin ákveður að mæla
í gær [sunnudag] en ekki í dag og við
fáum mælinguna í gærkvöldi. Það
hefur tekið sinn tíma að koma okkur
af stað en ég er bjartsýnn á að næstu
dagar gefi góðan árangur.“
Ekki um samningsbrot að ræða
Lárus Páll segir enn fremur að
ölduhæðin á sunnudag hafi ekki ver-
ið góð fyrir hin skip félagsins sem
koma að dýpkuninni, annars vegar
gröfuprammann Reyni og hins veg-
ar efnisflutningaprammann Pétur
mikla. Þá hafi áhöfn Dísu ekki átt
bókað flug til Eyja fyrr en í dag.
„Þannig að menn héldu sig við það
plan sem var gert fyrir páska.
Mögulega má gagnrýna það að við
höfum ekki verið komnir þarna
fyrr,“ segir Lárus Páll. Hann neitar
því hins vegar að um samningsbrot
hafi verið að ræða.
Óánægja með meintan seinagang
Morgunblaðið/RAX
Milli Eyja og lands Herjólfur fór fyrstu ferð sína í Landeyjahöfn í júlí 2010.
Bæjarráð Vestmannaeyja fundar í dag um stöðuna í Landeyjahöfn Eyjamenn ósáttir með að
Björgun hafi ekki hafist handa við að dýpka höfnina fyrr þrátt fyrir að veðuraðstæður hafi leyft það
Atli Heimir Sveinsson
tónskáld lést á laugar-
daginn, áttræður að
aldri. Atli Heimir fædd-
ist í Reykjavík 21. sept-
ember árið 1938. Hann
stundaði nám í píanóleik
við Tónlistarskólann í
Reykjavík og lauk loka-
prófi í tónsmíðum og
tónfræði frá Staatliche
Hochschule für Musik í
Köln árið 1963. Hann
nam raftónlist í Hollandi
1964 og sótti Kölner
Kurse für neue Musik
hjá Karlheinz Stock-
hausen í fyrsta skipti sem þeir voru
haldnir árið 1965.
Atli Heimir var eitt af fjölhæfustu
tónskáldum Íslands og liggur eftir
hann mikill fjöldi tónverka. Þar á með-
al eru tíu einleikskonsertar og sex sin-
fóníur, auk fjölda ein-
leiks- og kammerverka.
Þá samdi hann mikinn
fjölda sönglaga og kór-
verka auk tónlistar fyrir
leikverk. Atli Heimir
samdi fimm óperur, þar
á meðal Silkitrommuna
sem var frumsýnd í
Þjóðleikhúsinu árið 1980
og síðar á leiklistarhátíð
í Venesúela, sjónvarps-
óperuna Vikivaka, sem
var sýnd samtímis um
öll Norðurlöndin 1982
og Tunglskinseyjuna,
sem frumsýnd var í
Peking 1996 og síðar í sett upp í Þjóð-
leikhúsinu. Árið 1976 hlaut Atli Tón-
skáldaverðlaun Norðurlandaráðs
fyrstur Íslendinga fyrir flautukonsert
sinn. Árið 1978 hlaut hann síðan
L’ordre du merite culturel frá Póllandi
og var var kjörinn nefndarmaður í
Konunglegu sænsku tónlistarakadem-
íuna árið 1993. Hann hélt fyrirlestra
við ýmsa háskóla víða um heim og var
gestakennari við CalArts í Los Angel-
es og Brown-háskólann í Providence,
Rhode Island í Bandaríkjunum. Atli
Heimir var staðartónskáld Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands 2004-2007.
Atli Heimir kenndi tónsmíðar og
tónfræði við Tónlistarskólann í
Reykjavík. Hann var formaður Tón-
skáldafélags Íslands árin 1972-1983 og
formaður norræna tónskáldaráðsins
1974-1976. Hann skipulagði tónlistar-
hátíð og aðalfund hins alþjóðlega fé-
lags nútímatónlistar árið 1973 og Nor-
ræna músikdaga 1976. Þá stofnaði Atli
Myrka músikdaga árið 1980.
Sif Sigurðardóttir eiginkona Atla
lést árið 2018. Synir Atla Heimis eru
Teitur f. 1969 og Auðunn f. 1971.
Barnabörnin eru sjö.
Andlát
Atli Heimir Sveinsson tónskáld