Morgunblaðið - 23.04.2019, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 2019
hann eyddi mörgum mánuðum í
námunum í Carrara að velja falleg-
asta og hvítasta marmara sem völ
var á, en þá stóð til að minnisvarðinn
yrði í sjálfri Péturskirkjunni.
Gegnum árin var Michelangelo
ítrekað kallaður að öðrum verkum,
fyrst í stað í Sixtusarkapellunni fyrir
sama páfann, en svo er Júlíus var lát-
inn árið 1513 var smám saman dreg-
ið úr fé til verksins – ekki síst vegna
kostnaðar við Péturskirkjuna – og að
lokum endaði minnisvarðinn sem
réttur fjórðungur þeirrar stærðar
sem Michelangelo hafði áætlað, og
sem veggverk, ekki frístandandi – og
ekki í Péturskirkjunni heldur í lítt
þekktri kirkju sem stendur á frekar
fáförnum stað, San Pietro e Vincoli á
Esquiline-hæðinni, en þar var Júlíus
áður kardínáli og var grafinn þar.
Það er skýring á hornunum
Michelangelo hafði séð fyrir sér að
minnisvarðinn um Júlíus yrði eitt af
lykilverkum sínum og hjó hann út
fyrir hann nokkrar glæstar en trag-
ískar fígúrur sem komust svo ekki að
í endanlegri útgáfu en má sjá stakar
í dag, til að mynda þrælana sem eru í
Louvre-safninu í París og Acca-
demia-safninu í Flórens. En Móses
hélt sér frá upphaflegri hönnun
minnisvarðans, situr þar fyrir miðju,
innan um fígúrur sem aðstoðarmenn
meistarans hjuggu út. Michelangelo
var afar ánægður með það hvernig
honum tókst til með hann; svo
ánægður segir sagan, að honum hafi
þótt Móses svo lifandi að hann hafi
slegið hamri í hné hans og sagt „og
talaðu þá!“ – Mun marka fyrir högg-
inu í marmaranum.
Þótt kirkjan með Mósesi sé frekar
út úr hefðbundnum leiðum ferða-
manna í Róm gera þó margir sér
ferð til að skoða verkið. Og eitt vekur
sífellt áhuga þeirra sem standa
frammi fyrir glæsilegu sköpunar-
verkinu, eins og ég heyrði glögglega
rætt þar í vikunni, bent á og spurt:
Hvað er þetta með hornin?
Því Móses er með horn; tvo hnýfla
sem minna á þá sem standa upp úr
haus hrútlamba er líður á sumarið.
Og er óneitanlega sérkennilegt.
En það er skýring á þessum horn-
um, sem þóttu alls ekki skrýtin á sín-
um tíma því þau byggðust á lestri
heilagrar ritningar – sem var því
miður þó rangt þýdd úr hebresku á
latínu á miðöldum. Þar sagði að Mós-
es hefði snúið af Sínaífjalli eftir sam-
ræður við Guð, með tvö horn á höfð-
inu. Um svipað leyti og verk
Michelangelos var afhjúpað fyrir
miðja sextándu öld voru þarlendir
biblíuskýrendur að átta sig á því að
það sem hafði verið þar viðtekinn
sannleikur um aldur, að horn hefðu
vaxið á Móses á fjallinu, þýddi þess í
stað að hann hefði orðið fyrir slíkri
uppljómun að geislum hefði stafað af
höfði hans. En þær upplýsingar bár-
ust myndhöggvaranum snjalla of
seint og því sjáum við og dáumst að,
enn í dag, hornum stingast upp úr
steindum hárlubba söguhetjunnar.
Hnýflar Horn standa upp úr höfði Mósesar í hinni frægu
höggmynd og er ástæðan misskilningur í þýðingu.
Hylling Rafael setti Michelangelo inn í sitt frægasta
myndverk sem er í einu herbergja páfa í Vatíkaninu.
Varð minna Höggmynd Michelangelos af Mósesi er fyrir miðju í verkinu sem hann skapaði á gröf Júlíusar II páfa í
kirkju í Róm. Upphaflega ætlaði Michelangelo að gera miklu mun stærra og frístandandi verk yfir gröfina.
Morgunblaðið/Einar Falur
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is
Góð þjónusta
byrjar með
flottum fatnaði.
Fatnaður fyrir fagfólk
Nú finnur
þú það sem
þú leitar að
á FINNA.is
IÐNAÐARMENN VERSLANIR
VEITINGAR VERKSTÆÐI
BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA