Fréttablaðið - 18.06.2019, Page 60

Fréttablaðið - 18.06.2019, Page 60
Félagarnir og leikstjórarn-ir Hörður Sveinsson og Helgi Jóhannsson urðu þess heiðurs aðnjótandi að vera valdir til að leik-stýra og skrifa handrit að myndbandi við lag eftir hljómsveit- ina Joy Division. Það verður að telj- ast helst til óvenjulegt að vera feng- inn til að gera tónlistarmyndband fyrir sveit sem lagði upp laupana fyrir 40 árum. Lagið sem þeir voru beðnir um að vinna myndband við heitir I Remember Nothing. Við fengum að spyrja Hörð nokkurra spurninga um gerð myndbandsins. Hörður segir að meðlimir Joy Division hafi gert samkomulag sín á milli um að ef einhver þeirra myndi hætta eða falla frá, þá myndi sveitin hætta, en í maí árið 1981 svipti söngvari sveitarinnar, Ian Curtis, sig líf i. Restin af meðlimunum stofnuðu síðar sveitina New Order sem naut einnig vinsælda. „Við fengum tölvupóst frá manni sem heitir Warren Jackson, hann er sem sagt listrænn stjórnandi þessa verkefnis. Það var ákveðið að fara af stað með þetta verkefni í tilefni af því að nú eru 40 ár liðin frá því að önnur plata sveitarinnar, Unknown Pleasures, kom út,“ segir Hörður. Warren útskýrði fyrir þeim verkefnið, að gera ætti myndband fyrir hvert lag plötunnar í tilefni af afmælinu. Hann valdi því tíu leik- stjóra eða leikstjórateymi eins og í tilfelli Harðar og Helga. „Hann hann gaf okkur algjört frelsi til að vinna þetta eins og við vildum. Hann bauð okkur sem sagt að taka þátt og við sögðum auðvitað já við því. Ég hélt án gríns fyrst að þetta væri eitthvert internet-svindl og hann væri að ljúga að okkur, svona þá smá eins og Nígeríusvindl. Ég beið eftir að hann segði okkur að leggja inn pening á reikninginn hans til að fá að taka þátt,“ segir Hörður hlæjandi. Hann segist hreinlega hafa beðið eftir þannig tölvupósti en hann kom aldrei og þetta reyndist svo allt á rökum reist. „Allt í einu vorum við komnir í samband við Warner sem er plötu- útgefandi Joy Division. Við vorum byrjaðir að fá peninga fyrir verkinu og farnir að kasta á milli okkar hug- myndum um það hvernig mynd- bandið skyldi verða.“ Hann segir það vanann að gera stutt einfalt handrit þegar um stærri verkefni eins og þetta sé að ræða. Hann segir þó að honum hafi fundist alveg magnað hve þeim var treyst til að stjórna þessu alveg sjálfir án mikilla afskipta. „Það er mjög sjaldan að við erum ekki krafðir um svona handrit áður en framleiðsla hefst. Við máttum alveg ráða. En við gerðum það nú samt og sendum handrit á Warren. Hann sagði strax að sér þætti þetta frábært frá okkur og honum litist mjög vel á það sem við sendum honum.“ Myndbandið, sem hefur nú litið dagsins ljós, sýnir tvo menn slást á svörtum sandi. „Við vildum að áhorfendur sjálfir ímynduðu sé hvað væri nákvæm- lega í gangi á milli mannanna, við vildum ekkert endilega mata það ofan í fólk hvað myndbandið fjallaði um.“ Hörður segir þá Helga strax hafa hafist handa við að hringja út og fá Gerðu myndband við lag Joy Division Hörður Sveinsson og Helgi Jóhannsson voru fengnir til að gera myndband við lag sveitarinnar Joy Division. Tíu leikstjórar voru fengnir í verkefnið, sem snérist um að gera myndbönd við lög af plötunni Unknown Pleasures. Mynd af þeim Herði Sveins- syni og Helga Jóhannssyni. MYND/ÁRNI FIL Hér sjást Baltasar Breki Samper og Hilmir Jensson glíma. MYND/NICOLAS GRANGE Stillaur úr myndbandinu Hörður segir allt fólkið sem starfaði að gerð byndbandsins eiga mikið hrós skilið. MYND/ NICOLAS GRANGE fólk með þeim í verkið. „Það voru allir nánast strax til í að hjálpa okkur með þetta og við fengum alveg ótrúlega gott fólk til liðs við okkur. Katrín Gunnars- dóttir „kóreografaði“ þetta fyrir okkur. Hákon Sverrisson skaut myndbandið. Brynja Skjaldar sá um búningana. Svo fengum við Baltasar Breka og Hilmi Jensson til að leika í myndbandinu. Þeir stóðu sig eins og hetjur. Við vorum öll dúðuð en þeir þurftu að berjast í kuldanum í tvo daga. Við lentum í alls konar veðri.“ Þeir Breki og Hilmar voru klæddir í næfurþunn hörföt á meðan allir aðrir voru í úlpu, með húfur og í föðurlandi. „Þeir voru alveg magnaðir, þurftu að slást þarna fyrir framan mynda- vélarnar í átta tíma báða dagana.“ Hörður og Helgi byrjuðu að vinna saman fyrir um sex árum og reka saman framleiðslufyrirtækið Snark. „Ég hafði fram til þessa ekki sett stefnuna á að leikstýra. Ég var beðinn um að gera tónlistarmynd- band fyrir hljómsveitina Hjaltalín við lagið I Feel You. Ég vann það myndband með Snorra Eldjárn. Við höfðum hvorugir gert myndband fyrir það en við slógum til. Helgi klippti það myndband. Eitt skipti var ég líka að ljósmynda á setti hjá honum. Svo drógum við okkur ein- hvern veginn í samstarf. Við áttum líka marga sameiginlega vini.“ Þeir höfðu áður gert myndband fyrir Warner og einnig fyrir nokkra aðra erlenda tónlistarmenn. „Ég hef ekki alveg á hreinu hvern- ig þeir fundu okkur en við erum bara þakklátir fyrir að fá þetta tæki- færi. Kannski er það bara af því að við erum svona kúl,“ segir Hörður hlæjandi. Í vikunni fer Hörður til London þar sem hann tekur þátt í pall- borðsumræðum um verkefnið ásamt trommara sveitarinnar, öðrum leikstjórum sem tóku þátt og Orian Williams, sem framleiddi myndina Control sem fjallar um hljómsveitina. steingerdur@frettabladid.is 1 8 . J Ú N Í 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R24 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ 1 8 -0 6 -2 0 1 9 0 6 :0 6 F B 0 6 4 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 3 B -F 5 8 4 2 3 3 B -F 4 4 8 2 3 3 B -F 3 0 C 2 3 3 B -F 1 D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 6 4 s _ 1 7 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.