Morgunblaðið - 23.04.2019, Side 4

Morgunblaðið - 23.04.2019, Side 4
Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Þótt fáir vinnudagar séu fram und- an í þessari viku er margt á döfinni hjá þeim verkalýðsfélögum sem enn eiga eftir að semja. Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambands Ís- lands og talsmaður iðnaðarmanna í kjaraviðræðum við Samtök atvinnu- lífsins, segir að ef ekki verði samið fyrir helgi verði kosið um verkfalls- aðgerðir félagsmanna. „Við höfum sett okkur það mark- mið að ef við erum ekki komin mjög nálægt enda á samningum fyrir lok vikunnar munum við fara að undir- búa atkvæðagreiðslur um að- gerðir.“ Kristján segir því þétta viku fram undan. „Við munum eiga fund hjá sáttasemjara á miðvikudaginn, þar er allur dagurinn undir. Það verður einhver vinnufundur á morgun [í dag] í afmörkuðum hópi. Svo geri ég ráð fyrir að það verði fundað alveg fram að helgi.“ Kristján fer vongóður inn í við- ræðurnar. „Ég skynja að það er vilji til þess að ræða við okkur og reyna að klára málin áður en kemur til átaka svo maður heldur enn í vonina og fer bjartsýnn inn í þetta.“ Árni Stefán Jónsson, formaður stéttarfélagsins Sameykis, segir nokkuð langt í land í samningavið- ræðum þess við ríkið. Sameyki stígur á bensíngjöfina „Ég á von á því að það verði fullt gas eftir fyrsta maí en samt erum við með fundi í þessari viku, bæði við ríkið, Reykjavíkurborg og Isavia. Svo það er verið að gefa í.“ Árni býst við að samið verði í júní og að viss sigur hafi unnist með til- komu lífskjarasamningsins. Sam- eyki leggi þó áherslu á annars konar útfærslu á styttingu vinnuvikunnar. Hvað Bandalag háskólamanna varðar segir formaður þess, Þórunn Sveinbjarnardóttir, að áhersla verði lögð á viðræður við fjármálaráðu- neytið í þessari viku. „Vonandi fer að færast þungi í viðræðurnar núna eftir páska.“ Slöpp kjörsókn hjá Afli Kosningu um kjarasamning Starfsgreinasambandsins annars vegar og Afls starfsgreinafélags hins vegar lýkur klukkan fjögur síð- Kjaraviðræður fara aftur af stað  BHM vonast eftir „fullum þunga“ í viðræðurnar  Iðnaðarmenn grípa til aðgerða ef ekki er samið fyrir helgi  Langt í land hjá Sameyki  Kosningu hjá Afli og Starfsgreinasambandinu lýkur í dag degis í dag. Starfsgreinasambandið mun kynna niðurstöður atkvæða- greiðslunnar á morgun. Kjörsókn hjá Afli er afar dræm, að því er fram kemur í frétt á vef starfsgreinafélagsins, og er ekki nema rúmlega 18% kjörsókn vegna kjarasamnings verslunarmanna og rúm 16% vegna kjarasamnings verkafólks. Um helgina bárust fréttir þess efnis að ýmis fyrirtæki hygðu á hækkanir á vöruverði vegna launahækkana af völdum lífs- kjarasamningsins. Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands, sagði í samtali við mbl.is um helgina gríðarlega alvarlegt að fyrirtæki skuli boða verðhækkanir meðan á atkvæðagreiðslu um kjarasamninga stendur. Hermann Stefánsson, for- stjóri heildsölu- og framleiðslufyrir- tækisins ÍSAM, segir hækkanirnar eðlilegar þó að tímasetningin hafi verið óheppileg. Ekki sé um klofn- ing innan samtaka atvinnulífsins að ræða eins og Björn Snæbjörnsson, formaður Starfsgreinasambands- ins, hélt fram. Morgunblaðið/Hari Lífskjör Halldór Benjamín Þorbergsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, við undirritun margumrædds lífskjarasamnings. Formaður Sameykis segist ósáttur við þann hluta samningsins sem lýtur að styttingu vinnuvikunnar. Lífskjarasamningurinn verður sveitarfélögunum dýrari en ríkinu, hvað launagreiðslur varðar. Þetta kemur fram í minnisblaði Sigurðar Ármanns Snævars fyrir Samtök íslenskra sveitarfélaga. Kjarasvið sambandsins áætlar að