Fréttablaðið - 18.06.2019, Qupperneq 14
SENDIBÍLL ÁRSINS 2019
Splunkunýr Citroën Berlingo Van er nú með 5 ára verksmiðju-
ábyrgð, sparneytinni vél og fáanlegur með 8 þrepa sjálfskiptingu.
Komdu og prófaðu nýjan Berlingo sem er rúmbetri og öflugri en
nokkru sinni áður.
NÝTT: Fyrirtækjalausnir Brimborgar kynna flotastjórnunarkerfið
Brimborg Fleet Manager sem er vistað í skýinu, auðvelt í notkun og
getur lækkað rekstrarkostnaðinn umtalsvert. Fáðu kynningu.
KOMDU & KYNNTU ÞÉR
ÖRUGG GÆÐI CITROËN!
Brimborg Reykjavík
Bíldshöfða 8
Sími 515 7040
Brimborg Akureyri
Tryggvabraut 5
Sími 515 7050
Nýir og notaðir bílar:
Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17
og laugardaga kl. 12-16
VERÐ FRÁ:
2.532.000
EÐA 3.140.000 KR. MEÐ VSK
KR.
ÁN VSK
citroen.is
Forsendur framlengdrar verksmiðjuábyrgðar eru reglulegt þjónustueftirlit samkvæmt
staðli framleiðenda frá nýskráningardegi bifreiðar. Kaupandi ber kostnað af þjónustunni.
Nánari upplýsingar citroen.is/abyrgd.
NÝR CITROËN
BERLINGO VAN
NÚ MEÐ 5 ÁRA ÁBYRGÐ*
*
Nýr_Berlingo_Van_5x15_20190614.indd 1 14/06/2019 11:56
FÓTBOLTI Sauðkrækingurinn Rúnar
Már Sigurjónsson mun ganga til liðs
við FC Astana í Kasakstan. Hann
kemur til liðsins á frjálsri sölu þegar
samningur hans hjá Grasshopper í
Sviss rennur út í næsta mánuði.
Astana hefur orðið meistari í
heimalandinu undanfarin fimm ár
og er í efsta sæti þegar stutt er eftir
af tímabilinu.
Rúnar Már var þegar búinn að
tilkynna það að hann myndi halda
á ný mið að tímabilinu loknu eftir
þrjú ár í Sviss með Grasshopper og
St. Gallen.
Hann verður annar Íslend-
ingurinn til að leika í efstu deild í
Kasakstan á eftir Hannesi Þ. Sig-
urðssyni. – kpt
Rúnar Már fer
til Kasakstan
FÓTBOLTI Íslenska kvennalands-
liðið í knattspyrnu hélt hreinu
annan leikinn í röð í 2-0 sigri á
Finnum í Espoo í gær í lokaæfingar-
leik Íslands fyrir undankeppni EM
2021 sem hefst í haust. Þetta var
seinni leikur liðanna á stuttum
tíma, eftir markalaust jafntef li í
fyrri leiknum tókst íslenska liðinu
að sigla sigrinum heim með heil-
steyptari spilamennsku í gær. Hlín
Eiríksdóttir kom Íslandi á bragðið
áður en Dagný Brynjarsdóttir bætti
við marki. Með því komst Dagný
upp að hlið Ásthildar Helgadóttur
í þriðja sætið yfir f lest mörk fyrir
kvennalandsliðið, með 23 mörk.
Jón Þór Hauksson, þjálfari
Íslands, gerði fimm breytingar á
liðinu á milli leikja. Hlín var ein
þeirra sem komu inn í íslenska
liðið og var hún fljót að láta til sín
taka. Eftir snarpa skyndisókn féll
boltinn fyrir fætur Hlínar sem skor-
aði með fallegu skoti í fjærhornið,
óverjandi fyrir markmann finnska
liðsins. Stuttu síðar var komið að
þætti Dagnýjar þegar hún skoraði
af stuttu færi eftir frábæra sendingu
frá Glódísi Perlu Viggósdóttur.
Finnska liðið sótti í leit að marki í
seinni hálfleik en íslenska liðið stóð
vaktina vel og náði að halda hreinu.
