Fréttablaðið - 10.07.2019, Qupperneq 14
Félag í eigu Kára Guðjóns Hall-grímssonar, stjórnanda á skuldabréfasviði fjárfestinga-
bankans JP Morgan í London, var
í hópi þeirra fjárfesta sem keyptu
undir lok síðasta mánaðar samtals
um nítján prósenta hlut Arion banka
í fjárfestingarfélaginu Stoðum. Sam-
kvæmt heimildum Markaðarins
nam fjárfesting Kára í Stoðum yfir
þrjú hundruð milljónum króna sem
tryggir honum vel yfir eins prósents
eignarhlut í félaginu.
Tilkynnt var um sölu Arion banka
föstudaginn 28. júní síðastliðinn
en sjóðir í stýringu Stefnis, dóttur-
félags bankans, fóru fyrir fjárfesta-
hópnum og keyptu samanlagt um
átta prósenta hlut í Stoðum. Sam-
kvæmt heimildum Markaðarins
samanstóð kaupendahópurinn af
nærri tuttugu sjóðum og fjárfestum.
Hlutafé Stoða var aukið um hátt
í 3,7 milljarða króna í lok maí-
mánaðar og nam eigið fé félagsins í
kjölfarið um 22 milljörðum króna.
Miðað við það má áætla að bókfært
virði eignarhlutar Arion banka hafi
verið um 4,4 milljarðar
króna.
Kári hefur starfað
hjá ba nd a r ísk a
fjárfestingarbank-
anum í sautján ár
og undanfarið sem
framkvæmdastjóri
á skuldabréfasviði
ba n k a n s . Fél ag ið
V i n d h a m a r ,
sem er í eigu
Kára, var á
meðal fjár-
MARKAÐURINN
ÚTGÁFUFÉLAG Torg., Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík, sími 550 5000
Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 550 5051
Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@frettabladid.is Veffang frettabladid.is
GÍRAR - FÆRIBÖND - RAFMÓTORAR - LEGUR
588 80 40
www.scanver.is
RAFMÓTORAR
Kári kaupir í Stoðum
fyrir um 300 milljónir
22
milljörðum króna nemur
eigið fé Stoða eftir að hlutafé
félagsins var nýlega hækkað.
Vinna stendur nú yfir i n n a n S e ðl a b a n k a Íslands, samk væmt heimildum Markað-arins, sem miðar að
því að Íbúðalánasjóði verði ekki
lengur heimilt að ráðstafa lausu fé
sjóðsins til fjárfestinga í bundnum
innlánum í Seðlabankanum. Þess í
stað þyrfti Íbúðalánasjóður þá að
leita annarra fjárfestingarkosta,
meðal annars í innlánsreikningum
í viðskiptabönkunum, sértryggðum
skuldabréfum bankanna og ríkis-
skuldabréfum. Innlán sjóðsins í
Seðlabankanum nema í dag samtals
hátt í hundrað milljörðum króna.
Markmiðið með þessum breyt-
ingum, sem væntingar eru um að
geti orðið að veruleika innan fárra
vikna og væru í reynd ígildi aukins
peningamagns í umferð, eru einkum
að reyna að auka framboð á lánsfjár-
magni á fjármálamarkaði. Lausa-
fjárstaða stóru bankanna í krónum
hefur versnað mjög á síðustu mán-
uðum og misserum, en fjármála-
stöðugleikaráð sá ástæðu til að vekja
sérstaklega athygli á þeirri þróun í
síðustu fundargerð sinni.
Viðmælendur Markaðarins innan
bankakerfisins segja að vegna
þröngrar lausafjárstöðu hafni þeir
nú í f leiri tilfellum en áður að fjár-
magna verkefni sem þeir hefðu að
öðrum kosti kosið að fjármagna.
Bankarnir vilji ekki að lausafjár-
hlutfall þeirra í krónum verði lægra.
Vextir á sjö daga bundnum inn-
lánum í Seðlabankanum, sem eru
iðulega nefndir meginvextir bank-
ans, eru í dag 3,75 prósent en vextir
Seðlabankans hafa verið lækkaðir
um samanlagt 0,75 prósentur á síð-
ustu tveimur mánuðum. Í árslok
2018 námu innlán Íbúðalánasjóðs
í Seðlabankanum um 68 millj-
örðum en samkvæmt heimildum
Markaðarins hafa þau aukist tals-
vert sem af er árinu og nema nú
hátt í hundrað milljörðum. Hið
mikla lausafé sem sjóðurinn er með
bundið á innlánsreikningum í Seðla-
bankanum, og hefur aukist verulega
síðustu ár, er í raun peningamagn
sem hefur verið tekið úr umferð.
Vaxtalækkanir skila sér illa
Vinna Seðlabankans miðar þess
vegna að því, að sögn þeirra sem
þekkja vel til, að með því að heim-
ila ekki lengur Íbúðalánasjóði að
ávaxta þetta fé á innlánsreikningum
í Seðlabankanum heldur að beina
því í aðra fjárfestingakosti, eins og í
innlán í viðskiptabönkunum, væri
það til þess fallið að bæta lausafjár-
stöðu bankanna og um leið auka
útlánagetu þeirra. Þá væri það eins
til þess að lækka vexti á markaði ef
þessir fjármunir myndu að hluta til
leita í fjárfestingar í ríkisskuldabréf-
um eða sértryggðum skuldabréfum
bankanna.
