Fréttablaðið - 18.06.2019, Blaðsíða 22
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Mörg gömul
fegrunarráð eru
enn í góðu gildi.
NORDICPHOTOS/
GETTY
Kleópatra bjó yfir mörgum góðum fegrunarráðum. NORDICPHOTOS/GETTYÝmis heimatilbúin ráð hafa verið notuð gegnum aldirnar til að fríska upp á
útlitið. Sum eru ennþá notuð í dag
en önnur þykja ef til vill frekar
undarleg. Hér koma nokkur þeirra:
Egg hafa verið notuð í húðum-
hirðu í þúsundir ára. Elsta skráða
uppskrift að húðkremi frá því árið
600 fyrir Krist inniheldur eggja-
hvítur. Eggjahvítur strekkja á
húðinni og þegar þær eru bornar
á háls og andlit virka þær eins
og tímabundin andlitslyfting.
Próteinið í eggjunum er einnig
rakagefandi og því er það þjóðráð
að skella framan í sig eggjahvítum
vilji maður fríska upp á húðina.
Maya-indíánar notuðu blöndu
af eggjahvítu, avókadó, banana og
ólífuolíu í hárið til að styrkja það
og ná fram auknum gljáa. Blandan
var borin í hárið og látin bíða þar
í klukkustund áður en hún var
skoluð úr hárinu og skildi það eftir
heilbrigt og glansandi.
Hunang og ólífuolía voru vin-
sælustu innihaldsefnin í andlits-
möskum Forn-Grikkja. Hunang-
inu var blandað saman við örlítið
af volgu vatni. Vatnið var notað
til að auðveldara væri að smyrja
hunanginu á húðina. Því næst var
ólífuolíunni hrært út í hunangið
og maskinn svo borinn á andlitið.
Hunang er talið bakteríudrepandi
og ólífuolían mjög græðandi.
Grikkirnir vissu greinilega alveg
hvað þeir voru að gera.
Kleópatra, drottning Egypta til
forna, lumaði á ýmsum fegrunar-
ráðum. Hún bjó til andlitsmaska
úr aloe vera-plöntu og hunangi.
Kornamaska bjó hún til úr sjávar-
salti og ólífuolíu og hún notaði
eplaedik sem andlitshreinsi.
Nokkuð sem er enn vinsælt í
dag. Hún notaði svo haframjöl
sem líkamsskrúbb. Haframjöl er
rakagefandi og inniheldur góð
næringarefni fyrir húðina og er til-
valið að blanda því út í baðvatn og
nudda því í húðina.
Af öllu hættulegri og ólyst-
ugri fegrunaraðferðum má nefna
krókódílasaur. Hann var vinsæll
í húðmeðferðum Forn-Grikkja.
Hann var talinn hafa læknandi
áhrif á húðkvilla. Ef saurnum var
makað kringum augun var talið að
hann gæti lagað ör. Ef saurnum var
blandað við leðju og fólk baðaði sig
upp úr herlegheitunum var talið
að húðin fengi unglegra yfirbragð.
Auk þess þótti þessi aðferð góð við
vöðvaspennu og stirðleika.
Aldagömul fegrunarráð
Fyrr á öldum
hljóp fólk ekki út
í búð og keypti
rándýr krem til að
viðhalda fallegri
og frísklegri húð.
• Sólartaflan sem hentar öllum
• Veitir vörn gegn sólarexemi
• Styrkir húðina í sól
• Vörn gegn öldrun
• Veitir eðlilegan húðlit í sól
Fáðu fallegan húðlit í sólinni
með Skin Care Perfect Tan
Perfect Tan™
Skin Care™
Perfect Tan MAN bordi copy.pdf 1 10/05/2018 12:51
4 KYNNINGARBLAÐ 1 8 . J Ú N Í 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U RHÚÐ OG HÁR
1
8
-0
6
-2
0
1
9
0
6
:0
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
3
C
-0
4
5
4
2
3
3
C
-0
3
1
8
2
3
3
C
-0
1
D
C
2
3
3
C
-0
0
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
6
4
s
_
1
7
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K