Fréttablaðið - 18.06.2019, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 18.06.2019, Blaðsíða 41
Þarna erum við kominn með tvö efni, annað sem ver húðina gegn sólargeisl- um og minnkar bólgur í húðinni og hitt sem viðheldur raka. dr. Lilja Kjalarsdóttir AstaSkin, frá KeyNatura, er sérsniðið fyrir ljómandi og heilbrigða húð. Blandan, sem kemur í hylkjaformi, inni- heldur meðal annars Astaxanthin sem ver húðina fyrir sól og dregur úr fínum línum, seramíð, sem við- heldur raka í húðinni, og kollagen, sem er byggingareining húðar, hárs og nagla auk þeirra vítamína sem húðin þarfnast til að viðhalda heilbrigði og raka. Dr. Lilja Kjalarsdóttir, aðstoðar- framkvæmdastjóri, hjá Key- Natura, segir að AstaSkin sé fæðubótarefni en uppruninn er nokkuð merkilegur. „Við erum að rækta smáþörunga í Hafnar- firði sem framleiða efni sem við sækjumst eftir og heitir Astaxant- hin. Það hefur ýmsa eiginleika og einn áberandi eiginleiki í öllum rannsóknum sýnir að Astaxanthin ver húðina fyrir geislum sólar- innar. Í rauninni getur það komið í veg fyrir ótímabæra öldrun húðarinnar vegna útfjólublárra geisla. Við hér í KeyNatura höfum mikinn áhuga á Astaxanthin og erum að vinna mikið með það efni og höfum gaman af eiginleikum þess,“ segir hún. AstaSkin er nýjasta varan í f lóru KeyNatura en fyrir voru AstaEnergy, AstaCardio, Asta- Lýsi og AstaFuel. Lilja segir að AstaSkin hafi slegið í gegn og sé nú söluhæsta varan. „Við erum með öflugan og góðan hóp af matvæla-, efna- og sameindalíffræðingum auk fólks sem er með annaðhvort doktors- eða mastersgráðu hér innanhúss. Öll höfum við mikinn áhuga á heilsu og efnum sem koma úr náttúrunni. Við lögðumst aðeins undir feld og fórum að hugsa hvað við gætum búið til sem væri algjör sprengja fyrir húðina og útkoman úr þróunarvinnunni er AstaSkin blandan. Sýnt hefur verið fram á í klín- ískum rannsóknum að skammt- urinn, sex milligrömm af Astax- anthin, hafi góð áhrif á húðina og verji hana fyrir útfjólubláu geislunum. Síðan erum við með öfluga seramíð-blöndu sem heitir Myoceram og er klínískt rannsak- að innihaldsefni þróað í Japan. Það gefur húðinni þann eiginleika að hún verður vatnsheldari. Seramíð er í ysta lagi húðarinnar og ver húðina fyrir vökvatapi en eftir því sem fólk eldist þá minnkar magn seramíða í húðinni og það verður viðkvæmara fyrir vökvatapi. Þess vegna er húðin á fullorðnu fólki þurrari en hjá krökkum til dæmis. Ef við tökum dæmi um fólk sem fer í sund og í klór þá þurfa krakkar ekkert að bera á sig krem en fullorðna fólkið verður stíft í húðinni. Þessi blanda hefur verið rannsökuð í klínískri rannsókn á fólki og sýnt hefur verið fram á að hún viðhaldi rakastigi og auki það. Þarna erum við komin með tvö efni, annað sem ver húðina gegn sólargeislum og minnkar bólgur í húðinni og hitt sem viðheldur raka. Við erum líka með kollagen sem er uppbyggingarefni í húðinni og síðan öll möguleg vítamín sem eru góð fyrir húðina.“ AstaSkin kemur í hylkjaformi en það er hugsað bæði fyrir full- orðnar konur og karla. „Þetta er í hylkjaformi því við héldum að karlmenn vildu frekar taka inn hylki í staðinn fyrir að bera eitt- hvað á húðina. Konur eru auð- veldari markhópur og til í margt til að viðhalda fallegri húð,“ bendir hún á. Eftir að AstaSkin kom á markað hafa Lilja og hennar teymi fengið mikla endurgjöf frá notendum. Þar vakti ein aukaverkun sér- staka eftirtekt. „Ég hef heyrt að fólki finnist það fá heilbrigðara hár og neglurnar verði harðari. Það er eitthvað sem við vorum ekki að hugsa út í þegar þetta var hannað. Þetta eru óvæntar og skemmtilegar aukaverkanir og gerist stundum þegar maður er að stunda rannsóknir og setja saman skemmtilegar blöndur. Það er sett saman fyrir einn tilgang en síðan kemst maður að því, oftast nær fyrir tilviljun, að það hefur óvænta virkni.“ Hún segir að flestir finni og sjái mun eftir að hafa tekið AstaSkin í 2-3 vikur. „Við höfum verið að hugsa hvort við ættum, út af endurgjöfinni um neglurnar, að koma með nýja blöndu sem væri byggð á AstaSkin en myndum þá bæta við fleiri efnum sem væri góð fyrir neglur. Byggja ofan á virkni AstaSkin og koma með blöndu sem væri sérstaklega gerð fyrir neglur. Við erum stöðugt að skoða hvað sé hægt því það virðist vera mark- aður fyrir neglur.“ Skemmtilegir eiginleikar sem koma sér vel fyrir húðina Astaxanthin, sem KeyNatura ræktar úr smáþörungum í Hafnarfirði, er sannkallað undraefni en fyrirtækið nýtir það til að framleiða vörur fyrir fæðubótar- og lyfjamarkaðinn. AstaSkin er nýjasta afurð KeyNatura og er þegar orðin söluhæsta varan með óvæntar en gleðilegar aukaverkanir. Páll Arnar Hauksson, vöruþróunarstjóri KeyNatura, og dr. Lilja Kjalarsdóttir aðstoðarframkvæmdastjóri sem hönnuðu AstaSkin saman og halda hér á vörunni. AstaSkin er nýjasta varan í flóru KeyNatura en fyrir voru Asta- Energy, AstaCardio, AstaLýsi og AstaFuel. AstaSkin hefur slegið í gegn og er nú söluhæsta varan. KYNNINGARBLAÐ 7 Þ R I ÐJ U DAG U R 1 8 . J Ú N Í 2 0 1 9 HÚÐ OG HÁR 1 8 -0 6 -2 0 1 9 0 6 :0 7 F B 0 6 4 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 3 C -1 8 1 4 2 3 3 C -1 6 D 8 2 3 3 C -1 5 9 C 2 3 3 C -1 4 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 6 4 s _ 1 7 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.