Morgunblaðið - 23.04.2019, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 23.04.2019, Qupperneq 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 2019 ÍSLANDSMÓTIÐ í Pepsí Max-deild karla og kvenna í knattspyrnu sumarið 2019 PÖNTUN AUGLÝSINGA: Fyrir miðvikudaginn 17. apríl. NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir kata@mbl.is | Sími: 569 1105 –– Meira fyrir lesendur 26. apríl gefurMorgunblaðið út glæsilegt sérblað um SÉRBLAÐ HANDBOLTI Olísdeild karla 8-liða úrslit, leikir 1 og 2: Haukar – Stjarnan ............................... 28:19 Stjarnan – Haukar ............................... 33:25  Staðan er 1:1 FH – ÍBV .............................................. 23:28 ÍBV – FH .............................................. 36:28  ÍBV vann einvígið 2:0. Selfoss – ÍR ........................................... 27:26 ÍR – Selfoss ........................................... 28:29  Selfoss vann einvígið 2:0. Valur – Afturelding ..................... (frl.) 28:25 Afturelding – Valur .............................. 21:31  Valur vann einvígið 2:0. Umspil karla, undanúrslit, 2. leikur: HK – Þróttur ........................................ 27:22  Staðan er 1:1. Þrótti var dæmdur 10:0 sigur í fyrsta leiknum en HK er búið að kæra. Umspil kvenna, fyrsti úrslitaleikur: HK – Fylkir........................................... 22:24  Staðan er 1:0 fyrir Fylki. Þýskaland RN Löwen – Flensburg....................... 23:26  Guðjón V. Sigurðsson skoraði 4 mörk fyrir Löwen, Alexander Petersson ekkert. Bergischer – Melsungen..................... 25:24  Arnór Þór Gunnarsson skoraði 4 mörk fyrir Bergischer. Minden – Bietigheim........................... 30:26  Hannes Jón Jónsson þjálfar Bietigheim. Erlangen – Magdeburg ...................... 26:25  Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Erlangen. B-deild: Coburg – Lübeck-Schwartau ............ 23:28  Sigtryggur Daði Rúnarsson lék ekki með Lübeck-Schwartau. Hüttenberg – Esssen........................... 31:31  Ragnar Jóhannsson skoraði 5 mörk fyrir Hüttenberg. A-deild kvenna: Blomberg-Lippe – Dortmund ............ 24:21  Hildigunnur Einarsdóttir skoraði ekki fyrir Dortmund. Neckarsulmer – Bietigheim............... 16:28  Birna Berg Haraldsdóttir skoraði 1 mark fyrir Neckarsulmer. Spánn Alcobendas – Teucro .......................... 28:28  Stefán Darri Þórsson skoraði ekki fyrir Alcobendas. Danmörk Ribe-Esbjerg – Lemvig....................... 30:26  Rúnar Kárason skoraði 6 mörk fyrir Ribe-Esbjerg og Gunnar Steinn Jónsson 4. Esbjerg – Herning-Ikast .................... 28:24  Rut Jónsdóttir skoraði 2 mörk fyrir Esb- jerg. Frakkland 8-liða úrslit, fyrsti leikur: Toulon – Metz ...................................... 17:28  Mariam Eradze skoraði 1 mark fyrir Toulon. EHF-bikar karla 8-liða úrslit karla, fyrri leikur: H-Burgdorf – Füchse Berlín.............. 26:34  Bjarki Már Elísson skoraði 5 mörk fyrir Füchse. HANDBOLTI Ívar Benediktsson Jóhann Ingi Hafþórsson Guðmundur Tómas Sigfússon Bjarni Helgason Valsmenn voru fyrstir til þess að tryggja sér sæti í undanúrslitum Íslandsmótsins í handknattleik karla. Þeir unnu Aftureldingu örugglega með tíu marka mun, 31:21, að Varmá í fyrsta leik ann- arrar umferðar í dag. Valur var með yfirhöndina í leiknum frá upp- hafi og ekki einu sinni í leiknum náðu heimamenn forystu. Leikur- inn var þó lengst af jafnari en loka- tölurnar gefa til kynna. Til að mynda var aðeins tveggja marka munur, 13:11, að loknum fyrri hálf- leik. Slakur upphafskafli í síðari hálfleik, þar sem Valur náði fimm marka forskoti, eftir aðeins fimm mínútur, varð til þess að leikmenn Aftureldingar sáu fram á að verk- efni þeirra varð erfiðara en ella eft- ir að hafa tapað fyrstu viðureign liðanna á hreint grátlegan hátt á laugardagskvöldið á heimavelli Vals. Sem fyrr segir átti Afturelding heldur á brattann að sækja gegn Val í gær. Varnarleikur Mosfell- inga var viðundandi lengst af. Hins vegar var sóknarleikurinn ekki við- unandi, eða var varnarleikur Vals ef til vill svo góður að Afturelding- armenn áttu fá vopn til þess að brjóta hann á bak aftur? Kannski var það raunin. Það er alveg ljóst að eins og sóknarleikur Aftureld- ingar var að þessu sinni þá átti liðið ekkert erindi lengra í keppninni. Von liðsins virtist fara út í veður og vind við tapið í fyrsta leiknum. Meiri von og trú vantaði í leik liðs- ins í gær. Við mótlætið varð algjört hrun. Leikmenn hentu handklæð- inu inn í hringinn síðustu tíu mín- útur leiksins og létu fara illa með sig. Valsmenn eru til alls líklegir í framhaldinu þrátt fyrir að skörð hafi verið höggvin í leikmannahóp liðsins. Varnarleikur liðsins var og er til fyrirmyndar. Markvarslan var e.t.v. ekkert sérstaklega góð í gær en Daníel Freyr Andrésson minnti þó vel á sig þegar á þurfti að halda í gær. Valsliðið verður seint sakað um að skemmta áhorf- endum sínum með sóknarleik sín- um. Skemmtanagildið er hins veg- ar ekki aðalatriðið heldur árangurinn. Hann var og er góður. Það skiptir öllu máli þegar dæmið er gert upp. Það þekkja Valsmenn e.t.v. best frá því að þeir urðu Ís- landsmeistarar fyrir tveimur árum. Óvæntir yfirburðir Stjörnunnar Stjarnan vann óvæntan en afar öruggan 33:25-sigur á Haukum á heimavelli og jafnaði í 1:1. Flestir áttu von á öruggum 2:0-sigri Hauka í einvíginu og þá sér- staklega eftir níu marka sigur í fyrsta leik. Stjörnumenn voru með bakið upp við vegg og keyrðu þeir værukæra Haukamenn í kaf. Stjörnumenn mættu af miklum krafti í leikinn, gegn Haukamönn- um sem héldu að þeir gætu klárað verkefnið með vinstri. Stjarnan náði snemma fimm marka forskoti og tókst Haukum ekki að jafna eftir það. Þeim tókst að minnka muninn í eitt mark í fyrri hálfleik, en Stjarnan var með svör við öllu og náði mest tíu marka forskot í seinni hálf- leik. Aron Dagur Pálsson átti einn sinn besta leik á tímabilinu. Hann skoraði sjálfur átta mörk og lagði upp ófá á liðsfélaga sína. Stjörnu- menn leituðu hvað eftir annað að honum og sáu ekki eftir því. Hjálmtýr Alfreðsson átti mjög góðan leik í vinstra horninu og Sverrir Eyjólfsson var sterkur á línunni. Hvergi var veikan blett að finna hjá Stjörnumönnum. Sveinbjörn Pétursson byrjaði í markinu og varði