Fréttablaðið - 18.06.2019, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 18.06.2019, Blaðsíða 44
ELLE segir frá því að á Íslandi sé alls ekki umdeilt hvort hamfarahlýnun sé af mannavöldum og að bráðnun jökla, óhefð- bundið veður og óvenju- legur hiti dragi athygli Íslendinga að málefninu. Bandaríski leikarinn og tísku-ljósmyndarinn Cole Sprouse kom nýlega til Íslands til að taka tískuljósmyndir fyrir tíma- ritið ELLE. Myndirnar voru birtar á vef ELLE fyrir helgi og sýna fyrir- sætu spóka sig við Sólheimajökul í ýmiss konar hátískufatnaði. Myndatakan sinnir tvíþættu hlutverki, því að henni er bæði ætlað að sýna hátískufatnað í f lottu umhverfi og um leið að vekja athygli á hamfarahlýnun og áhrifum hennar. Myndatakan var unnin í samstarfi við Inspired by Iceland. Myndirnar sýna fyrirsætuna Estella Boersma í fatnaði frá fínum merkjum eins og Prada, Balenciaga, Alexander McQueen, Gucci, Burberry, Dior og fleirum. Þær eru mjög nútímalegar og draga vel fram andstæðurnar í litríkum klæðnaðinum og dökku umhverf- inu. Jöklarnir verða horfnir eftir 100-200 ár Í grein sem fylgir myndunum er fjallað um áhrif hamfarahlýn- unar á íslenska jökla, sérstak- lega Sólheimajökul. Rætt er við Þröst Þorsteinsson, prófessor í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands, sem segir frá því að jöklarnir á Íslandi hafi hopað í Tíska á hjara veraldar í tímaritinu ELLE Ljósmyndari á vegum tímaritsins ELLE kom til Íslands til að taka tískuljósmyndir á Sólheimajökli. Ásamt því að nýta umhverfið vakti tímaritið athygli á hamfarahlýnun. Cole Sprouse tók flottar myndir fyrir ELLE við Sólheimajökul. MYNDIR/ELLE/COLE SPROUSE Cole Sprouse hefur getið sér gott orð sem tískuljósmynd- ari, en hann er líka leikari og menntaður í fornleifafræði. NORDICPHOTOS/ GETTY Myndirnar draga fram andstæðurnar í litríkum klæðnaði og dökkri náttúru. Í mynda- tökunni notar Estella Bo- ersma föt og fylgihluti frá ýmsum fínum merkjum. langan tíma og að Sólheimajökull sé sérstaklega viðkvæmur fyrir hlýnun jarðar vegna staðsetningar og lögunar sinnar. Þröstur segir að vísindamenn spái því að jöklarnir hverfi á næstu 100 til 200 árum, en að það sé líklega varlega áætlað og gæti gerst hraðar. ELLE segir frá því að á Íslandi, ólíkt Bandaríkjunum, sé það alls ekki umdeilt hvort hamfara- hlýnun sé af mannavöldum og að bráðnun jökla, óhefðbundið veður og óvenjulegur hiti dragi athygli Íslendinga að málefninu. Sólheimajökull hopaði um 110 metra á einu ári Áhrif hlýnunarinnar eru augljós þegar Sólheimajökull er skoðaður. Nemendur í Hvolsskóla hafa mælt hop jökulsins síðan árið 2010 og á síðasta ári kom í ljós að jök- ullinn hafði hopað um 110 metra frá árinu áður. Samtals hefur hann hopað 379 metra frá því að mælingar hófust. Það er að vísu talið að stórir ísklumpar hafi fallið úr jöklinum á milli 2017-2018 og það útskýri þetta mikla hop það ár og það verði minna 2018-2019, en engu að síður er jökullinn augljós- lega að hverfa hratt. Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr@frettabladid.is Hair Volume inniheldur jurtir og bætiefni sem sem eru mikilvæg fyrir hárið og getur gert það líflegra og fallegra. Sölustaðir: Flest apótek, heilsuhús og heilsuhillur stórmarkaða Nánar á artasan.is Aldrei haft jafn þykkt hár „Eftir að hafa misst allt hár í krabbameinsmeðferð byrjaði ég að taka Hair Volume frá New Nordic. Eftir 4-6 vikur fór hárið að vaxa aftur og ég hef aldrei haft jafnt löng augnhár, þykkar augabrúnir og þykkt hár eins og núna og það hvarflar ekki að mér að hætta að taka þetta bætiefni inn.“ Edda Dungal Hair Volume – fyrir líflegra hár 10 KYNNINGARBLAÐ 1 8 . J Ú N Í 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U RHÚÐ OG HÁR 1 8 -0 6 -2 0 1 9 0 6 :0 6 F B 0 6 4 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 3 B -F F 6 4 2 3 3 B -F E 2 8 2 3 3 B -F C E C 2 3 3 B -F B B 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 6 4 s _ 1 7 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.