Morgunblaðið - 23.04.2019, Blaðsíða 25
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 2019
Þýskaland
Wolfsburg – Duisburg............................. 5:0
Sara Björk Gunnarsdóttir lék allan tím-
ann með Wolfsburg.
Hoffenheim – Leverkusen...................... 6:2
Sandra María Jessen lék allan tímann
með Leverkusen.
Rússland
Orenburg – Rostov .................................. 3:0
Ragnar Sigurðsson lék allan tímann með
Rostov en Björn Bergmann Sigurðarson
lék fyrstu 67 mínúturnar.
Lokomotiv Moskva – CSKA Moskva ..... 1:1
Hörður Björgvin Magnússon lék allan
tímann með CSKA og Arnór Sigurðsson
fyrstu 83 mínúturnar.
Grikkland
AEK Aþena – Larissa.............................. 0:1
Ögmundur Kristinsson lék í marki Lar-
issa.
Bandaríkin
Utah Royals – Washington Spirit .......... 1:0
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék allan
tímann með Utah.
Chicago Red Stars – Portland Thorns.. 4:4
Dagný Brynjarsdóttir kom inn á á 90.
mínútu í liði Portland.
Danmörk
Midtjylland – Brøndby............................ 1:2
Hjörtur Hermannsson lék allan tímann
með Brøndby.
Horsens – SønderjyskE .......................... 0:1
Eggert Gunnþór Jónsson fór af velli á
60. mínútu í liði SønderjyskE.
Vejle – AGF .............................................. 2:4
Kjartan Henry Finnbogason lék fyrstu
72 mínúturnar fyrir Vejle.
Hobro – Vendsyssel................................. 3:2
Jón Dagur Þorsteinsson lék fyrstu 84.
mínúturnar fyrir Vendsyssel og lagði upp
annað markið.
Svíþjóð
Sirius – Malmö ......................................... 0:1
Arnór Ingvi Traustason lék síðustu 20
mínúturnar fyrir Malmö.
Hammarby – Eskilstuna ......................... 3:1
Viðar Örn Kjartansson lék allan tímann
fyrir Hammarby og skoraði eitt mark.
Rosengård – Kristianstad ...................... 4:0
Glódís Perla Viggósdóttir lék allan tím-
ann með Rosengård.
Sif Atladóttir og Svava Rós Guðmunds-
dóttir léku allan tímann með Kristianstad
en Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir fór út af á 62.
mín. Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar liðið.
Djurgården – Linköping ........................ 2:3
Guðbjörg Gunnarsdóttir, Ingibjörg Sig-
urðardóttir og Guðrún Arnardóttir léku all-
an tímann með Djurgården og Guðbjörg
varði vítaspyrnu.
Anna Rakel Pétursdóttir lék allan tím-
ann með Linköping.
Noregur
Brann – Vålerenga.................................. 1:1
Matthías Vilhjálmsson fór af velli á 77.
mínútu í liði Vålerenga.
KNATTSPYRNA
Á HLÍÐARENDA
Kristófer Kristjánsson
kristofer@mbl.is
Það var taugaspenna í leikmönnum á
Hlíðarenda í gærkvöldi er Valur
vann Keflavík, 75:63, í fyrsta leik lið-
anna í úrslitum Íslandsmóts kvenna í
körfuknattleik. Bæði lið skoruðu að-
eins eina körfu hvort á fyrstu sex
mínútum leiksins og var staðan 2:2
eftir að tæp 20 skot misstu marks. Að
lokum voru það Valsarar sem tóku
forystuna í rimmunni, en vinna þarf
þrjá leiki til að hreppa Íslandsmeist-
aratitilinn.
Heimakonur færðu sig upp á
skaftið eftir þessa rólegu byrjun og
virtust um tíma ætla að sigla nokkuð
þægilegum sigri í höfn, þrátt fyrir að
eiga ekki sinn besta leik. Helena
Sverrisdóttir ber iðulega af í leikjum
Vals og átti hún afar góðan leik í gær,
skoraði 23 stig, tók tíu fráköst og gaf
sex stoðsendingar en Heather Butler
átti einnig stórleik og reyndist gest-
unum afar erfið viðureignar. Vals-
arar voru mest 16 stigum yfir en í
staðinn fyrir að gera út um leikinn
eftir hlé tókst Keflavík að jafna
metin.
Það gerðist um miðjan þriðja leik-
hluta og á langbesta kafla Keflvík-
inga sem spiluðu mikið betri varnar-
leik eftir hlé jafnframt því sem
heimakonur gáfu aðeins eftir. Vanda-
mál Suðurnesinga voru þó ekki í eig-
in vítateig. Keflvíkingar voru ótrú-
lega ragir í sóknarleiknum og virtust
of oft ekki hafa trú á eigin getu. Gest-
unum gekk ágætlega að koma sér í
færi en iðulega illa að setja þau niður
en Þóranna Kika Hodge-Carr og
Brittanny Dinkins voru stigahæstar í
liði Keflavíkur með 13 stig hvor. Það
er einfaldlega ekki nóg.
Valsarar voru ekki að spila sitt
besta í gærkvöldi, langt frá því. Það
sem heimakonur gerðu vel var að
refsa Keflvíkingum þegar þeir klikk-
uðu, ásamt því að hirða aragrúa af
sóknarfráköstum, Simona Podes-
vova var ein með 11 slík. Valsliðið er
ekki ólíklegt til að bæta sig eftir því
sem líður á seríuna og því þurfa
Keflvíkingar að finna taktinn og það
strax.
Agaðir Valsar-
ar gerðu nóg
Keflvíkingar voru ragir
Heather Butler erfið viðureignar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Úrslit Salbjörg Ragna Sævarsdóttir og Hallveig Jónsdóttir eigast við í gær
Origo-höllin, úrvalsdeild kvenna í körfu-
knattleik, Dominos-deildin, fyrsti úr-
slitaleikur.
Gangur leiksins: 2:2, 2:2, 11:6, 14:6,
20:13, 27:15, 35:20, 39:28, 39:33,
45:40, 49:47, 61:51, 66:57, 66:61,
71:63, 75:63.
Valur: Helena Sverrisdóttir 23/10 frá-
köst/6 stoðsendingar/4 varin skot,
Heather Butler 23/5 fráköst, Hallveig
Jónsdóttir 11/4 fráköst, Guðbjörg
Sverrisdóttir 9/6 fráköst, Simona Po-
desvova 4/17 fráköst, Bergþóra Holton
Tómasdóttir 3, Ásta Júlía Grímsdóttir
Valur – Keflavík 75:63
2/4 fráköst.
Fráköst: 27 í vörn, 20 í sókn.
Keflavík: Brittanny Dinkins 13/7 frá-
köst/5 stoðsendingar, Þóranna Kika
Hodge-Carr 13, Sara Rún Hinriksdóttir
11/7 fráköst, Bryndís Guðmundsdóttir
8/9 fráköst, Birna Valgerður Benón-
ýsdóttir 7/4 fráköst, Elsa Albertsdóttir
4/7 fráköst, Katla Rún Garðarsdóttir 3,
Salbjörg Ragna Sævarsdóttir 2/5 frá-
köst, Irena Sól Jónsdóttir 2.
Fráköst: 32 í vörn, 10 í sókn.
Áhorfendur: 236.
Valur er yfir 1:0.
Stjarna Gylfa Þórs Sigurðssonar
skein skært á páskadag þegar Ever-
ton burstaði Manchester United 4:0
í ensku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu. Líkt og venjulega gerði
Gylfi United-liðinu lífið leitt, en
hann skoraði eitt mark og lagði upp
annað. Gylfi hefur þar með komið
að níu mörkum á móti Manchester-
liðinu á ferli sínum, hefur skorað 5
mörk og lagt upp 4. Þetta var 13.
mark Gylfa í deildinni á tímabilinu
og fékk hann mikið lof fyrir leik
sinn. Gylfi var valinn maður leiksins
hjá BBC og Sky Sports og var í liði
umferðarinnar hjá báðum miðlum.
Gylfi hefur þar með skorað 21
mark í 65 leikjum með Everton í öll-
um keppnum frá því hann gekk í
raðir félagsins í ágúst 2017, þar af
17 í deildinni. Mörkin í ensku úr-
valsdeildinni hjá honum er nú orðin
59 talsins í 244 leikjum og stoðsend-
ingarnir 41.
Liverpool og City héldu sigur-
göngu sinni áfram og ætla að berj-
ast til þrautar um Englandsmeist-
aratitilinn. Liverpool er með
tveggja stiga forskot á City og á
þrjá leiki eftir en Manchester City á
fjóra leiki eftir og sækir granna
sína í United heim annað kvöld.
Liverpool vann 2:0 sigur gegn
Cardiff og er komið með 88 stig sem
er met hjá liðinu í ensku úrvals-
deildinni. Georginio Wijnaldum og
James Milner út vítaspyrnu skor-
uðu mörk Liverpool, sem hefur
unnið níu leiki í röð í öllum keppn-
um.
Hinn 19 ára gamli Phil Foden
skoraði sigurmark City í 1:0 sigri
gegn Tottenham. Þetta var fyrsta
mark hans í deildinni.
gummih@mbl.is
Stjarna Gylfa Þórs
skein skært
AFP
Fögnuður Gylfi Þór fagnar marki
sínu gegn Manchester United.
Alfreð Finnbogason gekkst undir vel
heppnaða aðgerð á kálfa á skírdag og
hann spilar ekki meira með Augs-
burg á leiktíðinni. Það sem verra er
þá mun Alfreð missa af leikjum ís-
lenska landsliðsins gegn Albaníu og
Tyrklandi í undankeppni EM á Laug-
ardalsvellinum í júní en hann stað-
festi það í samtali við Morgunblaðið í
gær. Alfreð hefur verið óheppinn
með meiðsli og hefur aðeins náð að
spila 18 af 30 leikjum Augsburg í
deildinni og í þeim leikjum skoraði
hann 10 mörk. gummih@mbl.is
Alfreð missir
af EM-leikjum
Ljósmynd/Guðmundur Hilmarsson
Úr leik Alfreð Finnbogason verður
frá keppni næstu mánuði.