Aðspurður er Jón Þór ánægður
með spilamennskuna.
„Heilt yfir er ég mjög sáttur við
spilamennskuna og að halda hreinu
í báðum leikjunum. Hópurinn var
ósáttur við jafnteflið í fyrri leiknum
sem lýsir metnaðinum í þessum
hóp. Þær tóku stórt skref í rétta átt
á mikilvægum tíma þar sem þetta
var síðasti æfingarleikur okkar fyrir
undankeppnina.“
Þetta var áttundi leikur liðsins frá
því að Jón Þór tók við liðinu síðasta
haust. Fyrir utan slæmt tap gegn
Skotum hefur liðið leikið vel og
unnið fjóra leiki af átta.
„Spilamennskan í þessum leik
staðfestir mína tilfinningu um að
liðið sé að vaxa og stefni í rétta átt.
Frammistaðan og liðsvinnan gefur
okkur mikið fyrir leikina í haust
þegar undankeppnin hefst. Við
höfum verið að mynda ákveðinn
kjarna og á sama tíma að stækka
hópinn til að auka möguleikana.
Ég fer mjög bjartsýnn inn í haust-
ið eftir það sem við höfum unnið
að undanfarna mánuði og manni
finnst við vera á réttri leið.“
Dagný var að byrja fyrstu lands-
leiki sína í tæp tvö ár og var afar sátt
að leikslokum.
„Við æfðum vel á milli leikja og
vorum ferskari og beittari í þessum
leik. Það kom kafli sem við gátum
haldið bolta betur en við náðum
að skapa okkur mörg færi og halda
hreinu,“ segir Dagný og bætir við:
„Það er gott að koma aftur og
hitta hópinn, bæði yngri leikmenn-
ina sem ég hef lítið leikið með og að
kynnast þjálfarateyminu betur og
aðferðum þess. Þetta var dýrmæt
reynsla fyrir mig fyrir undankeppn-
ina í haust og fyrir liðið til að slípa
sig saman.“
Aðspurð segist Dagný ekki vera
að horfa á að ná markameti lands-
liðsins af Margréti Láru enda 55
mörkum á eftir markahróknum.
„Ég viðurkenni að ég er ekki að
stefna á að ná henni. Næsta mark-
mið er að ná öðru sætinu,“ segir
Dagný hlæjandi að lokum.
kristinnpall@frettabladid.is
Stórt skref í rétta átt hjá liðinu
Íslenska kvennalandsliðið vann sannfærandi 2-0 sigur á Finnlandi í gær í síðasta æfingarleik liðsins fyrir
undankeppni EM. Landsliðsþjálfarinn var ánægður með framfarirnar í spilamennsku liðsins á milli leikja.
Dagný Brynjarsdóttir átti öflugan leik inni á miðju íslenska liðsins áður en
hún kom af velli í hálfleik gegn Finnlandi í gær. NORDICPHOTOS/GETTY
Þetta var dýrmæt
reynsla fyrir mig
fyrir undankeppnina í haust
og fyrir liðið til að slípa sig
saman.
Dagný Brynjarsdóttir
HANDBOLTI Íslenska karlalandsliðið
í handbolta verður í þriðja styrk-
leikaf lokki þegar dregið verður í
riðla fyrir EM 2020 sem fer fram
í Austurríki, Noregi og Svíþjóð í
janúar næstkomandi.
Strákarnir okkar komust inn
í lokakeppni Evrópumótsins ell-
efta skiptið í röð um helgina með
öruggum sigri á Tyrklandi í Laugar-
dalshöll. Dregið verður í riðlana á
föstudaginn í næstu viku. – kpt
Ísland í þriðja
styrkleikaflokki
Guðjón Valur stefnir á sitt tólfta
Evrópumót í röð. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
1 8 . J Ú N Í 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R14 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
1
8
-0
6
-2
0
1
9
0
6
:0
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
3
B
-E
1
C
4
2
3
3
B
-E
0
8
8
2
3
3
B
-D
F
4
C
2
3
3
B
-D
E
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
6
4
s
_
1
7
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K