Fréttablaðið - 18.06.2019, Side 8
Hún var 95 ára
gömul en ef þú
spyrð einhvern sem var
náinn henni verður þér sagt
að hún hafi verið yngsta
manneskjan sem þau
þekktu.
Anderson Cooper
Brimborg Reykjavík
Bíldshöfða 6
Sími 515 7000
Brimborg Akureyri
Tryggvabraut 5
Sími 515 7050
Nýir og notaðir bílar:
Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17
og laugardaga kl. 12-16
24.624 kr.
• Miðað við 90% Lyk
illán
• Kaupverð 1.690.00
0 kr.
• Útborgun 169.000
kr.
• Vextir 8%
• Lánstími 84 mánuð
ir
• Árleg hlutfallstala k
ostnaðar 9,60%
Mánaðargreiðsla:
SUMARTILBOÐ:
KR.
Komdu, reynsluaktu og upplifðu Ford KA+
1.690.000
ford.is
GEGGJUÐ TILBOÐ!
FORD KA+
ULTIMATE SPORT 1.2i bensín, 85 hö, beinskiptur
SUMARTILBOÐ!
BRIMBORGAR -365.000 kr.
Verð með málmlit:
2.055.000 kr.
Ford_KA+_SUMARTILBOÐ_5x15_20190607_END.indd 1 07/06/2019 15:44
HONG KONG Jimmy Sham, frá Civil
Human Rights Front mótmæla-
hópnum, segir um tvær milljónir
manna hafi mætt á sunnudaginn,
sem eru tvöfalt f leiri en mættu 9.
júní síðastliðinn á fyrstu mótmæl-
unum.
Nú segja forystumenn mótmæl-
anna að kröfum fólksins verði ekki
fullnægt fyrr en lagabreytingin
fyrirhugaða verði dregin til baka
og afsögn Carrie Lam, æðsta stjórn-
anda kínverska sjálfsstjórnarhéraðs-
ins Hong Kong, verði tilkynnt. Lam
lagði til lagabreytinguna sem varð
kveikja mótmælanna. Þessu greinir
vefur South China Morning Post frá.
Lam hefur síðan beðist afsök-
unar í opinberri yfirlýsingu frá
ríkisstjórn Hong Kong og segist
ríkisstjórnin skilja að mótmælin
eigi rætur að rekja til „ástar og
umhyggju fyrir Hong Kong“ og að
Lam muni tileinka sér „einlægari og
auðmjúkari viðhorf“ gagnvart gagn-
rýni frá almenningi.
Merki þess að ríkisstjórn Hong
Kong hafi áhuga á að koma til móts
við mótmælendur má einnig sjá
annars staðar en Joshua Wong,
einum helsta aðgerðasinna stúdenta
í Hong Kong, var sleppt úr fangelsi
í gær.
Wong, sem er 22 ára, varð andlit
regnhlífarhreyfingannar 2014, en
þá snerust mótmælin um að íbúar
Hong Kong fengju að kjósa sína
eigin leiðtoga. Mótmælin stóðu þá
í 79 daga en mótmælendur settu
upp tjaldbúðir í miðju fjármála-
hverfi borgarinnar og lömuðu alla
starfsemi þar. Wong sagðist á blaða-
mannafundi eftir að hann var látinn
laus vera tilbúinn að taka slaginn og
kallaði eftir afsögn Lam.
Þó er þetta „of lítið, of seint“ fyrir
marga mótmælendur, sem verða
ekki sáttir fyrr en Lam segir af sér og
lagabreytingin er dregin til baka að
sögn Helier Cheung hjá BBC í Hong
Kong, sem birti fréttaskýringu um
málið í gær. palmik@frettabladid.is
Enn mótmælt í Hong Kong
Mótmælin í Hong Kong hafa vakið athygli á heimsvísu en um er að ræða stærstu mótmæli í sögu
sjálfsstjórnarhéraðsins. Mótmælin snúa að fyrirhugaðri lagabreytingartillögu um framsal fanga til Kína.
Mótmælt í Hong Kong. Á myndinni má sjá Joshua Wong, aðgerðasinni stúdenta á mótmælunum. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
BANDARÍKIN Tískuhönnuðurinn,
listamaðurinn og rithöfundurinn
Gloria Vanderbilt lést á mánudags-
morgun 95 ára að aldri. Þessu er
greint frá á vef CNN en sonur henn-
ar, Anderson Cooper, er án efa einn
þekktasti þáttastjórnandi miðilsins
og var það þess vegna viðeigandi að
Cooper f lutti fréttina sjálfur fyrir
CNN, fyrst allra fréttaveita.
Vanderbilt lést á heimili sínu í
New York, umkringd vinum og
ættingjum, eftir baráttu við maga-
krabbamein, að sögn Coopers.
Gloria Vanderbilt var barnabarn
eins mest áberandi viðskipta jöfurs
19. aldarinnar, Cornelius Van-
derbilt, og erfði hún auð hans og
eignir.
„Hún var 95 ára gömul en ef þú
spyrð þá sem voru nánir henni
verður þér sagt að hún hafi verið
y ngsta manneskjan sem þeir
þekktu, sú svalasta og nútímaleg-
asta,“ bætti Cooper við. - pk
Gloria
Vanderbilt látin
95 ára gömul
Gloria Vanderbilt lést á heimili sínu
í New York. NORDICPHOTOS/GETTY
1 8 . J Ú N Í 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
8
-0
6
-2
0
1
9
0
6
:0
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
3
C
-0
E
3
4
2
3
3
C
-0
C
F
8
2
3
3
C
-0
B
B
C
2
3
3
C
-0
A
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
6
4
s
_
1
7
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K