Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.04.2019, Side 4
Á krossgötum
merkinga
Í ár eru sextíu ár frá stofnunSjálfsbjargar, landssambandshreyfihamlaðra, og efndu sam-
tökin til samkeppni meðal nemenda
Listaháskóla Íslands um nýtt merki.
Þykir fyrirhuguð breyting merkileg
fyrir þær sakir að merki félagsins
hefur fylgt því frá stofnun árið 1959
og hefur merkinu lítið verið breytt á
þessum sextíu árum, nema í þeim til-
gangi að auðvelda lestur með því að
breyta letrinu úr höfðaletri í latn-
eskt letur.
Þá má segja að merkið sé tákn-
rænt fyrir baráttu samtakanna og
sýnir það karlmann sem glímir við
ókleifan hamar. Mörgum þykir
óneitanlega vænt um merki Sjálfs-
bjargar sem teiknað var fyrir sam-
tökin af Ríkarði Jónssyni mynd-
höggvara árið 1958. En það er
auðvitað spurning hvort merki með
karlmann í aðalhlutverki eigi heima í
nútímasamfélagi með það í huga að
samtök af þessu tagi eru til þess fall-
in að höfða til allra. Ekki síður er
spurning hvort hið gamla góða
merki höfði til yngri kynslóða.
Tíðarandinn
Formaður Sjálfsbjargar, Bergur
Þorri Benjamínsson, segir það einn
þeirra þátta sem hefur verið rætt um
í sambandi við breytingu á merki
samtakanna, en einnig eru þó
ákveðnar hagnýtar ástæður svo sem
nothæfi merkis við prentun kynning-
arefnis, á vefnum og öðru slíku. „Það
hafa öll samtök á einhverju tímabili
skipt um merki og það er bara part-
ur af því að fylgja tíðarandanum,“
segir Bergur sem bendir á mikilvægi
þess að samtök höfði til nútímans og
horfi til framtíðar. Þá hafa öll systur-
samtök Sjálfsbjargar á Norður-
löndum tekið upp ný merki.
Þótti við hæfi að leita til ungs
fólks í Listaháskólanum, sem hefur
lagt fyrir sig merkjafræði, til þess að
nútímavæða einkenni samtakanna.
Sextán tillögur bárust samtökunum
frá nemendum skólans og stendur
nú valið milli þriggja tillagna sem
valið verður á milli á landsfundi
Sjálfsbjargar 4. maí. Eins og nefnt
hefur verið eru merkjum oft bundn-
ar miklar tilfinningar og hafa mynd-
ast líflegar umræður um málið á
Facebook-síðu Sjálfsbjargar, þó
verður að segjast að flestir virðast
nokkuð sáttir við áformin. Þetta
kann að virðast ómerkilegt þrætu-
epli að mati sumra, en samtök sem
hafa skipt marga landsmenn miklu
máli í áraraðir tengjast líklega
mönnum miklum tilfinningalegum
böndum.
Bergur bendir á að breytingin
verður ekki til þess að hið gamla
verði gleymt, heldur mun það
verða viðhaft við sérstök tilefni enda
vel þekkt og eru merkinu bundnar
miklar tilfinningar. „Þetta er náttúr-
lega listaverk,“ bætir hann við.
Fagna afmælinu
Stofnþing Sjálfsbjargar var haldið 4.
júní 1959 í Þingholtsstræti 27 í
Reykjavík og sótti 21 fulltrúi þingið
frá fimm félagsdeildum, að því er
segir í umfjöllun Morgunblaðsins á
þeim tíma. Ályktað var á fundinum
að beina áskorun til Alþingis um að
örorkulífeyrir yrði greiddur án tillits
til tekna og hann hækkaður um 30%,
að sjúkrabætur yrðu greiddar jafnt
húsmæðrum sem eiginmönnum og
að hjónum sem væru bæði örorkulíf-
eyrisþegar yrði greiddur tvöfaldur
einstaklingslífeyrir.
Samtökin hyggjast halda afmælis-
hóf 1. júní og verður örugglega búið
að ná sátt um merkjamálið fyrir
þann tíma og öllum fært að fagna
þeim merka áfanga í sögu samtak-
anna í sátt og samlyndi.
Landssamband hreyfihamlaðra verður sextíu
ára á þessu ári. Samtökin boða ferska ímynd
þrátt fyrir háan aldur og verður nýtt merki
Sjálfsbjargar valið á landsfundi þeirra í maí.
Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Tillögurnar þrjár verða bornar upp á landsfundi Sjálfsbjargar í maí. Eru þær sagðar vera merki um breytta tíma.
