Morgunblaðið - 23.04.2019, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 23.04.2019, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 2019 Sími 555 2992 og 698 7999 Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra Gott fyrir: • Maga- og þarmastarfsemi • Hjarta og æðar • Ónæmiskerfið • Kolesterol • Liðina Læknar mæla með selaolíunni Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð Óblönduð – meiri virkni Selaolía Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni bætta líðan og heilsu. Guðfinna Sigurgeirsdóttir. „Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“ Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is „Þetta eru náttúrulega gríðarleg verðmæti sem liggja undir skemmd- um og ferðamöguleiki fólks ekki neinn þessa stundina,“ segir Bergur Þorri Benjamínsson, formaður Sjálfsbjargar, landssamtaka hreyfi- hamlaðra, um eldsvoða sem kom upp í bílakjallara húsnæðis að Sléttuvegi 7 á sunnudagsmorgun. Húsnæðið er blokk á vegum Brynju, hússjóðs Öryrkjabandalags Íslands, en þar eru 33 íbúðir fyrir ör- yrkja. Mikið tjón varð á ökutækjum hreyfihamlaðra íbúa. „Maður verður bara að vona það besta en það er náttúrulega rosalega viðkvæmur búnaður í mörgum af þessum bílum,“ segir Bergur. Eigendur bílanna eiga nú erfitt með að komast leiðar sinnar. „Ég trúi ekki öðru en að ferða- þjónusta fatlaðra standi öllum til boða en sumardagurinn fyrsti er til dæmis í næstu viku og ef þú ætlar að skreppa eitthvað þá er það bara úr myndinni,“ segir Bergur. Viðkvæmur búnaður Í kjallaranum eru að minnsta kosti þrír sérútbúnir bílar með hjóla- stólalyftu en búnaðurinn í þeim er sérstaklega viðkvæmur fyrir reyk og raka sem er mikill í kjallaranum. „Þetta er náttúrulega bara í ein- hverjum sótar- og vatnsmekki þarna niðri,“ segir Bergur. Það var mikill erill hjá lögreglu og slökkviliði á höfuðborgarsvæðinu um páskahelgina en á laugardag kviknaði í íbúð í Dalshrauni í Hafnarfirði. Töluverður eldur var í íbúðinni þegar slökkviliðsmenn komu á stað- inn en bráðabirgðaniðurstaða rann- sóknar lögreglu sýnir fram á að kviknað hafi í út frá raftæki. Óvíst hvort tjónið fáist bætt Hvað varðar eldsvoðann á Sléttu- vegi segir Bergur óljóst hvort eig- endur bílanna fái tjónið bætt upp að fullu þar sem sérbúnaður fylgi gjarnan ekki bílunum og þurfi því að tryggja hann sérstaklega. „Ef rafbúnaðurinn í öllum þessum bílunum er ónýtur þá er það svolítið Sjúkratrygginga að svara fyrir það hvernig það fæst bætt.“ Talið er að eldurinn hafi átt upp- tök sín í dekkjum eða rusli í bíla- geymslunni en íbúar höfðu kvartað undan hvoru tveggja áður en eldsins varð vart. Varasöm varsla dekkja Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu er varasamt að geyma mikið af dekkjum saman eins gert var á Sléttuvegi. „Við mælum eindregið gegn því að fólk geymi dekk svona mörg saman,“ sagði slökkviliðsmaður á vakt þegar blaðamaður hafði samband í gær. Slökkviliðið fær reglulega útköll þar sem kviknað hefur í dekkjum. „Stærsti bruninn er náttúrulega Gúmmívinnustofan hérna um árið sem var nú aldeilis hressilegt,“ segir slökkviliðsmaðurinn. Sá eldsvoði er einn af þeim stærstu í Íslandssögunni en átt er við eldsvoðann í Gúmmívinnustof- unni á Réttarhálsi 1989. Ekki fengust upplýsingar hjá slökkviliðinu um það hvort einhverj- ar reglur gildi um geymslu dekkja í fjölbýlishúsum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Eldtungur Mikill eldur var í íbúðinni að Dalshrauni. Íbúðarhúsnæðið er aftan við verslun Húsasmiðjunnar en þar lak inn vatn vegna aðgerða slökkviliðsins. Mikið tjón á sérútbúnum bílum hreyfihamlaðra  Tveir eldsvoðar sömu helgi  Varasamt að geyma mikið af dekkjum í fjölbýli Morgunblaðið/Árni Sæberg Íbúar Húsið við Sléttuveg 7 var rýmt þegar eldur kom upp í bílageymslu hússins. Í húsinu eru íbúðir fyrir öryrkja. Kvikmyndin Hvítur, hvítur dagur var valin til þátttöku á Gagnrýnendaviku (f. Semaine de la Critique) á kvik- myndahátíðinni í Cannes, en um er að ræða nýjustu kvikmynd leikstjórans og handritahöfundarins Hlyns Pálmasonar. Myndin verður heims- frumsýnd á Gagnrýnendaviku og er jafnframt ein af sjö myndum sem valdar hafa verið í keppni á hlið- arviðburði kvikmyndahátíðarinnar, sem fer fram 15.-23. maí. Ingvar E. Sigurðsson og Ída Mekkín Hlynsdóttir fara með aðal- hlutverk í myndinni, en hún fjallar um Ingimund lögreglustjóra sem hef- ur verið í starfsleyfi frá því eiginkona hans lést af slysförum. Í sorginni ein- beitir hann sér að því að byggja hús fyrir dóttur sína og afastelpu, þar til athygli hans beinist að manni sem hann grunar að hafi átt í ástarsam- bandi við konu hans. Fljótlega breyt- ist grunur Ingimundar í þráhyggju og leiðir hann til róttrækra gjörða sem óhjákvæmilega bitnar einnig á þeim sem standa honum næst. Tökur á myndinni fóru fram á Hornafirði, Stöðvarfirði, Fáskrúðs- firði og í Oddsskarði og er leikstjóri og handritshöfundur myndarinnar Hlynur Pálmason. 4 íslenskar myndir tekið þátt Fjórar íslenskar myndir hafa áður tekið þátt í Gagnrýnendavikunni. Kona fer í stríð, eftir Benedikt Erl- ingsson, vann til fernra verðlauna þegar hún tók þátt í fyrra; SACD- verðlaunanna fyrir besta handrit, sem veitt eru að samtökum handrits- höfunda og tónskálda; Gyllta lestar- teininn; áhorfendaverðlaun Val- bonne; og skólaverðlaun kennara og nema. Þá vann kona fer í strið meðal annars til LUX-verðlauna Evrópu- þingsins og Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs. Að auki hafa myndirnar Ingaló, Vandræðamaður- inn og stuttmyndin Víkingar tekið þátt í Gagnrýnendavikunni. Íslensk kvik- mynd valin á Cannes  Hvítur, hvítur dagur í keppni á Critics’Week Ljósmynd/Maria von Hausswolff Valin Kvikmyndin Hvítur, hvítur dagur tekur þátt á Cannes.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.