Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.04.2019, Page 15
21.4. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
opinbert. Þá opnaði hún Facebook-síðuna
Visku ljóssins.
Að þjálfa ímyndunaraflið
Fyrir um fimm árum stofnaði Hrafnhildur
ásamt vinkonu sinni Unni Örnu Jónsdóttur
fyrirtækið Hugarfrelsi. „Hún er líka andlega
þenkjandi og ég fann sterkt á mér að við ætt-
um að vinna saman, en ég vissi bara ekki við
hvað. Ég fór í hugleiðsluskóla til Indlands um
haustið 2013 og eftir að ég kom heim vissum
við það báðar, að við ættum að fara að kenna
börnum hugleiðslu. Við uppgötvuðum það á
sama tíma. Fyrst bjuggum við til heilræða-
spjöld og síðan bjuggum við til námskeið fyrir
börn. Þetta hefur vaxið mikið síðan. Núna er-
um við í tíu sveitarfélögum með námskeið og
kennarar á okkar vegum eru víða. Svo erum
við að innleiða í leikskóla og grunnskóla önd-
un, slökun, hugleiðslu, jóga og sjálfsstyrkingu.
Við kennum fagfólki að nota aðferðirnar með
nemendum. Við leggjum mikla áherslu á að
kenna þeim djúpa öndun sem er fyrst og
fremst notuð til þess að róa hugann og tengj-
ast sjálfum sér. Við kennum þeim að veita góð-
um og uppbyggilegum hugsunum athygli og
þá eru meiri líkur á því að börnunum líði betur
og fari í kjölfarið að hegða sér betur. Það er
nauðsynlegt að við lærum betur á huga
okkar,“ segir hún.
„Svo notum við slökunaræfingar og hug-
leiðslusögur. Þar erum við að þjálfa ímynd-
unaraflið, því þegar krakkar eru mikið í tölv-
um og símum þá dregur verulega úr
ímyndunaraflinu. Þetta er svo mikilvægt því
öll ímyndun er sköpun,“ segir Hrafnhildur, en
hún hefur alls skrifað sjö bækur.
„Þær eru meira og minna allar sprottnar úr
hugleiðsluástandi. Tvær tónlistarbækur, ein
stafabók fyrir yngstu börnin og svo fjórar
bækur frá Hugarfrelsi. Svo er að koma út bók
fyrir ungmenni en hún byggist á því að þú hef-
ur val á hverjum degi hverju þú veitir athygli
og hvernig þú tekst á við þau verkefni sem lífið
færir þér. Mörgum ungmennum reynist snúið
að fóta sig í þeim hraða heimi sem við búum í.
Þau eiga erfitt með að fylgja sínu eigin hjarta,
finna jafnvel fyrir vanlíðan og óöryggi varð-
andi framtíðina. Meðfram þessu er ég búin að
semja vögguvísu- og bænabók sem kemur út
bráðum,“ segir hún.
„Við erum með námskeið fyrir ýmsa aldurs-
hópa barna og unglinga út um allt land. Þessi
námskeið eru bæði forvarna- og sjálfsstyrk-
ingarnámskeið. Það eru kennarar á okkar veg-
um sem annast námskeiðin en ég er sjálf með
tvo hópa. Svo erum við með fyrirlestra fyrir
foreldra og fyrir ungmenni,“ segir Hrafnhild-
ur sem segist hafa nóg að gera yfir veturinn.
Hún segir gott að hafa minna að gera á sumrin
og í öðrum fríum því það er að mörgu að
hyggja með fimm börn á ýmsum aldri.
Börnin bestu kennararnir
Hún segir börn sín fimm ekki hafa farið var-
hluta af hugleiðslukennslunni.
„Þau eru mjög opin fyrir því hvernig ég
horfi á lífið og tilveruna,“ segir hún.
„Öll börnin mín hafa kennt mér svo margt.
Þau eru mjög ólík. Kári er mjög þroskuð sál og
ofboðslega flinkur að teikna. Hann er fæddur
með hæfileikana. Hann er mjög listrænn og
með mikið jafnaðargeð. Svo kemur Óttar sem
ég þurfti að hafa meira fyrir, er með stórt og
mikið skap. En hann hefur kennt mér svo
mikla þrautseigju og að standa fast á mínu. Í
dag er hann mjög metnaðarfullur námsmaður.
Ásdís er miðjubarnið og hún er með allt á
hreinu. Það hefur ekki þurft að ala hana upp,
það má segja að hún ali mig upp! Svo kom
Theodór Snorri sem er guðsgjöf, en nafnið
þýðir einmitt það. Theodór Snorri hefur opnað
hjarta mitt, því hann er mjög tilfinninga- og
kærleiksríkur. Sigrún Linda hefur kennt mér
að sýna öðrum ást og umhyggju. Hún er mjög
mikið fyrir knús og faðmlög. Ástæðan fyrir því
að ég nefni þetta er að börn eru bestu kenn-
arar okkar og við lærum betur á okkur sjálf
þegar við speglum okkur í þeim.“
Ekki bölva vekjaraklukkunni
Í gegnum alla reynslu sem Hrafnhildur hefur
gengið í gegnum er hún orðin viss um að þetta
sé ekki okkar eina líf, lífið hér á jörðinni.
„Ég trúi því að sálin sé eilíf og hef ég fengið
að sjá mörg fyrri líf í gegnum hugleiðslur. Inn-
tak kristinnar trúar talar sterkt til mín. Jesús
var skapaður í Guðs mynd eins og við öll. Boð-
skapurinn gengur út á að opna augu okkar fyrir
kærleikanum og hjálpa öðrum. Jesús er frábær
fyrirmynd og sannkallaður leiðtogi,“ segir hún.
„Við gleymum oft að við erum öll í sama liði
og þurfum að stíga inn í kærleikann og hjálp-
semina og vera þakklát. Við hjá Hugarfrelsi
tölum um það að fólk eigi að byrja daginn á já-
kvæðri hugsun. Þegar vekjaraklukkan hringir
eigum við ekki að bölva henni heldur að þakka
fyrir að geta farið á fætur. Á kvöldin ættum við
að venja okkur á að þakka fyrir hvað dagurinn
hefur fært okkur,“ segir hún.
Ertu með vissu fyrir því að það sé líf eftir
þetta líf?
„Já, ég veit það. Annar og betri heimur sem
hægt er að tengjast á einfaldan hátt. “
Þannig að þú ert ekki hrædd við dauðann?
„Nei, hann er ekki til, dauðinn er einungis
umbreyting því sálin er ódauðleg.“
Morgunblaðið/Ásdís
Hrafnhildur og Arnar Þór eiga fimm börn. Kári Þór er elstur, fæddur 1997, Óttar Egill er fæddur
2001, Ásdís árið 2004, Theodór Snorri 2007 og Sigrún Linda árið 2012.