Lausafjáreignir bankanna í krón-
um hafa dregist saman um tugi pró-
senta síðustu ár og fór lausafjárhlut-
fall þeirra allra undir 100 prósent í
lok síðasta árs. Í lok fyrsta ársfjórð-
ungs var hlutfallið lægst hjá Lands-
bankanum, 46 prósent, 93 prósent
hjá Íslandsbanka og 106 prósent í
tilfelli Arion banka. Til samanburðar
var sambærilegt hlutfall á bilinu 90
til 193 prósent á árinu 2016.
Í nýlegri skýrslu hagfræðideildar
Landsbankans um stöðu íslensku
viðskiptabankanna er bent á að lágt
lausafjárhlutfall bankanna þýði að
þeir muni hafa takmarkað svigrúm
til þess að stækka útlánasöfn sín.
„Reglur um lausafé eru nú að okkar
mati orðnar meira hamlandi fyrir
lánavöxt og arðgreiðslur en eigin-
fjárkröfur,“ segir í skýrslu hagfræði-
deildarinnar.
Stefán Broddi Guðjónsson, for-
stöðumaður greiningardeildar Arion
banka, sagði í samtali við Markaðinn
síðasta miðvikudag að „háar eigin-
fjár- og lausafjárkröfur, auk arðsemi
bankanna, gerðu það að verkum að
aðgerðir til þess að lækka vexti, til
að mynda rýmkun heimilda til þess
að eiga veðlánaviðskipti við Seðla-
bankann, skila sér ekki í eins miklum
mæli og annars væri.“
Nýleg breyting á reglum Seðla-
bankans sem felur í sér að sértryggð
skuldabréf bankanna eru nú orðin
hæf til trygginga í endurhverfum við-
skiptum þeirra við Seðlabankann sé
afar jákvætt skref en marki þó engin
tímamót. hordur@frettabladid.is
Fái ekki að setja fé í
innlán í Seðlabankann
Seðlabankinn vinnur að breytingum sem miða að því að Íbúðalánasjóður fái
ekki lengur að ávaxta lausafé sitt á bundnum innlánum í bankanum. Þurfi að
leita annarra fjárfestingarkosta. Ætti að auka lánsfé og lækka vexti á markaði.
Már Guðmundsson lætur af embætti seðlabankastjóra í næsta mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
100
milljarðar tæpir er sú fjár-
hæð sem sjóðurinn er með
bundna í innlánum í Seðla-
bankanum.
Hagfræðideild Landsbankans hefur hækkað verðmat sitt á Símanum um tólf prósent
frá því í desember í fyrra og metur
nú gengi hlutabréfa í fjarskiptafélag-
inu á 5,2 krónur á hlut. Sérfræðingar
bankans segja félagið hafa brugðist
vel við tekjusamdrætti með hag-
ræðingaraðgerðum og gera nú ráð
fyrir auknum tekjum á næstu árum.
Gengi hlutabréfa í Símanum
stóð í 4,58 krónum á hlut við lokun
markaða í gær en það hefur hækkað
um sextán prósent á undanförnum
tveimur mánuðum.
Í verðmati hagfræðideildar Lands-
bankans, sem Markaðurinn hefur
undir höndum, er bent á að kostnað-
araðhald hafi verið „mál málanna
hjá Símanum og hefur tekist vel að
halda kostnaði í skefjum þrátt fyrir
miklar launahækkanir á tímabilinu“.
Verðstríð, brottfall reiki- og heild-
sölutekna og sala á rekstri hafi valdið
samdrætti í sölu síðustu ár en engu
að síður hafi EBITDA – afkoma fyrir
afskriftir, fjármagnsliði og skatta –
vaxið ár frá ári frá árinu 2015.
Greinendur bankans spá 2,5 pró-
senta tekjuvexti hjá fjarskiptafélag-
inu á þessu ári, meðal annars vegna
sóknar félagsins í nýja viðskiptavini
og möguleika þess til tekjusköp-
unar í kringum sýningar á enska
boltanum. Jafnframt gæti áhrifa af
brotthvarfi heildsölu- og reikitekna
ekki lengur.
Þá telja sérfræðingarnir enn frem-
ur að EBITDA Símans verði 10.556
milljónir króna í ár en til saman-
burðar gera stjórnendur félagsins
ráð fyrir að EBITDA verði á bilinu
10.200 til 10.700 milljónir króna. – kij
Snarhækka verðmat sitt á Símanum
Orri Hauks-
son, forstjóri
Símans.
festa sem tóku þátt í þrjú hundruð
milljóna króna hlutafjáraukningu
hátæknifyrirtækisins Valka á síð-
asta ári.
Stoðir, sem eru á meðal stærstu
hluthafa í tryggingafélaginu TM,
Arion banka og Símanum, högn-
uðust um 1.100 milljónir króna á
síðasta ári. Stærsti hluthafi Stoða
er eignarhaldsfélagið S121 sem
er meðal annars í eigu félaga á
vegum Jóns Sigurðssonar, stjórnar-
formanns Stoða, Einars Arnar
Ólafssonar, fyrrverandi forstjóra
Skeljungs, og Örvars Kjærnested,
fjárfestis og stjórnarformanns TM.
Aðrir helstu hluthafar Stoða eru
Landsbankinn með fimmtán pró-
senta hlut og Íslandsbanki á tvö
prósent í félaginu. – hae
Kári Guðjón
Hallgrímsson
1 0 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R2 MARKAÐURINN
1
0
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
6
5
-D
6
1
0
2
3
6
5
-D
4
D
4
2
3
6
5
-D
3
9
8
2
3
6
5
-D
2
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
9
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K