Hið sígilda merki Sjálfsbjargar
1959-2019
HEIMURINN
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.4. 2019
Páskar eru hátíð upprisunnar. Þá fagnakristnir menn því þegar Jesús reis uppfrá dauðum. Sennilega er þetta mesta
hátíð kristinnar trúar. Í raun miklu merkilegri
en jólin, enda miklu merkilegra að lifna við en
fæðast. Og að sjálfsögðu miklu sjaldnar sem
það gerist. En kannski hafa jólagjafirnar að-
eins ruglað okkur í þessum samanburði.
Viku fyrir páskadag fengum við hinsvegar
aðra tegund af upprisu. Heldur veraldlegri og
sennilega ómerkilegri en samt svo merkilega
að milljónir manna um allan heim fylgdust
agndofa með manni að keppast við það að kom-
ast í frekar óklæðilegan jakka í lit sem er fyrir
löngu farinn úr tísku.
Þetta var Tiger Woods. Hann er 43 ára
Bandaríkjamaður sem iðkar þá göfugu íþrótt
sem golfið er.
Útum allan heim felldi fólk tár af gleði.
Áhorf á golf hefur ekki verið meira árum sam-
an og það má gera ráð fyrir að svo að segja
allir, nema nánustu ættingjar annarra kepp-
enda, hafi haldið með honum.
Það sem gerir þessa sögu merkilega er að
hann var nánast útskúfaður. Hann fór frá því
að vera einhver dáðasti íþróttamaður heims yf-
ir í að vera allt að því glæpamaður. Farsælt
hjónaband á yfirborðinu var semsagt bara þar.
Í ljós kom flókinn vefur framhjáhalds, vændis-
kvenna og klámstjarna. Allt náði þetta há-
punkti í nóvember 2009 þegar fyrrverandi
eiginkona hans braut afturrúðuna í bíl hans
(með golfkylfu, en ekki hverju?) eftir að hann
hafði ekið, drukkinn, frá heimili þeirra. Þá
hafði hún semsagt komist að því að hann var
ekki allur þar sem hann var séður.
Í kjölfarið fylgdi eitt mesta hrun íþrótta-
manns sem um getur í sögunni. Hann var nán-
ast útskúfaður, missti flesta auglýsingasamn-
inga sína, var á barmi taugaáfalls sjálfur og
djúpt sokkinn í lyfjaneyslu vegna stöðugra
álagstengdra bakmeiðsla. Ofaní kaupið virtist
hann ekki kunna lengur að spila golf.
Í kjölfarið kom eyðimerkurgangan. Maður-
inn sem hafði unnið öll mót komst ekki einu
sinni hálfa leið. Náði ekki gegnum niðurskurð
og var sendur heim eftir tvo hringi af fjórum.
Meiðslin gerðu það að verkum að hann hætti
leik aftur og aftur. Maðurinn sem hafði svo
gríðarlega yfirburði var skyndilega orðinn að-
hlátursefni.
Fyrir tveimur árum virtist svo komið að
endalokunum. Eftir enn eina bakaðgerðina var
hann stöðvaður af lögreglu, ófær um akstur
vegna notkunar verkjalyfja. Þá stóðu sérfræð-
ingarnir í röðum með yfirlýsingar um að þessi
maður myndi aldrei sigra á golfmóti framar,
hvað þá risamóti á borð við The Masters.
Tæpum tíu árum eftir útskúfunina stóð hann
svo á 18. flötinni á National Augusta-vellinum í
Georgíu og hrópaði til himins, eftir að hafa sett
niður síðasta púttið. Áhorfendur sem höfðu
haldið niðri í sér andanum fögnuðu ógurlega
og margir felldu tár. Hið ómögulega hafði
gerst og endurkoman var kraftaverki líkust.
Vitanlega er ekki hægt að bera síðustu helgi
saman við atburði fyrir rúmlega tveimur þús-
undum ára en það var eitthvað biblíulegt við
þessa stund. Og hún hefur örugglega endur-
vakið trú einhverra á mátt upprisunnar. Svona
í hinu daglega lífi okkar dauðlegra.
’Milljónir manna um allanheim fylgdust agndofa meðmanni að keppast við það að kom-ast í frekar óklæðilegan jakka í lit
sem er fyrir löngu farinn úr tísku.
Á meðan ég man
Logi Bergmann
logi@mbl.is
Upprisan á golfvellinum
1
SKRIFSTOFUHÚSGÖGN
Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is
Bjóðum uppá húsgögn
eftir marga fræga
húsgagnahönnuði.
Mörg vörumerki.
1. Sigurlaun á Mastersmótinu er ekki bikar, eins og á
flestum golfmótum, heldur grænn jakki sem sigurveg-
arinn er klæddur við sérstaka athöfn að móti loknu.