ágætlega, þang- að til Sigurður Ingiberg Ólafsson tók við af honum og varði ótrúlega vel. Fyrir framan var vörn sem dansaði á línunni. Hún var mjög hörð en fór ekki yfir strikið. Haukamenn hljóta að skammast sín fyrir frammistöðuna. Fyrir ut- an Adam Hauk Baumruk spilaði enginn vel og einkenndist leikur Hauka af miklu kæruleysi. Deildarmeistararnir héldu að Stjarnan yrði auðveld bráð og fengu það hressilega í andlitið. Haukar voru seinir á hvern ein- asta bolta og var sóknarleikurinn tilviljunarkenndur. Beðið var eftir því að Adam Haukur eða Tjörvi Þorgeirsson myndu taka á skarið og réðu þeir svo engan veginn við góðan sóknarleik Stjörnumanna. Haukar hörfuðu gegn harðri vörn Stjörnumanna og voru hrein- lega ekki til í slaginn, sem þarf í hvern einasta leik í úrslitakeppn- inni. Þrátt fyrir úrslitin búast flestir við að Haukar fari áfram. Þeir eru á heimavelli í oddaleiknum og hljóta þeir að nýta þessa köldu vatnsgusu til að efla leik sinn. Það verður að vera á tánum í úrslita- keppninni. Eyjamenn sendu bikarmeistara FH í sumarfrí í gær þegar liðin áttust við í Vestmannaeyjum. Leiknum lauk með átta marka sigri 36:28 og var í raun aldrei spurning hvort liðið myndi bera sigur úr býtum. Stjarnan skellti deildar- meisturunum  Oddaleikur hjá Haukum og Stjörn- unni  Afturelding, FH og ÍR í sumarfrí TM-höllin, 8-liða úrslit karla, 2. leik- ur, mánudaginn 22. apríl 2019. Gangur leiksins: 4:2, 8:4, 11:6, 11:7, 13:10, 15:12, 17:14, 21:18, 25:19, 28:19, 30:22, 33:25. Mörk Stjörnunnar: Aron Dagur Pálsson 8, Hjálmtýr Alfreðsson 6, Sverrir Eyjólfsson 5, Leó Snær Pétursson 4, Andri Rúnarsson 3, Árni Sigtryggsson 3, Garðar Sigur- jónsson 2/2, Birgir Jónsson 2. Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 9, Sigurður Ingiberg Ólafsson 6. Utan vallar: 6 mínútur. Stjarnan – Haukar 33:25 Mörk Hauka: Adam Haukur Baum- ruk 8, Tjörvi Þorgeirsson 5, Heimir Óli Heimsson 3, Darri Aronsson 2, Atli Már Báruson 2, Einar Pétur Pét- ursson 2, Orri Freyr Þorkelsson 1, Halldór Jónasson 1, Ásgeir Örn Hall- grímsson 1. Varin skot: Andri Scheving 9, Grétar Ari Guðjónsson 4. Utan vallar: 6 mínútur. Dómarar: Bjarki Bóasson og Gunnar Óli Gústafsson. Áhorfendur: 530.  Staðan er 1:1. Austurberg, Olísdeild karla, 8-liða úr- slit annar leikur mánudaginn 22. apríl 2019. Gangur leiksins: 5:2, 8:5, 12:8, 15:10, 17:13, 18:16, 20:20, 23:21, 24:23, 26:25, 27:26, 28:29. Mörk ÍR: Björgvin Þór Hólmgeirsson 7, Pétur Árni Hauksson 7, Sturla Ás- geirsson 4/3, Bergvin Þór Gíslason 3, Þrándur Gíslason Roth 3, Kristján Orri Jóhannsson 2, Sveinn Andri Sveins- son 2. Varin skot: Stephen Nielsen 10/2. Utan vallar: 8 mínútur. ÍR – Selfoss 28:29 Mörk Selfoss: Haukur Þrastarson 7, Hergeir Grímsson 6/3, Árni Steinn Steinþórsson 4, Elvar Örn Jónsson 4/1, Nökkvi Dan Elliðason 2, Atli Ævar Ingólfsson 2, Guðni Ingvarsson 2, Pawel Kiepulski 1, Guðjón Baldur Ómarsson 1. Varin skot: Pawel Kiepulski 4, Sölvi Ólafsson 2. Utan vallar: 12 mínútur. Dómarar: Anton Gylfi Pálsson og Jón- as Elíasson Áhorfendur: 510.  Selfoss vann einvígið 2:0.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.