Fréttablaðið - 18.06.2019, Qupperneq 18
Heilbrigðiskerfið
setur mikla fjár-
muni í að reyna að lækna
einstaklinga með
krabbamein en án end-
urhæfingar er það eins
og að kaupa nýjan bíl án
þess að kaupa dekk
undir hann.
Sólrún
Freyja Sen
solrunfreyja@frettabladid.is
Í ár er 20 ára afmæli Krafts og félagið hefur verið með viðburði í kringum 20. hvers mánaðar
frá ársbyrjun til að fagna því.
Viðburðirnir hafa þann tilgang
að vekja fólk til vitundar um ungt
fólk með krabbamein.
Í júlí verða viðburðir hins vegar
haldnir vikulega, vegna þess að
í júlí takmarkast opnunartímar
verulega hjá stofnunum sem
veita hvers konar þjónustu við
krabbameinsgreinda. Þá verður
slagorðið „krabbamein fer ekki
í frí“ áberandi í júlí. „Í þessum
mánuði eru takmarkaðar opnanir
á krabbameinsdeild Landspítal-
ans, og takmarkaðar opnanir hjá
Ljósinu og Krabbameinsfélag-
inu,“ segir Hulda Hjálmarsdóttir,
framkvæmdastjóri Krafts. „Við
viljum vekja athygli á því að fólk er
að greinast allan ársins hring.“
Krabbameinsgreining ekki
lengur dauðadómur
Það má segja að krabbamein
snerti fjölmarga Íslendinga á
einn eða annan hátt. „Flestir hafa
örugglega verið öðrum megin
við borðið, sem aðstandendur
eða með krabbamein sjálfir. Ég
held að fólk viti almennt meira
um krabbamein heldur en áður
fyrr og hvernig það getur stundað
heilbrigðan lífsstíl til að koma í
veg fyrir lífsstílstengda sjúkdóma
í framtíðinni. Það hafa líka orðið
miklar framfarir á sviði krabba-
meinslækninga og þar af leiðandi
miklu fleiri sem lifa krabbamein
af, en áður fyrr var krabbameins-
greining hálfgerður dauðadómur.
En hvernig ætlum við að mæta
þessum stækkandi hópi?“
Endurhæfing hefur ekki verið
hluti af meðferð við krabbameini
af hálfu hins opinbera og er fyrst
og fremst veitt af frjálsum félaga-
samtökum.
Krabbamein
fer ekki í frí
Kraftur er félag ungs fólks sem
greinst hefur með krabbamein og
aðstandenda krabbameinsgreindra.
Hulda segir að eftirmeðferð eigi að vera sjálfsagður hluti af krabbameins-
meðferðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Félagið fagnar 20 ára afmæli í ár með þéttri viðburðadagskrá. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Fólk greinist með krabbamein allan ársins hring. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Eins og að kaupa bíl án þess
að setja dekk undir hann
„Mín sýn og margra sem koma að
þjónustu krabbameinsgreindra
er að krabbameinsgreindur
einstaklingur ætti að fá endur-
hæfingarmat eftir sinni þörf og
endurhæfingu við hæfi. Í dag er
það því miður ekki þannig.“ Ljósið,
Krabbameinsfélagið og Kraftur
eru allt frjáls félagasamtök sem
sinna endurhæfingu, en endur-
hæfingarmiðstöðin fær til dæmis
ekki fjármagn til að taka á móti
krabbameinsgreindum.
„Það er ekki gert ráð fyrir því í
heilbrigðiskerfinu okkar að það
þurfi að endurhæfa fólk eftir
krabbameinsmeðferð. Heilbrigðis-
kerfið setur mikla fjármuni í að
reyna að lækna einstaklinga með
krabbamein en án endurhæfingar
er það eins og að kaupa nýjan
bíl án þess að kaupa dekk undir
hann.“
Nauðsynlegt að njóta
ferðalagsins
Í dag er horft á krabbamein sem
langvinna sjúkdóma og krabba-
meinsgreindir þurfa einhvern
veginn að læra að lifa með þeim.
Á vef Krafts, kraftur.org, er hægt
að finna upplýsingar um hvernig
og hvar krabbameinsgreindir geta
fundið stuðning í veikindunum
og eftir meðferð. Í febrúar gaf
félagið út bókina Fokk, ég er með
krabbamein, sem er handbók með
hagnýtum upplýsingum fyrir
krabbameinsgreinda og aðstand-
endur þeirra.
Hulda segir að Kraftur leggi
mikla áherslu á mikilvægi þess
að njóta líðandi stundar. „Þegar
maður veikist af lífsógnandi
sjúkdómi eins og krabbameini þá
verður maður mjög meðvitaður
um þá staðreynd að maður hefur
ekki endalausan tíma. Slagorð
okkar er „Lífið er núna“ og við
viljum vekja fólk til vitundar um
mikilvægi þess að njóta dagsins í
dag, en horfa ekki til fortíðar eða
hugsa bara um morgundaginn. Við
þurfum að njóta ferðalagsins líka.“
Næsta fimmtudag, 20. júní,
verður sumargrill Krafts haldið
í Guðmundarlundi í Kópavogi.
Grillið hefst klukkan sex að kvöldi
og Páll Óskar ætlar að skemmta
gestum.
Evonia er hlaðin bæti-
efnum sem næra hárið
og gera það gróskumeira.
Myndirnar hér til hliðar
sýna hversu góðum árangri
er hægt að ná með Evonia.
Evonia
www.birkiaska.isFyrir Eftir
Evonia eykur
hárvöxt með því
að veita hárrótinni
næringu og styrk.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . J Ú N Í 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U R
1
8
-0
6
-2
0
1
9
0
6
:0
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
3
B
-D
C
D
4
2
3
3
B
-D
B
9
8
2
3
3
B
-D
A
5
C
2
3
3
B
-D
9
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
6
4
s
_
1
7
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K