launahækkanir lífskjarasamningsins muni kosta sveitarfélögin fjórum milljörðum krónum meira yfir samningstímann en þær muni kosta ríkið. „Þetta er vegna samsetningar starfsmannahópsins okkar, við erum með fleira fólk í láglaunastörfum. Samsetningin á okkar starfsmanna- hópi er bara þannig að það er alltaf dýrara fyrir okkur,“ segir Inga Rún Ólafsdóttir, sviðsstjóri kjarasviðs sambandsins. Lífskjarasamningurinn sveit- arfélögunum þyngri baggi KOSTAR SVEITARFÉLÖGIN 4 MA.KR. MEIRA EN RÍKIÐ 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 2019 laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is PappelinaMono gólfmotta 27 litir og 8 stærðir Verð frá 14.500 kr. a. 595 1000 AlicanteFlugsæti Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a Báðar leiðir m/tösku og handfarangri Flugsæti frá kr. 39.850 Verð m.v. 10. maí til 17. maí Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra er í 17. sæti yfir launahæstu þjóðarleiðtoga heimsins sam- kvæmt lista bandaríska dagblaðs- ins USA Today sem birtist á páskadag. Hún er ein af fjórum konum á listanum, en listinn miðar við þá einstaklinga sem teljast yfir framkvæmdavaldi eða ríkisstjórn hvers lands, frekar en þjóðhöfð- ingja. Úttekt blaðsins miðar við laun hvers þjóðarleiðtoga á síðasta ári, og eru árslaun Katrínar á árinu 2018 sögð hafa verið 242.619 Bandaríkjadalir, en miðað var við gengi krónunnar í apríl 2018. Í umfjöllun blaðsins segir að ef árslaunum Katrínar væri deilt út á alla Íslendinga myndi hver fá í sinn hlut 73 sent. Þá er bent á að þó að forseti lýðveldisins fái hærri laun sé hlutverk hans að mestu leyti hátíðlegt. Einnig er fjallað örstutt um feril Katrínar og bent á að hún hafi verið bæði í fjölmiðlum og að hún hafi kennt við ýmsa há- skóla í Reykjavík. Skammt á eftir Löfven Athyglisvert er að samkvæmt úttekt USA Today er Katrín með ögn lægri laun en bæði Lars Løkke Rasmussen, forsætisráð- herra Danmerkur og Stefan Löf- ven, forsætisráðherra Svíþjóðar, sem sitja í 15. og 16. sæti listans. Lars Løkke er sagður vera með 249.774 Bandaríkjadali á ári í laun og Löfven, sem blaðið bendir á að hafi verið logsuðumaður á árum áður, var með 244.615 Bandaríkja- dali á síðasta ári. Einungis fjórar konur eru nefndar á listanum, en Angela Merkel Þýskalandskanslari og Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, skipa sjötta og sjö- unda sæti hans. Merkel er sögð vera með 369.727 Bandaríkjadali á ári, eða sem nemur rúmlega 36 milljónum króna, og Ardern með 339.862 dali á ári, eða um 33 millj- ónir króna á ári. Carrie Lam, framkvæmdastjóri Hong Kong er hins vegar launa- hæsta konan á listanum, en hún situr í öðru sæti með 568.400 Bandaríkjadali í árslaun, eða sem nemur rúmum 55 milljónum ís- lenskra króna. Enginn kemst þó í hálfkvisti við Lee Hsien Loong, forsætisráð- herra Singapúr, en hann var með 1.610.000 Bandaríkjadali í árslaun á síðasta ári, sem er ígildi þess að hann hafi verið með rúmar 13 milljónir króna í mánaðarlaun. Af öðrum sem nefna má á lista blaðsins er Donald Trump, sem situr í fjórða sæti, en árslaun hans nema 400.000 Bandaríkjadölum. Tekið er hins vegar fram að Trump hafi látið það fé renna til góðgerðarmála eins og hann lofaði. Einn af fjórum launa- hæstu kvenleiðtogunum  Katrín Jakobsdóttir sögð í 17. sæti yfir launahæstu þjóðarleiðtoga heims  Þrjár Norðurlandaþjóðir á listanum 2. Carrie Lam 7. Jacinda Ardern 4. Donald Trump 6. Angela Merkel 12. Justin Trudeau 15. Lars Løkke Rasmussen 17. Katrín Jakobsdóttir 16. Stefan Löfven 1. Lee Hsien Loong er með um 13 milljónir króna í mánaðarlaun.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.