Fréttablaðið - 10.07.2019, Qupperneq 2
Veður
Austan 3-8 m/s, en 8-13 með
suðurströndinni. Skýjað að mestu
og skúrir á víð og dreif, en þurrt og
bjart norðaustan til. Dálítil væta
syðst í nótt. SJÁ SÍÐU 16
NÝTT OG
SPENNANDI
FRÁ HOL
TA
Hefur þú prófað
Holta drumsticks?
Töfraveröld Kverkfjalla
Í Kverkfjöllum er að finna orkuríkt háhitasvæði. Þangað lagði leið sína þrjátíu manna
hópur á vegum Ferðafélags Íslands um liðna helgi. Á svæðinu er að finna allstórt lón í
jöklinum, svonefnt Gengissig, þar sem jarðhitinn vinnur á ísnum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
ÚTIVIST „Einmitt núna erum við
á áttunda degi göngunnar, þvert
yfir landið,“ sagði Kristján Helgi
Carrasco sem blaðamaður Frétta-
blaðsins hitti í Hvannalindum á
sunnudaginn var.
Kristján og félagi hans, Kristinn
Birkisson, eru nú á gönguferð þvert
yfir Ísland, frá fjörunni í Lóni að
austanverðu, alla leið yfir hálend-
ið og niður í Borgarfjörð í vestri.
Gangan er ríf lega 500 kílómetra
löng og reikna félagarnir með að
nota allan júlímánuð til þess að
klára hana.
Er blaðamaður rakst á Kristján
og Kristin höfðu þeir nýlokið við
að vaða jökulána Kreppu, sem er
með þeim stærri og ógnvænlegri.
„Við reyndum að vaða Kreppu í
gærkvöldi, en þá var allt of mikið í
henni,“ sagði Kristinn
„Við slógum upp tjaldi og ákváð-
um að bíða til morguns. Í morgun
reyndum við aftur við sama vað
og í gær, en það gekk ekki hjá
okkur. Það liðu samt alls fimmtíu
mínútur frá því að við fórum út í
þangað til við komumst aftur upp
úr jökulvatninu og upp á bakka.
Þá þurftum við að hlýja okkur og
borða áður en við leituðum að nýju
vaði. Þetta gekk þó að lokum.“
Þeir Kristján og Kristinn sögðu
heilsuna góða og andann vera
léttan. „Hælarnir eiga nú samt
dálítið bágt,“ bætti Kristinn við.
„Við erum brattir.“
Þeir félagar greina frá því á
Facebook-síðu þar sem sagt er
frá ferðinni að upphaf lega hug-
myndin sé ættuð frá þeim Róberti
Marshall, Brynhildi Ólafsdóttur,
Páli Ásgeiri Ásgeirssyni, Rósu Sig-
rúnu Jónsdóttur og Einari Skúla-
syni. Leiðarvalið miðaðist meðal
annars við að gengið yrði að mestu
um algerar óbyggðir og að á leið-
inni yrði að sigrast á talsverðum
áskorunum.
Nánari upplýsingar og fréttir
af ferðum vinanna er að f inna
á Facebook-síðunni Kristján og
Kristinn á Öræfaleið.
sigtryggur@frettabladid.is
Göngutúrinn er fimm
hundruð kílómetrar
Kristján Helgi Carrasco og Kristinn Birkisson ganga þvert yfir Ísland, samtals
fimm hundruð kílómetra frá Lóni í austri að Borgarfirði í vestri. Útsendari
Fréttablaðsins rakst á þá í Hvannalindum, þá nýbúna að lenda í svaðilförum.
Það liðu samt alls
fimmtíu mínútur
frá því að við fórum út í
þangað til við komumst
aftur upp úr jökulvatninu
og upp á bakka.
Kristinn Birkisson göngumaður
Kristján Helgi Carrasco og Kristinn Birkisson eftir að hafa komist í hann
krappan í Kreppu. Þeir komust yfir að lokum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
VIÐSKIPTI Torg, útgáfufélag Frétta-
blaðsins, hagnaðist um tæplega 39
milljónir króna eftir skatta á síðasta
ári, samkvæmt nýjum ársreikningi
félagsins. Rekstrartekjur Torgs voru
2,57 milljarðar króna á árinu.
Þá var EBITDA útgáfufélagsins –
afkoma fyrir afskriftir, fjármagns-
liði og skatta – jákvæð um 109 millj-
ónir króna í fyrra, að því er fram
kemur í ársreikningnum.
„Frekjulegt inngrip Ríkisút-
varpsins í kringum auglýsingasölu
í tengslum við Heimsmeistaramótið
í knattspyrnu seinni part ársins
hafði mjög afdrifarík áhrif á rekst-
ur Torgs,“ segir Ingibjörg Stefanía
Pálmadóttir, forstjóri og helmings-
hluthafi Torgs.
„Þrátt fyrir yfirgang RÚV á mark-
aði stendur Fréttablaðið framar
öllum auglýsingamiðlum á Íslandi,
hvort sem um ræðir vef- eða sam-
félagsmiðla, og skilar hagnaði á
síðasta rekstrarári,“ bætir hún við.
Eignir Torgs, sem á og rekur
Fréttablaðið, frettabladid.is, mark-
adurinn.is, tímaritið Glamour og
tengda starfsemi, námu 1,27 millj-
örðum króna í lok síðasta árs en á
sama tíma var eigið fé félagsins 502
milljónir króna og eiginfjárhlut-
fallið því 40 prósent.
Sem kunnugt er keypti félag í
eigu Helga Magnússonar, fjárfestis
og fyrrverandi stjórnarformanns
Lífeyrissjóðs verslunarmanna,
nýverið helmingshlut í Torgi og
tók Helgi í kjölfarið sæti í stjórn
útgáfufélagsins. Félög á vegum
Ingibjargar fara með helming í
Torgi á móti Helga. – kij
Útgáfufélag Fréttablaðsins skilaði
39 milljóna króna hagnaði í fyrra
Ingibjörg
Stefanía
Pálmadóttir,
forstjóri Torgs.
Fleiri myndir úr Kverkfjöllum er að finna á +Plús-
síðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Frétta-
blaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS
STJÓRNMÁL Mennta- og menning-
armálaráðuneytið birti í gær drög
að frumvarpi um Stuðningssjóð
íslenskra námsmanna í Samráðs-
gátt þar sem umsagna er óskað. Með
frumvarpinu leggur ráðuneytið til
að nýtt námsstyrkjakerfi verði
innleitt samhliða námslánakerfi
og þannig verði gengið „í átt að því
að tryggja hagsmuni námsmanna á
Íslandi betur“.
Fram kemur í drögunum að nafni
Lánasjóðs íslenskra námsmanna
(LÍN) verði breytt í Stuðningssjóður
íslenskra námsmanna (SÍN). Aukin-
heldur að lánþegar sem ljúka próf-
gráðu innan tilgreinds tíma geti
fengið námsstyrk sem nemur þrjátíu
prósentum af höfuðstól námsláns í
formi niðurfellingar sem kæmi til
framkvæmda að námi loknu. – þea
LÍN-frumvarp
er komið fram
1 0 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
0
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
6
5
-B
8
7
0
2
3
6
5
-B
7
3
4
2
3
6
5
-B
5
F
8
2
3
6
5
-B
4
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
0
s
_
9
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K