Skagablaðið - 25.09.1985, Qupperneq 3
JJ
Mætt erfiðum andstæð-
ingum í fyrstu leikjum
- segir Pétur Pétursson, sem hefur mátt þola slæmt gengi mei Hercules
BÍLÁS-BILAS-BILAS-BÍLÁS-BÍLÁS-BÍLAS-BILAS-BILAS-BILAS-
w 01
u
„Jú, þetta hefur gengið hálf brosulega hjá okkur til að byrja með
en staðreyndin er nú sú, að við höfum lent á móti erfiðum mótherjum
í fyrstu leikjunum, nú síðast Atletico Bilbao. Við töpuðum 0:1 á
heimavelli en áttum skilið að vinna þennan leik. Sama var uppi á
teningnum hjá okkur á móti Atletico Madrid um daginn. Dómarinn
fór hins vegar illa með okkur á sunnudag og sleppti augljósri
vítaspyrnu er mér var brugðið innan vítateigs. Markið þeirra var í
ofanálag ólöglegt, brotið var á einum leikmanna okkar áður en þeir
skoruðu.“
Þannig fórust Pétri Péturssyni
orð er Skagablaðið sló á þráðinn
til hans í Alicante á mánudags-
kvöldið fyrir viku. Liðið hans,
Hercules, hafði kvöldið áður leik-
ið sinn fjórða leik í spænsku 1.
deildinni og tapað í þriðja sinn
0:1. Eins og nærri má geta er liðið
í slæmri stöðu, situr nú á botnin-
um ásamt Las Palmas með aðeins
1 stig eftir 4 leiki.
Þrátt fyrir erfitt gengi í leikjun-
um sem af er sagði Pétur hljóðið
í mönnum ekki slæmt. Liðið væri
vant því að eiga í erfiðri baráttu í
1. deildinni en menn hugguðu sig
við það að léttari leikir væru
framundan. Liðið mætti 2. deild-
arfélaginu Elche í bikarnum á
miðvikudag og vann 3:0 og síðan
var leikur gegn Sevilla á útivelli á
sunnudag. Pétur varð eftir þar í
borg því landsleikur Spánverja og
íslendinga fer fram þar í kvöld.
Um næstu helgi mætir Hercules
hinu botnliðinu Las Palmas á
heimavelli.
Pétri hefur enn ekki tekist að
skora mark fyrir hið nýja félag sitt
þótt hann hafi fengið til þess
nokkur færi. Reyndar hefur
Hercules ekki skorað nema 2
mörk það sem af er keppnistíma-
bilinu þannig að það hefur svo
sem ekki verið úr miklu að moða
hjá framherjunum.
Spennum beltin
ALLTAF
ekki stundum
„Það er allt í lagi að leika á
heimavelli en útileikirnir eru
mjög erfiðir. Liðin hérna á Spáni
leggja greinilega allt upp úrþví að
ná öðru stiginu á útivelli en keppa
svo að sigri á heimavelli. Á útivelli
er ég mjög mikið einn frammi og
Kempes, sem er iðnastur við að
mata mig á sendingum, er þá
gjarnan í strangri gæslu. Það bætir
hreint ekki úr skák.“
Þrátt fyrir skrykkjótt gengi
framan af sagðist Pétur ekki hafa
fundið fyrir neinum þrýstingi á sig
né aðra leikmenn og þótt hann
hefði ekki skorað mark ennþá
væru allir sannfærðir um að mark
hlyti að koma hjá honum á næst-
unni. Áhorfendur á báðum
heimaleikjum Hercules hafa verið
um 35.000 talsins.
Pétur er nú fluttur í eigin íbúð
skammt frá velli félagsins og sagð-
ist kunna bærilega við sig. Hann
væri smám sman að venjast hinu
framandlega umhverfi, matnum,
tungumálinu, sem hann sagði þó
enn Þránd í Götu, og ýmsu öðru.
Mestu máli skipti að hann væri
farinn að kunna ágætlega við sig
og átta sig betur á hlutunum. „Ég
er enn ekki kominn í nógu góða
æfingu að mér finnst en það
kemur og mörkin voanndi Iíka,“
sagði Pétur í lokin.
<n
■<
m
i
<n
■<
'm
■
<n
■<
'm
■
<n
■<
-j
'm
■
<n
•<
_j
'm
i
<n
•<
'm
i
<n
•<
_j
m
■
<n
•<
_i
m
i
<n
■<
_j
'm
i
<n
■<
_j
m
i
<n
■<
'm
i
<n
<
_j
m
i
(f)
■<
_J
CQ
■
<n
•<
_j
'm
<h
■<
<n
■<
Ur söluskrá
— á góðum kjörum —
Benz 280S árg. 1972
Concours árg. 1977
Charmant st. árg. 1979
Cortina árg. 1974
Fairmont árg. 1978
Dodge Aspen árg. 1976
Datsun 120AF árg. 1978
Austin Mini árg. 1977
Oldsmobile Cutlass diesel
árg. 1979
Skoda 120 GLS árg. 1982
Skoda 120 LS árg. 1981
Saab 99 árg. 1974
Volvo 244 árg. 1975
VW 1300 árg. 1973
Wagoneer árg. 1972
Citroen árg. 1979
Mazda 323 árg. 1977
bilcS
m— Þjóðbraut 1, Akranesi, s. 93-2622-
>•
<n
■
m
r-
>•
<n
■
m
r-'
>•
<n
i
m
r~
>•
<n
i
m
i-'
>■
<n
■
m
i-'
>•
<r>
I
m
i-'
>
<n
i
m
F'
>
<n
■
m
F'
>■
tn
■
m
i-'
>■
<n
i
m
i-'
>•
<n
m
r~
>■
<n
1
m
i—
>•
<n
1
m
F'
>■
<n
i
m
F'
>•
<n
>•
i<n
Firmakeppni Leynis lokið:
Ta n n sm íðastof ■
an sigurvegari
Tannsmíðastofan sf. bar sigur úr býtum í hinni árlegu firmakeppni
Golfklúbbsins Leynis, sem lauk um síðustu helgi. Árni P. Reynisson
lék fyrir hennar hönd og kom inn á 64 höggum nettó.
Annað sætið í keppninni kom í hluta Akraprjóns en Kristinn
Bjarnason lék fyrir hönd fyrirtækisins. Kom hann inn á 65 höggum
nettó. Þriðja sætið kom svo í hlut Ríkharðar Jónssonar sf., en fyrir
hans hönd lék Guðni Ásgeirsson og kom inn á 66 höggum nettó.
Glöggt má sjá að mjótt var á mununum í slagnum um efsta sætið.
Alls tóku 70 fyrirtæki þátt í firmakeppninni í ár og að henni lokinni
var boðið upp á kaffi og meðlæti í hinum vistlega skála Leynismanna
og verðlaun afhent.
Meðfylgjandi mynd sýnir verðlaunahafana og þá sem spiluðu fyrir
þeirra hönd.
Alltaf eitthvað nýtt
af efnum og garni í hverri viku.
2-3 aðilar komast að í bútasaum
sem byrjar 14. október.
Joggingefnin komin í 9 litum.
Glansgallaefnin á leiðinni.
Opið á laugardögum frá 10-12.
Kveðja Guðrún
HANDMENNT
Kirkjubraut 2, 2. hæð • Sími 2807
3